Verktækni - 01.02.2008, Side 3

Verktækni - 01.02.2008, Side 3
LEIÐARINN Blaðið VERKTÆKNI er gefið út af Verkfræðingafélagi Íslands, Stéttarfélagi verkfræðinga og Tæknifræðingafélagi Íslands og er dreift ókeypis til félagsmanna. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigrún S. Hafstein. Blaðnefnd: Sveinbjörg Sveinsdóttir (SV), formaður, Árni Þór Árnason (TFÍ) og Ólafur Pétur Pálsson (VFÍ), auk ritstjóra. Leyfilegt er að birta efni úr Verktækni ef heimildar er getið. Skoðanir sem settar eru fram í blaðinu samrýmast ekki endilega viðhorfum útgefenda. Prentvinnsla: Gutenberg · Mynd á forsíðu: Rafn Sigurbjörnsson · Aðstoð við útgáfu: Hænir · Sími: 55 88 100 · utgafa@utgafa.is Engjateigi 9 · 105 Reykjavík Sími: 568 8510 · Símbréf: 568 9703 · Tölvupóstur: sigrun@vfi.is · sigrun@tfi.is V E R K T Æ K N I Kröfur um menntun Í þessu tölublaði Verktækni er grein eftir Bergþór Þormóðsson, formann TFÍ þar sem hann fjallar um mennt­ unarkröfur félaga tæknifræðinga og verkfræðinga. Tilefni greinarinnar er að TFÍ og VFÍ hafa á síðustu mánuðum borist umsóknir frá nýútskrifuðum nemendum frá Danmörku, sem telja sig uppfylla skilyrði til að kalla sig tækni­ fræðing eða verkfræðing en svo reyn­ ist ekki vera. Á prófskírteinum segir að viðkomandi hafi lokið prófi sem „diplomingeniør“ eða „civilingeniør“. Við nánari eftirgrennslan hefur komið í ljós að námið uppfyllir ekki þau skilyrði sem gilda hér á landi varðandi notkun á starfsheitunum sem eru lögvernduð. Ástæðan er sú að námið inniheldur ekki nægilegan fjölda eininga í und­ irstöðugreinum tæknifræðinnar og verkfræðinnar, þ.e. eðlisfræði, stærð­ fræði og efnafræði. Ef til vill þarf að koma því á framfæri við námsráðgjafa, þá sérstaklega í fram­ haldsskólum, hvaða reglur gilda um starfsheitin og að það er nokkur munur á því námi sem í boði er, þó titillinn á prófskírteinunum sé sá sami. Það sem snýr að ímynd, mennt­ un og faglegri þekkingu hefur veruleg áhrif á kjaralega hagsmuni. Tæknifræðingafélag Íslands og Verkfræðingafélag Íslands hafa alla tíð lagt metnað sinn í að standa vörð um gæði náms í tæknifræði og verkfræði, enda er það talinn liður í að gæta hags­ muna félagsmanna á sem breiðustum grundvelli. Í ljósi þeirrar stöðu sem komin er upp telja félögin nauðsynlegt að ræða málin heilstætt og stefna að því að boða til ráðstefnu um mennt­ unarmál verkfræðinga og tæknifræð­ inga næsta haust. Nýir vefir VFÍ og TFÍ eru nú loksins að komast á koppinn eftir umtalsverðar tafir á uppsetningu. Félagsmönnum verður sent bréf með leiðbeiningum og lykilorði og ég vil hvetja þá að skoða vefina og koma með ábendingar um það sem betur má fara. Nýr vefur SV er í farvatninu og verður tekinn í notkun innan tíðar. Sigrún S. Hafstein, ritstjóri. Aðalfundur VFÍ Aðalfundur Verkfræðingafélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 26. mars nk. í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Með vísan til 25. greinar félagslaga VFÍ er hér með aug­ lýst eftir tillögum félagsmanna, en þær þurfa að hafa borist stjórninni fyrir 15. febrúar nk. Úr stjórn eiga að ganga Ólafur Pétur Pálsson, Eysteinn Einarsson og Gísli Pálsson. Gísli hefur setið eitt kjörtímabil og eru því kjörgengur. Aðalfundur KTFÍ Aðalfundur Kjarafélags Tæknifræðingafélags Íslands verður haldinn fimmtudaginn 27. mars nk. í Verkfræðingahúsi, Engjateigi 9. Fundurinn hefst kl. 17:00. Tillögur sem á að taka fyrir á fundinum þarf að senda út með fundarboði með viku fyrirvara. Aðalfundur TFÍ Aðalfundur Tæknifræðingafélags Íslands verður haldinn föstudaginn 31. mars nk. í Verkfræðingahúsi að Engjateigi 9. Með vísan til 13. greinar félagslaga TFÍ er félags­ mönnum bent á að tillögur sem þurfa samþykki aðalfundar, skulu hafa borist félaginu fyrir 15. febrúar nk. Aðalfundur SV Aðalfundur Stéttarfélags verkfræðinga verður haldinn fimmtudaginn 3. apríl nk. í Verk­ fræðingahúsi, Engjateigi 9. Á dagskrá fundarins verða hefðbundin aðalfundarstörf. Til lögur sem á að taka fyrir á fundinum þarf að senda út með fundarboði með viku fyrir­ vara. Snjóflóðavarnir, umhverfi og samfélag International Symposium on Mitigative Measures against Snow Avalanches. Verkfræðingafélag Íslands og Tæknifræðingafélag Íslands munu standa fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um snjóflóðavarnir, umhverfi og samfélag á Egilsstöðum dagana 11. – 14. mars 2008. Auk félaganna standa að ráðstefnunni: Umhverfisráðuneytið, Veðurstofa Íslands, Vegagerðin, Landsnet og Skipulagsstofnun. Vefur ráðstefnunnar: http://www.orion. is/snow2008/ BNAM 2008 Dagana 17.­ 19. ágúst 2008 verð­ ur haldin í Reykjavík hljóðráðstefnan BNAM 2008 (Baltic­Nordic Acoustics Meeting). Þar munu hljóðsérfræðingar frá Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum bera saman bækur sínar. Ráðstefnan er haldin á vegum norrænu fagfélaganna annað hvert ár. Eystrasaltslöndin hafa átt aðild að henni síðastliðinn áratug. Ráðstefnan, sem haldin verður næsta haust, er skipulögð af félagi um hljóð­ hönnun sem starfar sem faghópur innan vébanda VFÍ og TFÍ. Í undirbúnings­ nefndinni eru verkfræðingarnir Steindór Guðmundsson, Bergþóra Kristinsdóttir og Sigurður Karlsson. Þess má geta að fag­ hópurinn var stofnaður í september 2006 og er opinn öllum sem hafa áhuga á hljóð­ hönnun og hljóðvist. Hægt er að skrá sig á póstlista faghópsins hjá skrifstofu VFÍ. Vefur ráðstefnunnar http://www.bnam2008.com. Tölvupóstföng Félagsmenn eru hvattir til að senda upp­ lýsingar um tölvupóstföng sín til skrifstofu félaganna vfi@vfi.is, tfi@tfi.is og sv@sv.is. Þeir sem það vilja eru settir á póstlista og minntir sérstaklega á viðburði á vegum félaganna.

x

Verktækni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.