Fréttatíminn


Fréttatíminn - 02.08.2013, Síða 36

Fréttatíminn - 02.08.2013, Síða 36
36 skák og bridge Helgin 2.-4. ágúst 2013  Skákakademían margir beStu Skákmenn heimS að tafli í dortmund Rússneski björninn rumskar Þ jóðverjar búa að langri og ríkri skák-hefð, og geta nú teflt fram her af 80 stórmeisturum. Fremstur þýskra skákmanna nú um stundir er Arkadij Naiditsch, 27 ára. Hann er í 33. sæti heims- listans með 2710 stig. Naiditsch, sem reyndar er fæddur í Lett- landi, er einn af fjórum þýskum stórmeist- urum sem spreyta sig á stórmóti sem nú er að klárast í Dortmund. Þetta er hvorki meira né minna en 41. Sparkassen stórmótið, en meðal sigurvegara fyrri ára eru jöfrarnir Karpov, Kasparov, Anand og Kramnik. Sá síðasttaldi hefur sigrað tíu sinnum og er því kallaður „kóngurinn af Dortmund“. Alls eru keppendur 10 og tefla allir við alla. Stigahæstur er góðvinur okkar Fabiano Caruana, en sá ungi Ítali hefur komist alla leið upp í þriðja sæti heims- listans, og náði langþráðum 2800 stiga múr – rétt sem snöggvast. Caruana, sem sigraði í Dortmund í fyrra, hefur átt erfiða daga núna. Hann sigraði að vísu í fyrstu umferð, Rússann Andreikin, en laut í gras gegn Wang Hao og Michael Adams. Kramnik mátti í júní sætta sig við neðsta sæti á stórmóti, en hann er búinn að hrista af sér slenið: Eftir fimm umferðir tróndi Kramnik á toppnum með fjóra vinninga, og hafði sigrað Meier (þriðja besta skák- mann Þjóðverja), kínverska snillinginn Wang Hao og jafntefliskónginn Leko frá Ungverjalandi. Gamla brýnið Michael Adams (hann er fæddur 1971) byrjaði líka með látum, og hefur náð höfuðleðrum Caruana, And- reikin og Wang Hao. Þegar þetta er skrifað eiga þeir Kramnik og Anand eftir að mæt- ast, en hér skal veðjað á rússneskan sigur í Dortmund 2013. Sagt er frá gangi mála á skák.is og chessbase.com. Á chessbomb. com eru beinar útsendingar frá Dortmund, og öðrum stórmótum sem nú standa yfir! Magnus í Mekka Magnus Carlsen undirbýr sig nú af kappi fyrir heimsmeistaraeinvígið gegn Anand, sem haldið verður á Indlandi í nóvember. Norski meistarinn, sem er langastigahæsti skákmaður heims, ætlar að tefla á einu skákmóti áður en einvígið á Indlandi hefst. Carlsen mætir til leiks á ofurmót í Saint Louis í Bandaríkjunum, ásamt Lev Aronian frá Armeníu (númer tvö á heimslistan- um) og þeim Hikara Nakamura og Gata Kamsky – tveimur bestu skákmönnum Bandaríkjanna. Verðlaunapotturinn í Saint Louis verður 170 þúsund dollarar, og má búast við mjög spennandi keppni. Nakamura iðar í skinn- inu að sýna að hann sé efni í heimsmeist- ara og Kamsky, sem verður fertugur á næsta ári, virðist bara batna með aldrinum. Aronian gæti líka minnt á styrk sinn. Þegar Aronian situr að tafli fylgist öll Armenía með, og ekki kæmi á óvart þótt hann yrði sigursæll í skákborginni miklu vestanhafs, Saint Louis er kölluð „Mekka skákarinnar“ í Bandaríkjunum. Allra augu munu auðvitað beinast að tafl- mennsku Carlsens á mótinu. Heilu tölvuk- lasarnir verða notaðir til að greina hvern einasta leik áskorandans. Anand og að- stoðarmenn hans munu gaumgæfa skákir Magnusar, í leit að glufum og veikleikum. Veðbankarnir hallast eindregið að sigri norska undradrengsins, en í þessum dálki höllumst við að sigri indverska meistarans. b ridgemeistarinn Símon Símonarson er fallinn frá. Símon var um árabil einn litríkasti bridgespilari lands- ins og státaði af mörgum Íslandsmeist- aratitlum. Hann var auk þess margsinnis í landsliði Íslands í opnum flokki og var talinn meðal sterkustu spilara sem Ísland hefur átt. Símon þótti djarfur meldari og lét aldurinn ekkert hindra sig í djörfum sögnum. Mörgum er minnistætt spilið sem átti stóran þátt í úrslitum Íslandsmótsins í sveitakeppni árið 2008, þegar Símon hamp- aði síðasta Íslandsmeistaratitlinum í Ís- landsmótinu í sveitakeppni. Símon fór alla leið í alslemmu í grandi og hefði þurft að láta titilinn af hendi ef sá samningur hefði tapast. Hann vann hins vegar samninginn og tryggði sér Íslandsmeiratitilinn. Símon var í suður með Á6,Á1095,K1084,Á94 og heyrði þessar sagnir, austur gjafari og NS á hættu. Austur opnaði tvo spaða veikt, Símon doblaði, heyrði vestur segja 4 spaða, Rúnar Magnússon í norður sagði 5 spaða, Símon sex tígla og Rúnar breytti í sex hjörtu. Þá bærðu andstæðingarnir aftur á sér, vestur sagði sex spaða og eftir kröfupass (sterkara en dobl) Rúnars, sagði Símon 7 hjörtu. Vestur lét ekki þar við duga, valdi 7 spaða en nú valdi Rúnar dobl. Símon valdi hins vegar sögnina 7 grönd, óhræddur. Hjartaliturinn varð að gefa 5 slagi en hagstæð lega kom sér vel fyrir Símon. Allt spilið var svona: ♠ – ♥ D6432 ♦ ÁG5 ♣ KD532 ♠ Á6 ♥ Á1095 ♦ K1084 ♣ Á94 ♠ DG982 ♥ G ♦ 9732 ♣ G107 ♠ K107543 ♥ K87 ♦ D6 ♣ 86 N S V A Símon spilaði hjartadrottningu af stað (vissi að vestur átti varla kónginn úr því hann sagði 7 spaða) og negldi gosa vesturs. Það dugði til þess að vinna spilið og Íslandsmeistaratitil- inn um leið. Með honum í sveit voru Rúnar Magnússon, Ragnar Magnússon, Páll Valdi- marsson, Sigurður Vilhjálmsson og Júlíus Sigurjónsson. Jöfn og góð þátttaka í sumarbridge Þátttaka í sumarbridge í ár hefur verið jöfn og góð. Miðvikudagkvöldið 24. júlí mættu 28 pör til leiks. Eftir mikla keppni höfðu Hrund Einarsdóttir og Ásgeir Ásbjörnsson sigur, þó að hann hafi verið naumur. Lokastaða 5 efstu para varð þannig: 1. Hrund Einarsdóttir – Ásgeir Ásbjörnsson 60,4% 2. Júlíus Sigurjónsson – Kjartan Ásmundsson 60,2% 3. Oddur Hannesson – Árni Hannesson 57,6% 4. Haukur Ingason – Helgi Sigurðsson 56,7% 5. Gísli Steingrímsson – Halldór Svanbergsson 55,5% Þátttakan mánudagkvöldið 29. júlí var 25 pör. Kristján Már Gunnarsson og Gunn- laugur Sævarsson gerðu sér lítið fyrir og unnu með tæplega 9% forystu á næsta par með risaskori. Lokastaða 5 efstu para varð þannig: 1. Kristján Már Gunnars. – Gunnlaugur Sævars. 67,4% 2. Guðlaugur Sveinsson – Hermann Friðriksson 58,8% 3. Ingibjörg Halldórsdóttir – Ólöf Thorarensen 58,6% 4. Svala K Pálsdóttir – Anna Þóra Jónsdóttir 57,0% 5. Baldvin Valdimarsson – Páll Valdimarsson 56,8% Mikil keppni er um hæsta meðalskorið í sumarbridge. Það kemur ekki á óvart að Gunnlaugur Sævarsson er efstur með 58,86% að meðaltali. Kristján Már Gunnars- son er á hæla hans í öðru sæti með 58,63% að meðaltali, Bergur Reynisson í þriðja sæti með 57,36%, Árni Hannesson í fjórða með 57,16% og Stefán Stefánsson í því fimmta með 57,07% að meðaltali.  bridge litríkur Spilari fallinn frá Símon lét aldur ekki hindra sig í djörfum sögnum Símon Símonarson. Kramnik. Rússneski björninn er vaknaður. Nakamura. Fær að spreyta sig gegn Carlsen. 69% ... kvenna á höfuðborgar- svæðinu lesa Fréttatímann* *konur 25 – 80 ára á höfuðborgarsvæðinu. Capacent júlí-sept. 2012 Þú nnur okkur á Facebook undir “Fatabúðin” Skólavörðustíg 21a 101 Reykjavík S. 551 4050 Mikið úrval af dásamlegum sængurverasettum

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.