Fréttatíminn - 21.06.2013, Blaðsíða 62
Verslun 12 konur reka sVeitamarkaðinn ljómalind í Borgarnesi
Sextán ára sáði fyrir þúsund blómum
„Viðtökurnar hafa verið æðislegar. Við opnuðum
17. maí og hér er traffík alla daga,“ segja þær
Anna Dröfn Sigurjónsdóttir og Stella Dögg Blön
dal í versluninni Ljómalind í Borgarnesi.
Ljómalind er sveitamarkaður sem rekinn er af
tólf konum af Vesturlandi. Markaðurinn er í sama
húsi og Frumherji, við hringtorgið í Borgarnesi
þar sem keyrt er norður á land eða áfram vestur.
„Við seljum hér sjálfar allt okkar og svo erum við
með alls konar handverk, grænmeti, mjólkur
vörur, sultur, nautakjöt, jarðarber og sumarblóm.
Þetta eru vörur beint frá býli á Vesturlandi svo
það fer eftir bóndanum hvað hann hefur upp á að
bjóða þann daginn,“ segja Anna Dröfn og Stella
Dögg.
Andrúmsloftið í Ljómalind er notalegt, heitt
er á könnunni, og starfsfólkið tekur vel á móti
manni. Þær stöllur segja að Ljómalind verði starf
rækt fram í september, hið minnsta. Vonir standa
þó til að hægt verði að halda rekstrinum áfram í
haust. „Samtök sveitarfélaga veittu okkur styrk
og það hefur gagnast okkur mjög vel,“ segir
Stella.
Stella Dögg er sextán ára en hefur þegar vakið
athygli fyrir blómarækt sína. Hún var gestur í
þættinum Hið blómlega bú á dögunum. Sá þáttur
var tekinn upp í fyrrasumar en í ár hefur Stella
aukið blómarækt sína verulega. „Ég sáði fyrir
þúsund blómum, með tveggja vikna millibili,“
segir athafnakonan unga.
Stella Dögg Blöndal, sextán ára, Anna Dröfn Sigurjónsdóttir standa
vaktina ásamt tíu öðrum konum í Ljómalind í Borgarnesi. Ljósmynd/Hari
Höskuldur Daði
Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Veitingar múlaBerg Bistro & Bar
Rikka opnar veitinga-
stað á Akureyri
Friðrika Geirsdóttir hefur
staðið í ströngu síðasta
hálfa árið við að koma á
fót nýjum veitingastað
á Hótel KEA á Akureyri
sem opnaður verður
í dag. Eftir að hafa
verið með annan fótinn
á Akureyri segist hún
neyðast til að viðurkenna
að það sé satt sem haldið
hefur verið fram: að það
sé alltaf gott veður á
Akureyri.
s jónvarpsstjarnan geðþekka, Friðrika Hjördís Geirsdóttir, eða Rikka eins
og hún er kölluð, hefur staðið í
ströngu undanfarna mánuði en
hún hefur ásamt félögum sínum,
barþjóninum Ólafi Erni Ólafs
syni og arkítektinum Hallgrími
Friðgeirssyni umbylt veitinga
staðnum á Hótel KEA á Akur
eyri sem opnaður verður í dag,
föstudag. Veitingastaðurinn
hefur fengið heitið Múlaberg
Bistro & Bar.
Leiðir Rikku og Ólafs lágu
fyrst saman í sjónvarpsþátt
unum vinsælu MasterChef sem
voru á dagskrá Stöðvar 2 síðasta
vetur. „Þetta er búið að vera ótrú
lega skemmtilegt og krefjandi
verkefni,“ segir Rikka. „Ég var
upphaflega fengin til að hanna
matinn á staðnum en datt svo inn
í hönnunarhlutann líka, sem er
ekki síður skemmtilegt,“ segir
hún.
Hönnun er klassísk en nútíma
leg, líkt og matseðillinn, að sögn
Rikku. „Við höfum gjörbreytt
fyrstu hæðinni og útisvæðinu
og útkoman er fáguð og vönduð.
Matseðillinn er samansettur úr
öllu því besta héðan og þaðan,“
segir hún. „Við erum með klass
íska rétti á borð við Coq au vin
og nútímalega útgáfu af gamla
góða rækjukokkteilnum, bláskel
og nautalundir, svo fátt eitt sé
nefnt. Við leggjum áherslu á að
vinna allt hráefni hér í eldhúsinu,
við gröfum lax í laxa tartar og
reykjum sjálf,“ segir hún. Ólafur
hefur hannað fjölda nýrra kokk
teila enda annálaður meistari
drykkjarveiganna.
Rikka hefur verið með annan
fótinn á Akureyri undanfarna
mánuði og ber Norðlendingum
vel söguna. „Það er búið að vera
dásamlegt hér á Akureyri. Ég
hélt að það væri lygi sem Norð
lendingar halda fram, að það sé
alltaf gott veður á Akureyri, en
ég get ekki betur séð að það sé
satt – eins ótrúlega leiðinlegt og
það er að viðurkenna það,“ segir
Rikka og hlær.
Hún hefur fullan hug á að
vinna fleiri verkefni með félögum
sínum þótt ekki sé neitt í hendi í
þeim efnum enn.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Friðrika Hjördís Geirsdóttir og Ólafur Örn Ólafsson þjónn við nýjan veitingastað á Hótel KEA Akureyri sem þau hafa
hannað ásamt arkítektinum Hallgrími Friðgeirssyni.
Önnur prentun af bók
Bjargar
Fyrsta bók fjölmiðlakonunnar Bjargar
Magnúsdóttur, Ekki þessi týpa, hefur
vakið talsverða athygli síðan hún kom út
í síðasta mánuði. Bókin hefur fengið fína
dóma og aðdáendur skvísubókmennta
fagna henni greinilega því salan hefur
verið umfram væntingar hjá útgefand-
anum, Forlaginu. Ákveðið hefur verið að
prenta annað upplag og er það væntan-
legt í búðir innan skamms.
Sópranó syrgður
Sú sorgarfregn barst um heiminn síðla
miðvikudagskvölds að bandaríski leikarinn
James Gandolfini, best þekktur og dáðastur
fyrir túlkun sína á mafíósanum Tony Soprano,
hefði látist af völdum hjartaáfalls langt fyrir
aldur fram, á 52 aldursári. Hollywood syrgir
þennan þéttholda öðling sem sérhæfði sig í
að leika rudda og það gera aðdáendur hans
um víða veröld einnig. Á Facebook brugðust
íslenskir aðdáendur Gandolfinis hratt við
fréttunum en meðal þeirra sem minntust
hans á þeim vettvangi voru Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra, sem hefur
séð allar Sópranós-seríurnar mörgum sinnum, Björn Ingi Hrafnsson og Kolbeinn
Marteinsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Katrínar Júlíusdóttur. Reyfarahöfundurinn
Ævar Örn Jósepsson sagði The Sopranos vera magnaða þætti, aðallega vegna þess
að þeir væru frábærlega skrifaður og enn betur leiknir og þar hefði Gandolfini farið
fremstur meðal jafningja. Hildur Helga Sigurðardóttir syrgði síðan Gandolfini á sinn
hátt. „Ekki Tony Soprano! Hvað verður nú um Carmelu og börnin?“
Faktorý lokað í ágúst
Tónleikastaðnum Faktorý við Smiðjustíg
verður lokað 11. ágúst næstkomandi.
Hótel mun rísa þar sem staðurinn er nú.
Staðurinn hefur verið rekinn í þrjú ár við
nokkrar vinsældir. Yfir eitt þúsund tón-
listartengdir viðburðir hafa verið á Faktorý
þessi þrjú ár. Glæsileg tónleikadagskrá
hefur verið boðuð á Faktorý fram að lokun.
Þar á meðal eru tónleikar með John Grant
og hljómsveit hans fimmtudagskvöldið 25.
júlí. Miðaverð er 3.000 krónur og forsala
er hafin á Miði.is.
VERSLUNIN
HÆTTIR
AF ÖLLUM
VÖRUM
Laugavegi 49 S. 552 2020
62 dægurmál Helgin 21.-23. júní 2013