Verktækni - 01.02.2008, Síða 10
10 / FRUMKVÖÐLAR
Menntunarkröfur félaga
tæknifræðinga og verkfræðinga
Mikil gerjun er í menntun tæknimanna á
háskólastigi bæði hér á landi og erlendis.
Dæmi eru um nýjar og áhugaverðar tækni
tengdar greinar við háskólana í nágranna
löndum okkar sem ekki eru þekktar hér á
landi. Margir Íslendingar sækja menntun
sína til þessara landa og vonast til að
námið verði viðurkennt af viðkomandi fag
félagi þegar heim er komið. Starfsheitin
tæknifræðingur og verkfræðingur eru
lögvernduð starfsheiti samkvæmt lögum
nr. 8 frá 11. mars 1996. Einstaklingar sem
lokið hafa námi við viðurkennda háskóla
sækja um til ráðuneytis umhverfismála
um að fá að nota annað hvort starfsheitið.
Ráðuneytið sendir umsóknirnar til félag
anna og þar er fjallað um þær af annars
vegar Menntunarefnd TFÍ og hins vegar
Menntamálanefnd VFÍ.
Á undanförnum misserum hafa fleiri
umsóknir en áður borist frá einstaklingum
sem í góðri trú sækja um starfsheiti en í
ljós kemur að þeir uppfylla ekki skilyrði
félaganna varðandi notkun á starfsheit
unum. Menntanefndirnar miða úrskurði
sína við þær reglur sem félögin hafa sett
um fjölda eininga í undirstöðugreinum
tæknifræðinnar eða verkfræðinnar.
Þetta veldur umsækjendum nokk
urri undran því á prófskírteinum eru þeir
Einfalt
og gott.
NI CompactDAQ
USB tölvutengd mælikerfi
Nýtt, nú yfir
30 mælieiningar
Nýr NI LabVIEW síritunar-
hugbúnaður innifalinn
Háhraða USB tenging
fyrir meir en 5 MS/s
gagnastraum
Smágert, aðeins
25x9x9 cm að stærð
Tilvalið í kennslustofuna
og í verklegar æfingar
© 2007 National Instruments Corporation. All rights reserved.
LabVIEW, National Instruments, NI, ni.com, and NI CompactDAQ
are trademarks of National Instruments. Other product and
company names listed are trademarks or trade names
of their respective companies. 8584-999
>>Við höldum námskeið
í mælitækni
Fáið meiri upplýsingar hjá
ni.com/compactdaq/new
Verkfræðistofan Vista
Höfðabakka 9c 110 R
www.vista.is • vista@vista.is
s. 587 88 89
Þjónustuaðili á Íslandi:
2007-8584-999-I.indd 1 3/22/2007 8:47:21 AM
annað hvort sagðir hafa lokið prófi sem
„diplomingeniør“ eða „civilingeniør“
(tæknifræðingur eða verkfræðingur).
Skýringin á þessum mismun er væntanlega
sú að í Danmörku eru þessi fagheiti ekki
lögvernduð. Háskólarnir þurfa að uppfylla
ákveðin skilyrði um námseiningar til að
geta útskrifað nemendur með starfstitilinn
„diplomingeniør“ eða „civilingeniør“ og
eru þær námseiningar aðrar en félögin á
Íslandi styðjast við sem undirstöðugreinar.
Nú er farin af stað umræða innan félaga
tæknifræðinga og verkfræðinga þar sem
leitast verður við að svara því fyrir hvað
verkfræðingar og tæknifræðingar standa
á vinnumarkaði. Hverjar eru væntingar
vinnuveitenda gagnvart þeirri þekkingu og
hæfni sem tæknifræðingar og verkfræðing
ar hafa menntað sig til? Til hvers er ætlast
af tæknifræðingum og verkfræðingum á
vinnumarkaðinum?
Áður en þessum spurningum verð
ur svarað get ég ekki annað en hvatt
ungmenni sem hyggjast hefja nám við
tækniháskóla í Danmörku eða í öðrum
löndum, að leita til félaganna og fá úr því
skorið hvort námið sé viðurkennt af fag
félögum tæknifræðinga og verkfræðinga.
Bergþór Þormóðsson, formaður TFÍ.
Vísinda- og starfsmenntunarsjóður
hjá Ríki
Umsóknir eru teknar fyrir á stjórnarfund
um sem haldnir eru reglulega. Næsti
fundur verður þriðjudaginn 11. mars
n.k. Umsóknareyðublöð má nálgast á
heimasíðu SV (www.sv.is). Valin er stikan
Vísindasjóður, vinstra megin.
Undanfarin ár hefur álíka mikið verið
greitt í sjóðinn og greitt hefur verið úr
honum. Það er því rík ástæða að hvetja
sjóðfélaga til að sækja um styrki.
Hægt er að sækja um styrki sem nema
allt að kr. 390.000. Meðal annars eru
veittir styrkir til tölvukaupa. Skilyrt er að
minnst fjögur ár líði á milli styrkveitinga
til tölvukaupa sem eru að að hámarki
kr.130.000. Styrkir eru veittir til að sækja
námskeið og ráðstefnur, til kaupa á
bókum o.fl.
Sjóðir SV
Starfsmenntunarsjóður hjá
Reykjavíkurborg og sveitarfélögum
Umsóknir eru afgreiddar á stjórnarfund
um sem haldnir eru reglulega. Næsti
fundur verður föstudaginn 7. mars nk.
Upphæð hámarksstyrkja er kr. 390.000.
Réttindi aukast um kr. 130.000 á ári ef
ekki er greiddur styrkur en verða ekki
meiri en kr. 780.000.
Sjóðfélagar eru sérstaklega hvattir til að
sækja um styrki til endurmenntunar enda
er hún ein af mikilvægustu þáttunum í
sókn til hærri launa.
Vakin er athygli á því að þeir verkfræð
ingar sem starfa hjá sveitarfélögum sem
gefa Launanefnd sveitarfélaga umboð til
samninga við SV eiga aðild að sjóðnum.
Umsóknareyðublöð má nálgast á
heimasíðu SV: http://www.sv.is/. Valin
er stikan Starfsmenntunarsjóður vinstra
megin.
Styrkir eru veittir til að sækja námskeið
og ráðstefnur, til kaupa á bókum, tölvum
o.fl. Upphæð tölvustyrkja er að hámarki
kr.130.000.