Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.06.2013, Page 2

Fréttatíminn - 21.06.2013, Page 2
GRILL OG GARÐHÚSGÖGN SEM ENDAST BERIÐ SAMAN VERÐ OG GÆÐI Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400 VELDU GRILL SEM EN DIST OG ÞÚ SPARA R 49.900 Kraftmikið, meðfærilegt og frábærlega hannað gasgrill fyrir heimilið eða í ferðalagið Frábært á svalirnar eða á veröndina www.grillbudin.isOpið kl. 11 - 18 virka dagaOpið kl. 11 - 16 laugardaga  Fjarskipti Hátt í 50 þúsund manns með já-appið í símanum sínum Já rukkar milljónir á mánuði fyrir smáforrit Já-appið er eitt vinsælasta íslenska appið í snjallsíma. Með því getur fólk séð hver er að hringja í það og flett upp í símaskrá. Ekkert kostar að hala appinu niður en þegar notendaskilmálarnir eru lesnir kemur í ljós að mánaðargjald fyrir notkun þess er 169 krónur. á stæðan fyrir því að við rukkum gjald fyrir appið er kostnaðurinn, að sjálfsögðu kostar að þróa svona snilldarlausnir,“ segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já. Fyrirtækið býður viðskiptavinum sínum að hala niður smáforriti í snjallsíma, svokölluðu Já-appi, sér að kostnaðarlausu. Í notendaskilmálum appsins kemur hins vegar fram að mánaðargjaldið sé 169 krónur. „Gjaldfært er fyrir notkun nafna- birtis í hverjum mánuði af hálfu fjarskiptafélags notanda. Gjald er innheimt við fyrstu uppflettingu í hverjum mánuði,“ segir í notenda- skilmálunum þegar forritinu er halað niður og vísað í gjaldskrá á vefsíðu fyrirtækisins. Þar segir: „Þegar forritið er sótt og notað er aðeins greitt samkvæmt gjaldskrá símafyrirtækjanna, en enginn við- bótarkostnaður leggst á frá hendi Já til að notendur geti athugað virkni forritsins. Fyrsti mánuður í notkun er án endurgjalds. Ef þú velur að hafa forritið virkt þá kostar þjón- ustan 169 kr. á mánuði. Gjaldfært er í hverjum mánuði sem þjónustan er virk. Gjald er innheimt við fyrstu uppflettingu í hverjum mánuði að prufumánuði loknum.“ Talsverð umræða spannst í síðustu viku um gjaldtöku Já eftir frétta- flutning DV. Þar var greint frá því að eitt símtal í 118 kosti minnst 160 krónur. Jafnframt kom þar í ljós að arðgreiðslur til hluthafa Já síðustu fjögur árin nema um 900 milljónum króna. Sigríður Margrét segir að Já-appið sé eitt af vinsælustu íslensku snjall- símaforritunum. „Þetta var eitt af fyrstu öppunum sem íslenskt fyrir- tæki gaf út. Við erum mjög stolt af því að geta boðið upp á þessa þjónustu. Það hafa hátt í 50 þúsund manns sótt sér forritið í Android- síma en því miður er það ekki í boði fyrir þá sem eru með iPhone. Það er eitt helsta umkvörtunarefnið sem við fáum,“ segir hún. Sigríður tekur fram að fólk borgi bara mánaðargjald fyrir appið ef það er í notkun. Það geti valið að slökkva á þjónustunni kjósi það svo. Hún vill ekki gefa upp hversu margir notendur greiða Já 169 krónur á mánuði að jafnaði. Ekki er því hægt að finna nákvæmlega út hvað fyrirtækið fær í kassann um hver mánaðarmót fyrir það. Hins vegar er ljóst að sú upphæð hleypur á milljónum króna. Forstjórinn boðar hins vegar fleiri slík öpp í fram- tíðinni: „Við viljum halda áfram á þessari braut og bjóða upp á fjölmörg fleiri öpp. Þetta er þjónusta sem við vitum að er eftirspurn eftir.“ Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já, segir eðlilegt að fyrirtækið rukki 169 krónur á mánuði fyrir Já-appið enda hafa fyrirtækið lagt í kostnað við gerð appsins. Tugþúsundir hafa náð sér í appið. Við erum mjög stolt af því að geta boðið upp á þessa þjónustu.  ungbörn erFitt að brúa bilið Frá lokum FæðingarorloFs þar til leikskólavist býðst Daggæslu sárvantar í sumum hverfum borgarinnar Það fer eftir hverfum hversu erfitt er fyrir foreldra í Reykjavík að brúa bilið á tímanum milli þess sem fæð- ingarorlofi lýkur og þangað til að vistun býðst hjá leikskólum Reykja- víkur en samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands eru 1.780 börn á 1. aldursári í Reykjavík. Ung móðir í Vesturbænum hóf leit að dagforeldri í janúar 2013 en fékk svör um að dagforeldrar væru að fylla haustið 2014. Einnig virðist það fara eftir hverfum hversu dýr gæslan er. Dæmi er um að dagforeldri í Ár- bænum kosti um 44 þúsund krónur á meðan dæmi er um að dagforeldri í Vesturbænum kosti í kringum 60 þúsund. Katrín Ólafsdóttir býr í Vestur- bænum en hefur verið að leita að dagforeldri síðan í nóvember en hefur ekki enn fundið neitt, þó að hún hafi leitað í öðrum hverfum. Þegar hún hóf leitina í janúar 2013 fyrir haustið sama ár, voru þeir dag- foreldrar sem hún ræddi við komnir langleiðina með að fylla haustið 2014. Fékk hún þau svör hjá dagforeldrum að gengi maður með fyrsta barn ætti leitin að byrja um leið og maður væri komin af stað, sama gilti um ung- barnaleikskólana. Dagforeldrar ákvarða sína gjald- skrá sjálfir og engar samræmdar reglur virðast vera um það í hvaða röð börn fá vistun, hvort það fari eft- ir fæðingardegi eða hjúskaparstöðu foreldra. Sigrún Edda Lövdal, formaður Barnsins, félags dagforeldra í Reykja- vík, segir vandamálið með þessi hverfi ekki nýtt heldur hafi skortur- inn verið til staðar í áratugi. Sigrún segir að Reykjavíkurborg hafi reynt að fá fleiri til að starfa við daggæslu í þessum hverfum en að það hafi gengið erfiðlega. Einnig segir Sig- rún að mikil óvissa ríki á hverju vori um hversu mörg börn komast inn hjá leikskólum Reykjavíkur sem trufli verulega þær áætlanir sem dagfor- eldrar hafa gert áður en þeir fara í sumarfrí, megi þá óvissu að miklu leyti rekja til þess að Reykjavíkur- borg vilji ekki með nokkru móti til- einka sér þau vinnubrögð sem stjórn Barnsins hefur ítrekað óskað eftir. María Elísabet Pallé maria@frettatiminn.is Katrín Ólafsdóttir hefur leitað að dagfor- eldri síðan í nóvember, án árangurs. Ljósmynd/Hari Tollverðir lögðu hald á 20 kíló af skartgripum Tollverðir lögðu hald á nær tuttugu kíló af skartgripum, sem erlendur karlmaður er kom með Norrænu hingað fyrr í þessum mánuði, hugðist koma inn í landið. Um var að ræða hálsmen, hringa og armbönd. Maðurinn var á ferð ásamt þremur öðrum og hafði fólkið falið varninginn í bifreiðum sínum sem það flutti með Norrænu hing- að. Tollafgreiðsla ferjunnar stóð yfir þegar fjórmenningarnir, tveir karlmenn og tvær konur á aldrinum frá þrítugu til rúmlega fertugs mættu til afgreiðslu í græna hliðið. Við leit í bifreiðum þeirra fundust skart- gripirnir, á sjöunda hundrað stykki. Um var að ræða skart sem virtist úr gulli eða gull- húðað, en reyndist vera úr messing. Leikur grunur á að fólkið hafi ætlað að koma því í verð hér. En þar sem skartgripunum var ekki framvísað, eins og skylt er samkvæmt gildandi lögum og reglum, og verðmæti þeirra umfram tollfrjálsar heimildir var hald lagt á varningurinn. -eh Stevía framleidd í Hafnarfirði Ísland mun verða framleiðslu- og dreif- ingarmiðstöð fyrir stevíusætu til ESB-ríkja og Bandaríkjanna nái áætlanir Via Health í Hafnarfirði fram að ganga. Stevíuver Via Health var opnað í Gjótuhrauni í Hafnarfirði á fimmtudag en þar var vatns- veita bæjarins áður til húsa. Stevíusæta er 100 til 300 sinnum sætari en sykur, en er kaloríulaus með öllu, hefur ekki áhrif á blóðsykur og veldur ekki tannskemmdum. Vaxandi spurn er eftir Stevíu, bæði til almennrar neyslu og í matvælaframleiðslu svo sem í drykki og mjólkurvörur. Þegar er hafin dreifing á innfluttum stevíuvörum frá Kína en framleiðsla hefst í Hafnarfirði í næsta mánuði. -hdm Borgarstjóri hlaut og veitti verðlaun Jón Gnarr hlaut í gær, borgarstjóri Reykjavíkur, alþjóðleg hvatningarverðlaun Friðarhlaupsins samkvæmt því er kemur fram á vef Reykja- víkurborgar. Á opnunarathöfn hlaupsins veitti Salil Wilson, skipuleggjandi Friðarhlaupsins, Jóni verðlaunin fyrir einlægan áhuga hans og þrotlausa vinnu í þágu friðar. Desmond Tutu, Vigdís Finnbogadóttir og Carl Lewis eru meðal þeirra sem áður hafa hlotið verðlaunin. „Við getum ekki breytt fortíðinni, en við getum haft mjög mikil áhrif á framtíðina og það er einmitt það sem þið eruð að gera núna,“ sagði Jón við hlauparana. Sama dag veitti borgarstjórinn Ólafi Ólafssyni, Reykvíkingi ársins 2013, viðurkenningu. Ólafur er einn af stofnfélögum Aspar sem er íþróttafélag fatlaðs og þroskahamlaðs fólks og hefur sinnt formennsku í félaginu óslitið í þrjátíu og eitt ár. Þeir Jón og Ólafur opnuðu Elliðaárnar saman í gærmorgun í sumarblíðu og tók það Ólaf aðeins tvær mínútur að veiða vænan lax í Fossinum og var það hans fyrsti lax. - dhe 2 fréttir Helgin 21.-23. júní 2013

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.