Bæjarblaðið - 14.07.1989, Page 5
Bæjarblaðið frjálst óháð 5
Þvottahöllin
Hafnargötu 30
sími 14994
Miniblet
barnaskór
30% afsláttur
Göngugrindur
frá kr. 3.900.-
Barnabaðborð
frá kr. 9.500.-
Hefurðu farið með þvottinn þinn í höll-
ina? Hvaða höll segirðu kannski og set-
ur upp undrunarsvip. Hér er ekki veriö
að tala um höll eða kastala með síki i
kringum. Alls ekki, heldur er í Keflavík
þvottahús sem heitir Þvottahöllin.
Fulltrúi Bæjarblaðsins kíkti þar í
heimsókn til þess að kynna sér starf-
semina.
Nýstiginn inn fyrir þröskuld hallar-
innar sveif á móti mér ung afgeiðslu-
stúlka.
,,Segðu mér frá Þvottahöllinni bað
ég hana.
Afgreiðslustúlkan dró djúpt að sér
andann og svaraði:
Eigendurnir tóku við fyrir rúmum
tveimur árum og hafa þvegið sleitulaust
síðan. Við þvoum hér fyrir hin ýmsu
fyrirtæki og einnig einstaklinga en þeir
koma hingað með heimilisþvott og
borðdúka fyrir hátíðir. Einnig þvoum
við samfestinga og sloppa sem er gert
við í leiðinni ef beðið er um.
Margar verslanir og skrifstofur nota
sér nýja þjónustu sem Þvottahöllin hef-
ur tekið upp. Það er leiga á gólfmott-
um. Vikulega eða hálfsmánaðarlega er
komið og skipt um gólfmottur, þannig
að ávalt sé hrein motta á staðnum.
Einnig leigjum við út borðdúka í veisl-
•ur.
Nú dró stúlkan aftur að sér andann
og brosti. Fulltrúi Bæjarblaðsins þakk
aði fyrir svarið.
baeinn
TJARNARGÖTU 31a
Rúnar Júll, Tryggvi
og Sara
alla helgina
Mættu í stuðið