Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.06.1916, Page 7

Læknablaðið - 01.06.1916, Page 7
LÆKNABLAÐIÐ 93 Landsspítalinn. (Niöurlag.) Hvort sem það er allskostar hyggilegt eða ekki að ganga fram hjá Landakotsspitalanum, þá má ganga að því vísu að sú stefna verði ofan á. Hún þykir jjjóðlegri, er mörgum metnaðarmál og samskot þegar hafin í því skyni. Flestir læknar í Reykjavík munu og hallast á þá sveifina, En hvor á að eiga spítalann og reka hann, Reykjavík eða landið? Mér blandast ekki hugur um, að í raun og veru er það sjálfsagt að bærinn og landið vinni saman í þessu máli. Spitalinn verður að mestu leyti bæjar- spitali, einkurn er lengra líður og algerlega ósanngjarnt að önnur héruð, sem byggja sér sjúkrahús og læknabústaði með ærnum kostnaði, gefi síðan ríkasta héraðinu spítala og standi straum af honum. Óvist er það eigi að síður, að nokkrir samningar geti tekist við bæinn, ekki ólíklegt að hann reyni til að koma öllum vanda af sér á landið. Og þá er ekki um annað að velja en spítala, sem landið byggi og reki að svo miklu leyti, sem samskotaféð hrekkur ekki til. Eitt ætti þó landið að miklu leyti að geta losnað við: sérstaka deild fyrir næma sjúkdóma (taugaveiki, diptheritis o. fl.), því hana myndu Reykvikingar einir nota, og mætti ekki minna vera en að þeir stæðu straum af henni með með nokkrum styrk úr landssjóði, gegn því að deildina mætti nota til kenslu. Þetta væri bænum útlátalaust. Á landsspítalanum yrðu þá að minsta kosti þrjár deildir: handlækninga, lyflækninga og yfirsetudeild. Sennilega myndu og sérstakar stofur fyrir börn. Ef það ráð yrði tekið upp að veita öllum sjúkl. með samræðissjúkd. ókeypis læknishjálp, myndu þeir hafðir út af fyrir sig. Annars skiftir það minstu hversu þessu yrði komið fyrir á svo litlum spítala. Aðalatriðið er þetta: fyrst um sinn er engin ástæða ti.1 að gera spítal- ann stærri en svarar 50—60 sjúkrarúmum, en jafnframt sjálfsagt að haga svo byggingunni og öllu fyrirkomulagi, að auka m e g i v i ð h a n a án verulegra breytinga. Ef ekki er tekið tillit til deildar fyrir næma sjúkdóma, er sjálfsagt að byggja alt undir einu þaki með gangskipulagi (Korridor-skipulagi). Er það bæöi ódýrast og hentugast fyrir sjúkrahús, sem ekki fara fram úr 100—150 sjúkl. En hve mikið myndi slíkur spítali kosta? Þetta fer auðvitað eftir því, hve mikið er í hann borið, jafnauðvelt að eyða 15,000 kr. i hvert rúm og ca. 3000 kr. Þýzka innanríkisstjórnin telur i bréfi 20. nóv. 1913 að 3—4000 mk. sé kappnóg fyrir hvert sjúkrarúm, þó hús og allur útbúnaður sé í góðu lagi. Er þá lóðin talin með i verðinu, að mig minnir. Ruppel telur 2500—3000 mk. nægilegt fyrir meðalstóra spítala með gangskipulagi. (Weyls Handb. d. Hyg. V, 206). Á Vífilstöðum varð kostnaðurinn um 4000 kr. fyrir hvert rúm. Að vísu varð kostnaðurinn þar meiri vegna erf- iðra aðflutninga, en sennilega verður landsspitalinn ekki ódýrari, þó ekki sé tekið tillit til veröhækkunarinnar sem nú er í svipinn. Hann ætti þá eftir þessu að kosta 175—300,000 krónur (50—60 sjúkl.), jafnvel viðbúið að kostnaðurinn fari fram úr þessum upphæöum, því óhjákvæmilega hlyt- ist nokkur aukakostnaður af því að kensla færi þar fram. Aftur sparast

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.