Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.08.2013, Page 30

Fréttatíminn - 02.08.2013, Page 30
30 heilsa Helgin 2.-4. ágúst 2013  Streita einn helSti heilSuvandi SamtímanS Þaraböð við Gróttu Boðið verður upp á heit þaraböð í fjörunni við Gróttu á Seltjarnarnesi um verslunar- mannahelgina. Þaraböðin eru á vegum Slíjm sf. og bera nafnið slíjmböð og er verkefnið styrkt af Hönnunarsjóði Auroru og unnið í samstarfi við Seltjarnarnesbæ og Ísleif Jónsson ehf. Í böðin er notaður þari, heitt vatn og sjór. Með böðunum vill Slíjm ýta undir nýtingu þeirra auðæfa sem finna má í náttúrunni og segir í til- kynningu að þarinn leiki um holdið, næri bæði andann og hverja frumu og sé stútfullur af kraftaverkasöltum og slímugum steinefnum. Baðstundir þarf að panta með því að senda póst á netfangið fax@miskates.re og verða á sunnudag og mánudag klukkan 11.00, 12.30, 14.00, 15.30, 21.00 og 22.30. Nánari upp- lýsingar má nálgast á Facebook-síðunni Slíjm. -dhe S tress er eitt stærsta heilsufarsvandamál nútímasamfélags og það mælist með háa fylgni við marga hættulega sjúkdóma og kvilla eins og til dæmis hjarta- sjúkdóma og vitglöp. Stress virðist vera órjúfanlegur þáttur í lífsmynstri vestræns samfélags og við þurfum að læra að lifa með því. Hins vegar er mikil- vægt að vita að því meira sem fólk slakar því meiri líkur eru á betri heilsu. Hér eru nokkrar ástæður fyrir því að við ættum að slaka á sem oftast. Það er lífsnauð- synlegt að slaka á! Við upplifum flestöll streitu í okkar daglegu lífi og mikilvægt er að slaka sem oftast á til þess að auka vellíðan og minnka áhættuna á sjúkdómum, pestum og ýmsum öðrum sjúkdómum. Mikilvægt er líka að slaka á til þess að taka betri ákvarðanir og bæta kynlífið. 1. Slökun er góð fyrir hjartað. Streita eykur hættuna á háum blóð- þrýsingi, hjartaáföllum og öðrum hjartasjúkdómum. 2. Slökun minnkar líkurnar á því að smitast af kvefpestum. Niðurstöður rannsókna benda til þess að þeir sem eru undir sífelldri streitu í meira en mánuð eru tvöfalt líklegri til að smitast af pest. 3. Slökun bætir minnið. Niðurstöður rannsókna benda til þess að krónísk streita auki myndun próteina í heilanum sem tengjast Alzheimer sjúkdómnum. 4. Slökun minnkar líkurnar á heilablóðfalli. Þeir sem ná tökum á streitunni í daglegu lífi eru í minni hættu á að fá heilablóðfall. Niðurstöður rann- sóknar frá 2011 sýndu fram á að 10% heilablóðfalla megi rekja til andlegrar streitu. 5. Slökun minnkar líkurnar á þunglyndi Langvarandi áhrif stresshorm- ónsins cortisol getur minnkað magn serotóníns og dópamíns sem tengist þunglyndi. Streita er einnig líkleg til þess að auka geðræn vandamál hjá þeim sem hafa sögu af þunglyndi eða öðrum geðsjúkdómum. 6. Slökun hjálpar þér að taka betri ákvarðanir Þeir sem upplifa mikla streitu hugsa ekki alltaf mjög skýrt. Streita hefur áhrif á það hvernig við metum áhættu og hefur áhrif á dómgreind okkar þegar við tökum mikilvægar ákvarð- anir. Fólk undir mikilli streitu einblínir um of á jákvæða hluti og gleymir að taka til greina þær neikvæðar afleiðingar sem ákvarðanir geta falið í sér. 7. Slökun heldur þér í réttri þyngd Fólk sem upplifir mikla streitu er líklegra til að sækja í fituríkt og kolefnaríkt fæði. 8. Slökun hefur góð áhrif á kynlífið Ein helsta ástæða þess að konur missa áhuga á kynlífi er mikil streita. Nefkvef, hnerri og kláði í nefi eru helstu einkenni frjókornaofnæmis Nýjung Sinose 100% náttúrulegt efni sem úðað er í nef og kemur af stað öflugum hnerra sem hjálpar til við að hreinsa ofnæmis- vaka úr nefi en í leiðinni róar það og ver með áframhaldandi notkun. Sinose er þrívirk blanda sem hreinsar, róar og ver. Hentar einnig þeim sem þjást af stífluðu nefi og nef- og kinnholubólgum. Hentar öllum frá 12 mánaða aldri, á meðgöngu og meðan á brjóstagjöf stendur. Slævir ekki, engin kemísk íblöndunarefni. Andaðu léttar og njóttu sumarsins með Sinose Fæst í flestum apótekum og heilsubúðum P R E N T U N .IS Frekari upplýsingar www.gengurvel.is Náttúrulegi nefúðinn sem sló í gegn sumarið 2012 Fæst í apótekum, heilsubúðum og stórmörkuðum P R EN TU N .IS / w w w .g e n g u rve l.is Inniheldur hinn öfluga DDS1 ASÍDÓFÍLUS! 2 hylki á morgnana geta gert kraftaverk fyrir meltinguna hefjast 12. og 13 .ágúst Ný námskeið N ý ná m sk ei ð Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík Sími 560 1010 • www.heilsuborg.is Kvennaleikfimi Mán., mið. og föst. kl. 16:30 (3x í viku). Verð kr. 15.900 fyrir fjórar vikur. (í áskrift kr. 13.900 á mán., 3ja mán. uppsagnarfrestur) Þri. og fim. kl. 10:00 (2x í viku). Verð kr. 13.900 fyrir fjórar vikur (í áskrift kr. 11.900 á mán., 3ja mán. uppsagnarfrestur). Morgunþrek Mán., mið. og föst. kl. 7:45 eða 09:00 (3x í viku). Verð kr. 15.900,- (13.900 í áskrift, 3ja mánaða binditími). Zumba og Zumba toning Þri. og fim. kl. 16:30. Verð kr. 13.900 eða 11.900 í áskrift (3 mán binditími). Yoga Þri. og fim. kl. 12:00. Verð kr. 13.900,- Leikfimi Mán. og mið. kl. 11:00. Mán. og mið. kl. 15:00. Verð kr. 9.900 Zumba Gold 60+ Fyrir 60 ára og eldri sem hafa gaman af að dansa. Þri. og fim. kl. 11:00. Verð kr. 9.900,- 60 ára og eldri:

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.