Fréttatíminn


Fréttatíminn - 21.06.2013, Blaðsíða 14

Fréttatíminn - 21.06.2013, Blaðsíða 14
Fitul’til og pr—teinr’k . . . … og passar með öllu www.ms.is H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA E inkar fá – ef nokkur – dæmi eru um að ríkisstjórn hafi farið jafnilla af stað og núverandi ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks sem hefur á örfáum dögum tekist að fá tugþúsundir manna upp á móti sér með fyrirhugaðri lækkun veiðigjalds. Undirskriftasöfnun gegn lækkun veiðileyfagjalds náði fádæma undirtektum. Á tveimur sólarhringum söfnuðust 27 þúsund undirskriftir sem er þrefalt fleiri en á fyrstu tveimur sólarhring- um Icesave undirskriftasöfnunarinnar. Útlit er fyrir að undirskriftirnar fari vel yfir 30 þúsunda markið – sem forseti setti með því að synja fjölmiðlalögunum svokölluðu stað- festingar árið 2004 þegar hann sagði að gjá hefði myndast milli þings og þjóðar. Með sama hætti má segja að sú gjá hafi opnast að nýju – og þá má spyrja hvort forsetanum sé stætt á öðru en synja lögunum staðfestingar og senda þau í þjóðaratkvæðagreiðslu. Áskorun undirskriftasöfnunarinnar er hins vegar beint til Alþingis – og forsetans til vara. Skorað er á Alþingi að falla frá hug- myndum um lækkun veiðigjaldsins. Sjávar- útvegsráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, hefur brugðist ókvæða við og sagt óbeint að þá verði engin veiðigjöld. Ekki sé hægt að leggja á veiðigjöld samkvæmt núgild- andi lögum – og því sé nauðsynlegt að breyta þeim. Um er að ræða tæknilega útfærslu laganna og Árni Páll Árna- son, formaður Samfylkingarinnar, hefur tekið undir að nauðsynlegt sé að breyta. Hins vegar kallar breyting á tæknilegri útfærslu laganna ekki á að veiðigjöldin séu lækkuð samhliða, líkt og ríkisstjórnin hefur boðað og er þar með að drepa málinu á dreif. Vel er hægt að breyta lögunum þannig að framkvæmanlegt verði að leggja á hið sérstaka veiðigjald sem um er að ræða – án þess að lækka það frá því sem núgildandi lög segja fyrir um. Það er ekki spurning. Á málatilbúnað sjávarútvegsráðherra má því líta sem tilraun til að slá ryki í augu fólks, dulbúna hótun um að annað hvort fái ríkis- stjórnin að ráða – eða hið sérstaka veiði- gjald verði fellt niður algerlega. Slík hótun er ekki líkleg til að falla í góðan jarðveg en fjöldi fólks hefur með viðtökum við undir- skriftasöfnuninni sýnt skýran vilja til þess að veiðigjöldin verði með þeim hætti sem fráfarandi ríkisstjórn – og Alþingi – sam- þykkti. Á annað þúsund mótmæltu á fyrstu dögunum Fleiri mál hafa vakið óánægju almenn- ings nú á fyrstu dögum ríkisstjórnarinnar en veiðigjaldið. Þau eru misveigamikil – en mörg sérstaklega klaufaleg og benda til þess að hin nýja ríkisstjórn muni falla í sömu gryfju og fráfarandi ríkisstjórn, sem átti í einstaklega vondu sambandi við þjóð- ina og tókst mjög illa að skynja þjóðarand- ann í mörgum þeirra stóru mála sem hún setti fram. Einungis fimm dögum eftir að ný ríkis- stjórn tók til starfa safnaðist á annað þúsund manns fyrir utan stjórnarráðið með græna fána og afhenti aðstoðarmanni forsætis- ráðherra umsagnir um rammaáætlun sem ríkisstjórnin hafði tilkynnt að ætlun- in væri að breyta. Ummæli forsætisráðherra í kjölfar aðgerðar umhverfisverndarsinna vöktu reiði og var hann sagður gera lítið úr lýðræðinu þegar hann sagði að athugasemd- irnar fjögur hundruð væru í raun ein og sama athugasemdin því þær væru allar eins orðaðar. Sú ákvörðun menntamálaráðherra, að stjórn RÚV skuli skipuð pólitískt þvert á breytingu síðustu ríkisstjórnar, vakti and- stöðu og þótti til marks um áherslur nú- verandi stjórnarflokka og minningar um hið gamla helmingaskiptafyrirkomulag sömu flokka á árum áður. Einnig skipaði sami ráð- herra einungis samflokksmenn sína í stjórn LÍN – og stjórnarformanninn hinn nafn- togaða Jónas Fr. Jónsson, fyrrum forstjóra Fjármálaeftirlitsins, sem hefur verið legið á hálsi fyrir að bregðast allverulega á ögur- stundum í aðdraganda hrunsins. Fjármálaráðherra vakti reiði og undrun með ummælum sínum um ný lög um ókeypis tannlækn- ingar barna þegar hann sagði að ástæða væri til að endurskoða. Á sama tíma var til- kynnt um fyrirhugaða lækkun veiðigjalds – sem varð til þess að óhjákvæmilega voru þessi tvö mál sett í samhengi: lækkun gjalda á útgerðina en hækkun gjalda barnafólks. Nánast í sömu andrá og ríkisstjórnin stóð í ströngu að verja ákvörðun sína um fyrirhugaða lækkun veiðigjalds kom fram B.A. ritgerð nýútskrifaðs stjórnmálafræði- nema, Harðar Unnsteinssonar, sem sýndi fram á með tölum frá Ríkisendurskoðun að stjórnarflokkarnir tveir, Framsóknarflokkur og Sjálfstæðisflokkur hefðu á árunum 2008- 2011 fengið rúmlega tífalt hærri fjárframlög frá fyrirtækjum tengdum sjávarútvegi en allir aðrir flokkar til samans. Kvennastéttir fengu kveðju Bjarni Benediktsson beit síðan höfuðið af skömminni á sjálfan kvenréttindadaginn, 19. júní þegar hann sagði í umræðum á Al- þingi að ekki væri rými til aukinna fjárveit- inga vegna jafnlaunaáætlunar fyrri stjórn- valda sem samþykktu undir lok síðasta kjörtímabils. Jafnlaunaáætlunin er tæki sem ætlað er að hækka laun kvennastétta á borð við hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða en hjúkrunarfræðingar nutu mikils stuðnings almennings í launadeilu sinni síðasta vetur. Þá hefur Framsóknarflokkurinn verið gagnrýndur fyrir að hafa gengið á bak orða sinna í kosningabaráttunni þar sem flokkurinn lofaði að ráðist yrði í skuldaniðurfellingu strax. Í stað þess að boða umsvifalausar aðgerðir var málið sett í nefndir sem eiga að skoða málið og sumar hverjar að skila niðurstöðu í nóvember. Lágt hlutfall kvenna í ríkisstjórn og nefndum þingsins vakti einnig gagnrýni. Konur reyndust í minnihluta í öllum nefnd- um nema tveimur og er hlutfall kynjanna mjög misjafnt eftir málaflokkum nefnda. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson komst ekki vel frá umræðum málið þegar hann sagði að það væri „auðvitað miklu skemmti- legra“ að hafa jafnari kynjaskiptingu. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is Engin óskabyrjun Fáum ríkisstjórnum hefur tekið á jafnstuttum tíma og ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar að fá fólk upp á móti sér. Fádæma undirtektir við undirskriftasöfnun gegn boðaðri lækkun veiðigjalds eru skýr sönnun þess að annað hvort er ríkisstjórninni slétt sama um almenningsálitið eða hún hlustar ekki. Stefnuyfirlýsing nýrrar ríkisstjórnar kynnt Ný ríkisstjórn tekur við Mótmæli umhverfisvern- arsinna við stjórnarráðið Alþingi sett Forsætisráðherra kynnir skipan nefnda um skuldaniðurfellingu í stefnuræðu sinni á Alþingi Menntamálaráðherra tilkynnir um breytingu á skipan í stjórn RÚV Fjármálaráðherra segist þurfa að endurskoða lög um tannlækningar barna Menntamálaráðherra skipar Jónas Fr. og aðra samflokksmenn í stjórn LÍN Frétt um styrki sjávarútvegsfyrirtækja til stjórnarflokkanna Undirskriftasöfnun gegn lækkun veiðigjalds hrint af stað Fjármálaráðherra segir ekki rými til að hækka laun hjúkrunarfræðinga 22 . mAí 23 . m Aí 28 . m Aí 6 . júní 10. júní 1 2 . júní 1 3 . júní 1 4. júní 16 . júní 17. júní 19. júní 28. maí 10. júní 12. júní 13. júní 14. júní 17. júní 19. júní 22. maí-21. júní 14 fréttaskýring Helgin 21.-23. júní 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.