Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.06.1916, Side 3

Læknablaðið - 01.06.1916, Side 3
2. árgangur. Júní 1916. 6. blað. Ambustio faucium. Tracheotomia. In cultro salus! Fyrir rúmum hálfum mán. síSan var seint um kveld komiö meö stúlkubarn á spítalann árs gamalt. Þaö haföi sopið á sjóöandi heitri mjólk og hrent sig í munni og koki. Fljótlega á eftir fór aö bera á miklum and- þrengslum og sogi, og þess vegna haföi aöstoöarlæknirinn, sem vitjað haföi veriö, skipaö móðurinni aö fara strax til sjúkrahússins meö barniö, svo að gerður yrði á því harkaskuröur ef á þyrfti að halda. Þegar jeg sá barniö, var þaö ákaflega fölleitt og um leið bláleitt í framan. Þaö var afarmáttfarið, enda hafði það selt upp hvað eftir annaÖ. Puls. 160. Resp. 36 meö miklu sogi og stundum óregluleg og hávær. Andardráttarvöðvar spentir og inndráttur í jugulum. Varirnar, einkum sú neðri, voru með gulleitum brunasárum en munnurinn hvítur af skóf. Kokið treystist eg ekki að rannsaka frekar. Eg þorði ekki aö láta barkaskurð dragast, ef vera kynni að barnið yröi enn þá aumara og þolminna, og lét þvi sjóöa verkfæri. Barniö var stööugt mjög óvært, kjökrandi og bylti sér i faðmi móöur innar. Mér fanst myndi verða erfitt, að gera skurðinn á því vakandi og reyndi því að deyfa það með klóroformi. Eftir að svæfingin var hafin og barniö haföi tekiö nokkur andartök af klóroforminu, hætti það snögglega að anda. Það helblánaöi í andliti og þrútnaði, kastaöist siðan um i krampateygjum nokkur auknablik; varð svo grafkyrt og sýndist mér og stúlkunum þremur, sem aðstoðuðu mig, að það væri steindautt, því ictus cordis, sem sást greinilega er andar- drátturinn hætti, varö nú ómerkjanlegur. Eg reyndi snöggvast resp. artific., en árangurslaust, taldi barniö dautt og hafði orð á, að bezt væri að segja strax móðurinni, sem beið úti á ganginum, að stúlkan litla heföi dáið, í höndunum á okkur af svæfingunni. En í sama bili greip eg hnifinn, og án þess að gefa mér tíma til að þvo mér og joðhreinsa húðina, gerði eg tracheotomia inferior i mesta skyndi og fremur experimenti causa en í von um árangur. Það blæddi ekkert, eöa ek'ki teljandi, og eg kom fljótt inn Trousseaus dilatator. Síðan saug eg með silkikateter slím og Idóð úr barkanum. 1 sama bili kiptist barnið við og tók að anda hægt. Það opnaði augun og leit á mig (eg gleymi þeirri sjón aldrei, það var eins og „sálin vaknaöi" eða „kæmi frá annari stjörnu“ og eg gladdist).

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.