Heimilisritið - 01.05.1945, Side 47

Heimilisritið - 01.05.1945, Side 47
gefa vígbúnaði Breta nánar gæt- ur. En foringinn þarf ekki að segja nema eitt orð til þess að hann fljúgi þangað með drep- væna sprengjufarma í stað mein- lausra ljósmyndavéla. Ekkert land í heimi er eins varnarlaust fyrir loftárásum og Bretlands- eyjar. —------Þegar þýzki loft- flotinn fer á stúfana fyrir al- vöru, mun hann gera hræðilegri árásir en dæmi eru til í verald- arsögunni“. Kuldi og kolaskortur. Sendi- sveinninn okkar sagði í kvöld, að við værum þrotnir að kolum og við fengjum ekki meira af þeim. Berlín, 1. jan. 1940. Hvað mun þetta ár bera í skauti sínu? Úrslitin, sem Hitler raupaði af í gær? Enn hef ég engan Þjóðverja hitt, sem ekki er fullviss um það, að þessi mála- mynda styrjöld getur ekki vár- að lengi enn. Hitler verður að brjótast áfram til nýrra sigra. Ella hlýtur valdakerfi hans að hrynja. Berlín, 3. jan. 1940. Ég frétti í dag, hvað Rússar hafa lofað að láta Þjóðverjum í té þetta ár. Það er þetta: 1 000 000 smál. af korni og fóð- urvörum. 500 000 smál. af olíufræi. 500 000 smál. af sojabaunum. 900 000 smál. af steinolíu. 150 000 smál. af baðmull, og það er meira en nemur öllum ársútflutningi Rússa árið sem leið. Og auk þessa þriggja milljóna gullmarka virði af leðri og skinnum. Þetta er álitlegt á pappírnum, en ég er hárviss um, að Rússar láta aldrei nema lftinn hluta af því, sem þeir hafa lofað. Opinberlega er tilkynnt, að Göring eigi að hafa algert ein- veldi í fjármálum Þjóðverja meðan á styrjöldinni stendur, en hann hefur lengi haft það í raun og veru. Blöðin eru byrjuð að klifa á „ráðabruggi Breta um á- rásir á Norðurlönd11. Okkur er sagt, að Hitler hafi skipað land- her, lofther og flota að búa sig í skyndi undir að verja Skandi- navíu fyrir Bandamönnum, ef þeir skyldu reyna að fara um hana til hjálpar við Finna gegn Rússum. Bæði landherinn og sjóliðið eru mjög vinveitt Finn- um, en er það ljóst, að verja verður siglingaleiðina til sænsku járnnámanna. Líf Þjóðverja liggur við að missa ekki af sænska járninu. Berlín, 8. jan. 1940. Átti útvarpsviðtal við Ernst Udet hershöfðingja í dag, erx 45 HEIMILISRITIÐ

x

Heimilisritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimilisritið
https://timarit.is/publication/976

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.