Aðventfréttir - 01.03.2009, Qupperneq 13

Aðventfréttir - 01.03.2009, Qupperneq 13
komast til skila án þess að hafa frimerki og heimilisfang. Og núna var búið að taka pokann! Ég flýtti mér heim með matvörurnar svo að ég gæti undirbúið hvíldardagsmáltíðina. Þegar ég keyrði heim innkeyrsluna tók ég eftir því að í farþegasætinu lá bréf sem ég hafði lofað að fara með í póstinn. Það inni- hélt ávísun fyrir mánaðarlega greiðslu af húsláninu og henni mátti alls ekki seinka! Ég snéri við og hélt aftur af stað i bæinn. Fyrir framan pósthúsið gleymdi ég að setja bílinn í gír þegar ég lagði honum. Hann rann aftur á bak og lenti á vörubíl. Það tók tíma að skiptast á nöfnum, símanúmerum og bíln- úmerum. Þegar öllu þessu var lokið var þegar komið sólarlag. Heima gafst ég upp á þvl að reyna að undirbúa kvöldmáltíðina og fór að bæta við á eldinn og reyna að ná áttum. Ég setti viðarofninn á hæstu stillingu og opnaði lokið til að setja viðinn í ofninn. Á sömu stundu skaust út blossandi eldslogi sem sveið augabrýrnar minar og augnhárin og brenndi mig lltils háttar í andlitinu. Ég skellti lokinu aftur og rauk til að skvetta köldu vatni á andlitið mitt. Að lokum settist ég niður í ruggustólinn minn og skrifaði í bænadagbókina mína: „Þvílík klúður, Drottinn! Ég hef að minnsta kosti framið fjögur heimskupör í dag. Hefðu hlutirnir verið öðruvisi ef ég hefði gefið mér tíma í morgun til að eiga stund með þér? Trúlega. Mér þykir það leitt. Viltu fyrirgefa mér?“ „Nei, ég held ekki að þú hafir verið að refsa mér. Þú leyfðir bara hlutunum að hafa sinn gang. Ég framdi öll þessi heimskupör af því að ég var að reyna að vera ofur- kona í mínum eigin mætti." „Ef ég hefði einungis tekið mér tlma með þér 1 morgun, þá hefði ég haft þá geðró sem ég þurfti til að forgangsraða hlutunum og eyða deginum í dag á skynsamlegan hátt.“ „Hlutirnir hefðu einnig getað hafa farið mun verr. Þakka þér fyrir að hlífa mér, fyrir að vera með mér jafnvel þótt ég bæði þig ekki um það, og fyrir að þjást með mér í öllum mínum heimskupörum." Á þessari stundu sem ég hafði svo mikla óbeit á sjálfri mér, fékk ég „blómvönd" frá Jesú. Mér fannst sem ég heyrði hann hvisla til mín umorðun á textanum I He- breabréfinu 13.5: „Ég mun ekki sleppa af þér hendinni né yfirgefa þig, Dorothy, jafnvel ekki á dögum sem þessum þegar þú rýkur hugsunarlaust út í erfiðleikana án þess að hafa mig með þér.“ Þessi blómvöndur orða hans full- vissaði mig um það að hann elskar mig þrátt fyrir heimskupör mín og hirðuleysi. Hvílíkur vinur er Guð(l), að geta sent mér þessi kærleiksskilaboð á stundu sem þessari(!), hugsaði ég með mér. Hugmyndin að blómavend- inum Það var vinkona min, lone Richardson, sem gaf mér hugmyndina að því að kalla þessi skilaboð frá Guði „blómvendi", þ.e. persónuleg skilaboð Guðs til mín umorðuð til að falla að kringumstæðum minum. Hún er höfundurinn að morgunvökubók sem heitir Bouquets, With Love, Jesus. Bókin inniheldur hundrað ritningarvers sem lone hefur valið ásamt umorðun á versunum skrifuð af henni sjálfri á kyrrðarstundu með Guði. Síðan getur hver einstaklingur skrifað niður sína eigin umorðun sem á við um hans reynslu og aðstæður, ásamt eigin þakkarbæn eða skuldbindingu sem við- bragð við blómvendinum. Þessir þrír blómvendir sem ég hef nefnt hér á undan passa inn í þetta form: Ritningin, mín eigin umorðun, reynslan mín, og bæn mín. Ég ætla að deila með ykkur einum „blómvendi" í viðbót, ásamt fyrir- sögnum, til að sýna ykkur hvað það er í raun auðvelt að finna „blómavendi" í leiðangrinum um Bænalandið. Ávaxtavöndur Ritningin: En ávöxtur andans er: Kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmennska, hógværð og bindindi. (Galatabréfið 5.22-23) Umorðunin mín: Ávöxtur andans þroskast ekki á einni nóttu. Á sama hátt og ávextir hafa sinn árstíma til að þroskast og vaxa, þá þarf sálin einnig sinn tíma. Dorothy, ef þú bara lætur veturinn líða og leyfir garðklippunum að klippa þig til, þá mun vorið koma ásamt nýju lífi. Ef þú ert þolinmóð, þá munu ávextir gleði og friðar aftur birtast í lífi þínu. Reynslan mín: Ákveðinn einstaklingur hafði gagnrýnt mig harðlega. Ég skrifaði í bænadagbókina mína: „Mér líður núna eins og ávaxtatré sem ber engan ávöxt. Tré sem hefur engan safa. Ég er þurr, stökk og köld, slegin svipuhöggum af vetrarvindum gangrýni og aðfinnslusemi. Mér finnst allt í einu að ég sé dragbítur á Ron og starfinu, einskis virði og gagnslaus. Ég er særð, með tárin í augunum, uppgefin. En þetta vers veitir mér örlitla von. Ef veturinn kemur, getur þá nokkuð vorið verið langt undan?" Bænin mín: „Drottinn, þakka þér fyrir vonina sem þú hefur gefið mér og loforðið um að vorið komi. Ég bið þig um að hjálpa mér að lifa af vetrar- vindana og þann sársauka sem garðklippurnar valda. Viltu gefa mér kærleika til einstaklingsins sem hefur gagnrýnt mig. Viltu hjálpa okkur að verða vinir.“ Frá þeim degi sem ég fékk þennan „blómvönd" frá Jesú, fannst mér ég aftur einhvers virði, ég var elskuð og dýrmæt I augum Jesú, þrátt fyrir mistökin sem ég hafði gert. Prófaðu sjálf(ur); 1. Taktu autt blað og skiptu því í fjóra lárétta hluta. Skrifaðu fyrirsögn efst f hvern hluta: Ritningin, Umorðunin mín, Reynslan mln, Bænin min. 2. Veldu biblíuvers sem þér finnst innihalda sérstök skilaboð til þín á þessu tímabili I þlnu lífi. Ef þér dettur ekkert vers í hug, lestu þá Davíössál- mana þar til þú finnur vers sem talar til þín. 3. Ef þú hefur tök á, lestu þá versið í mismunandi útgáfum, t.d. á mis- munandi tungumálum og veldu það sem talar best til þln. 4. Skrifaðu versið inn I efsta lárétta hlutann (Ritningin). 5. Skrifaöu þína eigin umorðun á versinu. Skrifaðu niður allt það sem þér finnst þetta vers vera að segja þér um kringumstæðurnar í þínu lífi. Bættu nafninu þínu inn í umorðunina ef þér finnst það muni hjálpa þér að gera versið persónulegra. ímyndaðu þér að þetta sé það sem Jesú sé að segja þér. 6. Skrifaöu þvinæst þína persónulegu reynslu sem tengist ritningarversinu, eða skrifaðu niður hvað þú vilt gera öðruvlsi I tengslum við það sem versið er að segja þér. 7. Hafðu að lokum bænastund þar sem þú lofar og þakkar Drottni, og biður hann um hjálp og leiðbeiningu varðandi þína persónulegu reynslu. 8. Strikaðu undir „blómvendina" þína I Biblíunni með rauðu. Settu einnig dagsetninguna þar við. Þegar þú ert niðurdregin(n) skaltu blaða í gegnum Biblluna þína og finna „blómvendina". Sandra Mar Huldudóttir þýddi AÐVENTFRÉTTIR • MARS 2009

x

Aðventfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Aðventfréttir
https://timarit.is/publication/973

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.