Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.07.1916, Side 16

Læknablaðið - 01.07.1916, Side 16
læknablaðið nS en mér, en mér þykir ekki ólíklegt, aö fleirum yngri læknum sé ekki máliö full-ljóst. Vér læknar höfurn lyfsölurétt, og vitum vér, hver hann er. Og vér höfurn líka lyfsöluskyldu, en hve víötæk er hún? Landlæknir hefir fyrirskipaö, hverjar lyfjategundir læknar skuli hafa, og efast eg ekki um, aö hann hafi gert það samkvæmt rétti sínum, og’ líklega í samráöi viö aöra vitra og reynda stéttarbræður. En viö þetta virðist þó vera nokkuö að athuga, svona alment og „theoretiskt" á litiö. Læknir veröur aö ráöa því, hvaöa meðul hann notar, og það væri hugsanlegt, að lækni værí skipað að hafa til meðul, sem hann notar aldrei, en lætur liggja á hyllunni. En tæplega verður það stórfé, sem liggur þannig fyrir. Hins vegar skiftir um landlækna, og einn þeirra kann að vera lyflæknir og lyfjavinur, en annar að telja meðul fánýt og ekki nema örfáar tegundir að nokkru gagni. — En þetta var ekki atriðið, sem eg ætlaöi að spyrja um, heldur hitt: Að hve miklu leyti er læknir, sem hefir lyfjasölu, skyldur til þess að afgreiða lyfseöla frá öörum? Ferðatöskur lækna. Þess er getið í Tidskrift f. den norske Lægeforen., aö verölaunum hafi verið heitið fyrir handhægastu og beztu ferðatösku handa sveitalæknum. Skyldi taskan taka öll nauðsynlegustu verkfæri og lyf, umbúðir og þvíuml., vera létt, sterk en skaplega dýr. Komu fram ýmsar tillögur og sýnishorn, en ekkert þótti allskostar gott. Eg hefi oft fundið til þess, að ísl. lækna skortir tilfinnanlega hentugan útbúnaö að þessu leyti, og vildi því vekja máls á þvi viö hugvitssama stéttarbræður, hvort þeir heföu ekki einhverjar snjallar tillögur að gera í þessa átt. Verðlaun get eg ekki boðið, en skýra myndi eg frá tillögunum i Lbl. og ef til vill koma meö einhverjar sjálfur. Stórmál er þetta ekki, en mörg smáatriði veröa mikilvæg er þau koma saman. Ef engin vill um þau hugsa, lendir áreiðanlega alt í óreiöu. G. H. Kynlegur lyfseðill: Tnct. digit. æth. grm. 2, Salicyl. natr. grm, io, Jodeti kal. grm io, Mixt. arsenicalis grm ioo, tnct. ferri comp. grm 50. d. s. y2—1 matsk. 3svar á dag. — Ótrúlegt aö nokkur læknir skuli láta slíkt' frá sér fara. M. E. Seinar skýrslur. Seint koma skýrslur úr sumum héruðum, þó flestir standi í góöum skilum. Úr 7 héruöum eru, að svo miklu leyti sem mér er kunnugt, engar skýrslur komnar til landlæknis síðan á nýári, úr einu engar síðan i febrúar, 3 síöan i marz, 3 síðan í april og einu síöan i mai. Öll hin hafa sent skýrslur fyrir júní. Erlendis hefi eg séð, aö læknar eru hispurslaust sektaöir, ef þeir senda ekki lögboðnar skýrslur á réttum tíma og þetta mun valda því, að skýrslur heimtast þar svo vel. G. H. Til minnis. Enn vil eg minna stéttarbræður á codex etliicus og fyrir spurnir mínar um bæi og þorp. G. H.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.