Heimilisritið - 01.05.1945, Page 27

Heimilisritið - 01.05.1945, Page 27
skilið mann, sem er eins hreinn og beinn og ég“. HIN STÓRU augu hennar voru aftur orðin mild og svipur- inn lýsti tilbeiðslu. „ Ég skil, Jerry, þú ert guðdómlegur. Þú mátt ekki hlægja að mér, en ég má til með að segja þér það, að þegar ég var lítil lá ég oft vak- andi um nætur, lét mig dreyma um hvernig mann ég vildi óska mér, lofaði sjálfri mér að — að enginn nema hann skyldi fá ást mína. Er það ekki voða barna- legt, Jerry? Veistu, að þú varst maðurinn — það var um þig, sem mig dreymdi allan tímann, þó að ég hefði ekki hugmvnd um að þú værir til“. „Kysstu mig!“ sagði hann. Svo stóð hann upp og leit á flata gullarmbandsúrið sitt. Hann var eirðarlaus og fingraði við sígarettuveski sitt. „Langar þig til að skreppa út og sjá þig svolítið um?“ „í þessum hita? Ekki ég. En skoða þú þig um, ef þú treystir þér til að vera úti í þessum hita, ástin. Ég ætla að blunda aftur“. Hann lagaði hálsbindið á sér fyrir framan litla spegilinn og hagræddi rósinni. Svo veifaði hann til hennar, gekk út og lok- aði hurðinni á eftir sér. Hitinn var óþolandi þegar komið var út úr lestinni. Jerry gekk eftir bráðnu götumalbik- inu spölkorn inn í borgina. Fáir voru á ferli. Hann gekk inn í hressingarskála, þar sem seldir voru svaladrykkir. Inni var svalara. Bak við af- greiðsluborðið stóð stúlka, á að gizka 19 ára gömul. Hún hafði mikið rautt hár og var áberandi falleg í vexti. Hún var í að- skornum, bláum kjól, sem fór henni vel. Jerry virti hana fyrir sér. Hann var ekki annað en við- skiptavinur. Hann studdi oln- bogunum fram á gömlu marm- araborðplötuna. „Eitt glas af sítrónusafa, hjartað'1. Stúlkan kom með drykkinn. Þegar hún rétti honum glasið, leit hún ófeimin framan í hann, hrukkaði ennið ofurlítið og sagði: „Fyrirgefið þér, hef ég ekki séð yður einhversstaðar áð- ur?“ Iiann hló. „Ég er Jerry Starr“. Hinar fagursköpuðu, sterk- rauðu varir hennar opnuðust. „Guð sé oss næstur!“ sagði hún. „Svei mér ef ég held ekki að þér segið satt“. Jerry setti upp alúðlegan, í- smeygilegan svip, sem svo marg- ar höfðu dáðst að, og sagði lágt: „Komið þér hingað“. Hún færði sig nær honum. Hann teygði sig yfir borðið, tók hönd hennar og lyfti henni. HEIMILISRITIÐ 25

x

Heimilisritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.