Vísbending - 14.12.2009, Side 1
ÍSBENDING
Vikurit um viðskipti og efnahagsmál
14. desember 2009
49. tölublað
27. árgangur
ISSN 1021-8483
Hin ósýnilega hönd
Miðað við umræður á Alþingi og
í þjóðfélaginu öllu þessa dag-
ana mætti æda að Island væri
algerlega stjórnlaust. Það rangt. Landið
fer í raun og veru eftir áætlun sem samin
var fyrir rúmu ári. Þegar seðlabankastjóri
og fjármálaráðherra skrifuðu undir
viljayfirlýsingu vegna fyrirgreiðslu Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins í nóvember fyrra var
efnahagsstefnan ákveðin næstu tvö árin.
Vegna seinagangs á ýmsum málum síðan
þá hefur þessi áædun verið framlengd um
hálft ár. ísland fylgir sem sé markaðri leið í
efnahagsmálum allt fram í maí 2011. Samt
er ekki nokkur maður sem talar um að
stefnan sé góð. Enginn flaggar kortinu sem
farið er eftir og segir þjóðinni að hún sé á
réttri leið. Seðlabankastjórinn, sem skrifaði
undir viljayfirlýsinguna, var (og virðist
enn vera) einn helsti andstæðingur AGS.
Núverandi fjármálaráðherra var hatrammur
andstæðingur sjóðsins og finnst þess vegna
kannski óviðeigandi að tjá sig um málið, þó
að hann eigi í raun að vera leiðsögumaður
þjóðarinnar í efnahagsmálum.
Áttum viö val?
Það er auðvelt að vera vitur eftirá og það er
mannalegt að steyta hnefann þegar engin
hætta virðist í augsýn. Nú er rúmlega ár liðið
frá hruninu og því er eðlilegt að spurt sé,
hvort íslendingar hefðu getað farið aðra leið.
Svarið er að hún er vandséð. Þeirri skoðun
virðist hafa vaxið fylgi að fslendingar eigi
að einangra sig frá umheiminum, taka sem
minnstan þátt í alþjóðasamstarfi og standa
á eigin fótum. Til sönnunar því að þetta sé
hægt, er bent á að sums staðar annars staðar
hafi menn gert slíkt með góðum árangri. Því
er til að svata að slík dæmi eru vandfundin,
líklega engin. Argentína hætti að borga af
erlendum lánum og gengi pesóans féll um
liðlega 70%. En Argentína er miklu stærra
land en fsland og auðugra af fjölbreytilegum
náttúruauðlindum. Argentínumenn lentu
því ekki beinlínis í skortí, þó að þeir hafi
dregið úr verslun við umheiminn. Einangrun
leiðir alltaf til þess að lífsgæði skerðist. Fáar
þjóðir eru jafnháðar utanríkisverslun og
íslendingar. Bankahrunið varð tíl þess að
lánstraust þjóðarinnar almennt minnkaði
mikið. Áædun AGS hefur miðað að því að
bjarga því sem bjargað verður.
Það er útílokað að hugsa sér að einhverjir
hefðu viljað lána íslendingum ef ekki hefði
legið fyrir áædun af því tagi sem AGS settí
upp. Hún er í sjálfu sér ekki ólík því sem
gert er við fyrirtæki eða einstaklinga til þess
að forða þeim frá þroti. Frumskilyrði er að
eyðslufylliríinu linni. Það er enginn sendur á
Vog með kassa af bjór í ferðatöskunni.
Halli á fjárlögum er einfaldlega uppskrift að
hærri sköttum í ffamtíðinni. Þeir sem halda að
áform um minni fjárlagahalla séu afarkjör em í
besta falli kjánar, í versta falli lýðskrumarar.
Hvað felst í áætlun AGS?
Stjómmálamenn hafa margir talað eins
og AGS hafi tekið öll völd á íslandi. Því
fer þó fjarri. Sjóðurinn hefúr aðeins sett
fram ákveðinn ramma sem settur er fram í
samkomulagi sjóðsins við íslenska ríkið sem
undirritað var í nóvember 2008. Helstu
atriði samningsins voru:
1. Endurreisn bankakerfisins
2. Halli á ríkissjóði hverfi á þremur árum
3. Gengi krónunnar verði stöðugt og
styrkist svo smám saman
4. Verðbólga minnkuð og traust á íslandi
endurheimt
Miðað var við að brúttóskuldir ríkisins
færu úr 29% upp í 109% af landsfram-
leiðslu. Skuldirnar skiptust þá nokkurn
veginn svona samkvæmt áæduninni:
• 385 milljarðar króna vegna
eiginfjáraukningar bankanna
• Um 640 milljarðar vegna Icesave að
frádreginni eign Landsbankans
• Um 500 milljarðar vegna aukningar
á gjaldeyrisvarasjóði (AGS lán +
lánasamningar við nokkur lönd)
• Um 350 milljarða fjárlagahalli alls á
þremur árum
Samkvæmt Peningamálum Seðlabank-
ans liggur hrein skuldastaða ríkissjóðs á milli
55-65% af landsframleiðslu á næsm árum
á meðan hrein skuldastaða hins opinbera
nemur 80-90%. Skuldahlutfallið er vissulega
hátt en alls ekki fordæmalaust í alþjóðlegum
samanburði. Áædað er að hreinar Icesave-
skuldbindingar nemi u.þ.b. 20% af lands-
framleiðslu. Staðan hefúr heldur batnað frá
því sem upprunalega var áædað.
Endurreisn bankanna er langt komin
þó að hún sé talsvert á eftir upprunalegri
áædun. Afar erfiðlega gengur að koma
saman fjárlögum jafnvel þó svigrúm hafi
aukist nokkuð. Vilji og geta til þess að skera
niður útgjöld virðast hvergi nærri næg og
enn eru skatdeysismörk hækkuð, þvert á alla
skynsemi.
Gengi krónunnar hefúr veikst á yfir-
standandi ári þrátt fyrir gjaldeyrishöft.
Þetta hefur orðið til þess að verðbólga hefúr
ekki minnkað jafnhtatt og upprunalega
var áædað og údit var fyrir í upphafi árs. í
viljayfirlýsingunni kemur eftirfarandi fram:
„Brýnasta verkefni Seðlabanka Islands er
að tryggja stöðugleika krónunnar og búa í
haginn fyrir styrkingu gengisins." Þetta brýna
verkefni hefur því ekki gengið fram enn.
Hvers vegna áhersla
áIcesave?
1 áðumefndri viljayfirlýsingu kemur
fram að: „ísland hefur heitið því að virða
skuldbindingar á grundvelli innstæðu-
tryggingakerfisins gagnvart öllum tryggðum
innlánshöfum.“ Hér er ekki sagt hverjar
þessar skuldbindingar eru, en um það er t'
sjálfú sér ekki deilt að Islendingar hafi tekið
á sig skuldbindingar vegna Icesave-reikninga
Landsbankans. Deilan snýst fyrst og fremst
um það með hvaða hætti það verði gert.
Það er algengt að heyra stjórnmálamenn
hneykslast á því að Islendingar séu þvingaðir
til afleitra samninga af vinaþjóðum. Það var
þó fyllilega eðlilegt að krefjast þess að vita
það þegar lán eru afgreidd hver skuldastaðan
raunverulega er. Mistökin við Icesave-
samningana liggja fyrst og fremst í því
hvernig samninganefndin var skipuð. Einnig
hefði verið eðlilegt að óska í samningaferlinu
eftir milligöngu Evrópusambandsins og að
Brússel-viðmiðin svonefndu yrðu virt.
Þjóðin er auðvitað ósátt við að þurfa
að greiða skuldir sem hún stofnaði ekki til.
Hún er hvorki ánægð með vinnubrögðin við
samningana né skilmálana sem náðust. Samt
er það mjög mikilvægt að botn fáist í Icesave-
málin. Með því verður enn einu stórmálinu
færra sem eftir á að leysa. Q
■1 Þjóðin virðist vera Hannes Hólmsteinn j Varð Hafskip í raun A Gekk þjóðin til góðs á
1 stjórnlaus en fer í raun /i Gissurarson ^gáOKASAFÁnWs gjaldþrota. Lárus Jónsson árinu 2009? Höfum við
eftir áætlun AGS sem fjallar uriyá fyrrverandi bankastjóri er lært af mistökunum eða
enginn ber ábyrgð á. skatt ( : Gmíí;íííc ]i;i;q nll Ifni s'4S<ÓLABÓlÍASl0 ékki í vafa. halda þau áfram?
!//
VÍSBENDING • 49 TBL. 2 0 0 9 1