Fréttatíminn - 21.06.2013, Síða 9
Í öllum fyrirtækjum þar sem ég þekki til er mikið lagt upp úr því að ráða konur en þær eru bara svo fáar í þessu fagi,“ segir
Torfi Markússon, ráðgjafi hjá ráðgjafa- og
ráðningafyrirtækinu Intellecta. Torfi hefur
um tuttugu ára reynslu að baki við ráðningar
til fyrirtækja á sviði upplýsingatækni. Áður
er Torfi hóf störf hjá Intellecta fyrir þremur
árum var hann starfsmannastjóri TM Softw-
are og dótturfyrirtækja í áratug og starfaði
þar áður lengi sem ráðningastjóri hjá Ráð-
garði. „Ef maður veit um konu með menntun
í tölvunarfræði eða aðra háskólamenntun á
sviði upplýsingatækni þá bjóðast henni nær
undantekningarlaust áhugaverð störf. Það er
mjög sérstakt hvað það eru fáar konur sem
fara í háskólanám á sviði upplýsingatækni,“
segir hann. Yfir helmingur háskólanema í dag
eru konur en í upplýsingatækni eru þær að-
eins milli tíu og fimmtán prósent. „Mér finnst
það merkilegt því á þessu sviði eru mörg
atvinnutækifæri. Upplýsingatæknin er einnig
fag sem alltaf er hægt að byggja ofan á og
þannig nýtast sem grunnur fyrir önnur störf.
Störf í upplýsingatækni eru yfirleitt verðmæt
og bjóða upp á mikla möguleika,“ segir hann.
Þriggja barna móðir
Arnheiður Guðmundsdóttir er framkvæmda-
stjóri UTmessunnar sem haldin er reglulega
til að auka áhuga almennings á upplýsinga-
tækni og mikilvægi hennar á öllum sviðum
daglegs lífs en einnig til að
sjá marktæka fjölgun nem-
enda sem velja tæknigrein-
ar í háskólum landsins. „Í
gegn um árin hef ég aldrei
fundið fyrir því að það sé
öðruvísi að vera kona í
þessum geira. Konur vinna
sömu verkefni og karlar
og fá sömu laun. Stundum
hafa þær aðra sýn á verk-
efnin en það er þannig á
öllum sviðum,“ segir hún.
Arnheiður er menntaður
kerfisfræðingur frá Dan-
mörku, með MBA-gráðu
frá Háskóla Íslands. Hún vann á Landspítal-
anum og Skýrr við hugbúnaðargerð í tæpan
áratug og tók þá við sem yfirmaður hugbúað-
arþróunar. Síðustu fjögur árin hefur hún verið
framkvæmdastjóri Skýrslutæknifélagsins.
„Ég held að það sé ekkert í tölvugeiranum
sem ætti að hamla því að konur séu þar til
jafns við karla. Ég er sjálf búin að eignast og
ala upp þrjú börn á meðan ég hef starfað á
þessum vettvangi. Störfin bjóða upp á mikinn
sveigjanleika og hægt að vinna heiman frá
sér, allavega að hluta. Sérstaklega á það við
um forritara sem fá þá skömmtuð verkefni.
Auðvitað koma samt álagstímar eins og í
öðrum störfum,“ segir Arnheiður. Hún nefnir
sem dæmi að í fjölskyldu hennar sé hjúkr-
unarfræðingur, í þeirri miklu kvennastétt, og
sú kona eigi mun erfiðara með að bregðast við
þegar barnið hennar veikist, til að mynda.
Hluti af UTmessunni er að kynna tölvu-
geirann fyrir ungu fólki. Arnheiður telur
að sumar konur séu hreinlega hræddar við
tölvur og því hræði nafn fagsins þær frá. „Mín
tilfinning er að ef þetta héti upplýsingafræði
eða hugbúnaðarfræði þá myndu konur frekar
sækja um. Ég lærði sjálf kerfisfræði en ekki
tölvufræði. Það var eitthvað við orðalagið sem
mér fannst henta mér betur en í grunninn er
þetta sams konar nám,“ segir hún.
Óska sérstaklega eftir konum
Torfi telur að ímynd fagsins eigi mögulega
þátt í að fæla konur frá. „Sumar stelpur halda
að tölvunarfræðingar séu bara einhverjir
nördar. Ég hef talað við nokkrar stelpur í
faginu og það var ein skýringin sem þeim
datt í hug. Samkvæmt ímyndinni eru þetta
eintómir sérvitringar sem skortir félagsfærni.
Það er auðvitað alls ekki rétt,“ segir hann.
Torfi leggur til að upplýsingafyrirtæki sem
og tölvudeildir stærri fyrirtækja taki að sér
starfskynningar fyrir ungt fólk, jafnvel í 10.
bekk, þar sem það getur heimsótt vinnustaði
og séð að þar er flott fólk að vinna. „Ég veit
ekki um neitt fyrirtæki sem ekki vill auka
hlut kvenna á þessu sviði. Þegar leitað er að
nýju fólki er oft tekið fram að þeir vilji gjarnan
fá konu en það þýðir ekkert að binda sig við
það vegna þess hversu fáar
konur eru í faginu. Flest
fyrirtæki gera kröfu um há-
skólamenntun þegar verið
er að ráða sérfræðinga og
þau eru því að keppa um
nýútskrifaða tölvunarfræð-
inga og aðra sem útskrif-
ast með háskólamenntun á
þessu sviði. Það er synd að
fleiri stelpur skuli ekki velja
sér nám á þessu sviði því
möguleikarnir eru margir,“
segir Torfi.
Arnheiður bendir á að þó
það sé hlutfallslega skortur
á konum í tölvugeiranum þá vanti einnig
karlmenn. Samkvæmt tölum frá Evrópusam-
bandinu stefnir í að árið 2015 muni skorta yfir
700 þúsund manns í tæknigeirann í Evrópu,
miðað við að háskólar haldi áfram að útskrifa
eins og þeir hafa verið að gera. „Tölvuheimur-
inn er svo alþjóðlegur að tölvunarfræði opnar
í raun atvinnumarkaði um allan heim. Fólk
með þessa menntun er vel undirbúið fyrir al-
þjóðastarf. Þá er líka mikilvægt að nefna að út
af þessum skorti í heiminum er ljóst að þetta
er öruggt starfsumhverfi og gott framtíðar-
starf með góða tekjumöguleika,“ segir hún.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Það er synd að fleiri stelpur skuli
ekki velja sér nám á þessu sviði
því möguleikarnir eru margir.
Arnheiður Guð-
mundsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Skýrslu-
tæknifélagsins og
UTmessunnar.
Torfi Markús-
son,
ráðgjafi hjá ráð-
gjafa-
og ráðningafyrir-
tækinu Intellecta.
60
45
30
15
0
Háskólinn í Reykjavík
BS í tölvunarfræði
2003
Karlar
Konur
2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 20122011
60
45
30
15
0
Háskóli Íslands
BS í tölvunarfræði
2003
Karlar
Konur
2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 20122011
Segðu sögu með
Galaxy S4 eða iPhone 5
Veldu Snjallpakka sem passar þér!
Snjallpakkinn er frábær áskriftarleið þar sem þú færð SMS, gagna
magn og innifaldar mínútur sem gilda í farsíma og heimasíma óháð
kerfi. Engin upphafsgjöld eru af inniföldum mínútum.
Sumarglaðningur
3 GB og 3000 SMS á mán. fylgja öllum snjallpökkum til 31. ágúst.
Vertu í sterkara sambandi á stærsta farsímaneti landsins
Tímalaus klassík
fer aldrei úr tísku
Ég var að landa samningi við verslunareiganda, ótrúlegan spaða.
Eftir fundinn gerði hann mér tilboð í gamla farsímahlunkinn minn
sem var svo retró að menn höfðu ekki séð svoleiðis í langan tíma,
enginn litaskjár, bara pláss fyrir tíu SMS og eini leikurinn var Snake.
Kaupmannahöfn 2011, Steinunn Vala segir sögu af flottum síma
500 mín. | 500 SMS | 500 MB
4.990 kr./mán.
500
Bættu við Snjallpakka
Samsung
Galaxy S4
7.290kr.
Á mánuði í 18 mánuði*
119.900 kr. stgr.
iPhone 5
7.290kr.
Á mánuði í 18 mánuði*
119.900 kr. stgr.
* G
re
ið
sl
ug
ja
ld
3
40
k
r.
b
æ
tis
t v
ið
m
án
að
ar
gj
al
d.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
5
6
7
3
6
300 mín. | 300 SMS | 300 MB
3.490 kr./mán.
300
Bættu við Snjallpakka
Nánar á siminn.is
Sjáðu
Steinunni Völu
segja frá
fréttir 9 Helgin 21.-23. júní 2013