Bæjarblaðið - 14.07.1989, Page 9
Bæjarblaðið frjálst óháð 9
Sigurður Sigurösson, Karen Sævarsdóttir og Hilmar Björgvinsson á góóri stund við Gólfskálann í
Leiru. Ljósm.: ELG
Golf:
Siggi og Karen sigruðu
á meistaramótinu
Um síðustu helgi fór fram meistaramót Golf-
klúbbs Suöurnesja i Leirunni. íslandsmeistarinn
Sigurður Sigurðsson sigraði örugglega á 314
höggum og var 11 höggum á undan kollega
sínum Hilmari Björgvinssyni sem varð i öðru
sæti. Páll Ketilsson hreppti þriðja sætið á 326
höggum.
I kvennaflokki sigraði Karen Sævarsdóttir á
339 höggum og hafði mikla yfirburði. Önnur
varð Eygló Geirdal með 393 högg og Gerða
Halldórsdóttir varð í þriðja sæti með 397 högg.
2. deild:
Víðismenn
efstir
— eftir sigur á Ein-
herja frá Vopnafirði
Víðismenn unnu Einherja frá Vopnafirði, 1-0 í
byrjun vikunnar, og fór leikurinn fram i Garð-
inum. Viðir ætlar sér upp í 1. deildina á næsta
keppnistímabili, þvi þeir eru nú í efsta sæti 2.
deildar. Helstu keppinautar þcirra eru Stjarnan,
sem er aðeins einu stigi undir Víðismönnum, og
ÍBV scm er í þriðja sæti með einu stigi undir
Stjörnunni.
Óskar Ingimundarsson gerði sigurmark Víðis
á 31. mínútu með skoti af markteig eftir send-
ingu Ólafs Róbertssonar.
Leikir
vikunnar
14. júlí Keflavíkurvöllur kl. 20.00.
íslandsmót ÍBK-Leiknir 3.0.
18. júlí Þróttarvöllur kl. 20.00.
Bikarkeppni Þróttur-ÍBK
18. júlí KeOavíkurvöllur kl. 19.00.
íslandsmót ÍBK-ÍA 2. 0. kv.
18. júlí Þróttarvöllur kl. 18.00.
íslandsmót Þróttur-ÍBK 5. 0.
19. júlí Keflavíkurvöllur kl. 20.00.
Islandsmót ÍBK-Valur 2. fl.
19. júlí Ármannasvöllur kl. 20.00.
íslandsmót Ármann-ÍBK edlri fl.
19. júlí Þorlákshafnarvöllur kl. 18.30
íslandsmót Þór-UMFN 4. fl.
19. júlí Leiknisvöllur kl. 20.00.
íslandsmót Leiknir-UMFN eldri fl.
20. júlí ÍR völlur kl. 20.00.
íslandsmót ÍR-ÍBK 3. fl.
20. júlí Keflavíkurvöllur kl. 20.00.
íslandsmót ÍBK-Víkingur 1. fl.
Til sölu
Honda Prelude 2000i 16V.
Brún að lit árgerð 1986.
Upplýsingar í síma 13443.
r ""íii "■ Hitaveifa
w Suðurnesja
^ . Bilanasími 13537