Læknablaðið - 01.06.1924, Page 3
6. tolaö
io. árg. Reykjavík, i. júní 1924.
Ristilbólga.
Orsakir og eðli sjúkdómsins.
(Partur úr erindi fluttu í L. R. þ. 10. febr. '24).
Eftir Halldór Hansen.
Ristilbólga (colitis chr. simpl., c. chr. mucosa, c. mucomembranacea)
er sjúkd., er menn lengi hafa þekt, en sem nú er svo aS segja, á hvers
manns vörum, lækna og leikmanna. Mun þaö vera sami sjúkd. og eldri
læknar kölluðu enteritis membranacea, þar eð þeir álitu, að sjúkd. værí
i öllum þörmunum.
Eins og sum latnesku nöfnin benda á, er það sér i lagi slimið í hægfð-
unum, er einkennir sjúkdóm þenna. Nú skyldu menn halda, að ekkert væri
cðlilegra, en að slím sæist í hægðunum, þar eð þarmarnir eru alþaktir
slímmyndandi frumum að innan. 1 mjógirninu er þetta svo. Greinilegir
slimhnoðrar sjást með berum augum í þarmvökva heilbrigðra manna,
en öðru máli er að gegna um ristilinn. Þrátt fyrir slímfrumúr hans og
þrátt fyrir það, að slím mjógirnisins berst að sjálfsögðu niður í hann,
sést ekkert slím, né finst við útþvott, í liægðum heilbrigðs manns. En
slímið er þar sarnt, en það er í uppleystu ástandi, og má fella það út
með edikssýru,
Þegar sýnilegt slím er í hægðunum, hugsa menn sér því, að annaðhvort
myndist óeðlilega mikið slírn, eða aö hið uppleysta slím fellist út. Virðist
hið síðara eiga sér stað, ef mikið er af kalksöltum í hægðunum (Loeper),
og ef fita er náið blönduð slíminu (Schmidt), eða menn hafa hugsað sér
að slimfellandi ferment myndaðist i bólginni slimhúð ristilsins (Roger).
Annars hefir menn deilt á um það, af hvaða orsökum slímmyndunin kæmi.
Hafa ýmsir þektir læknar álitið það stafa af eins konar „local neurose",
einkum Jjegar slímið kemur í stórum himnum eða hólkum, og nefnt sjúkd.
eftir því (colica mucosa, myconeurosis intestinalis). Slík skoðun hefir eink-
um við það að styðjast, að venjulega eru sjúkl. þessir taugaveiklaöir,
slímhægðirnar koma oft skyndilega, t. d. eftir geðshræringu, og að við
smásjárskoðun á ristilslímhúð slíkra sjúkl. hafa lítil eða engin bólguein-
kenni fundist. Flestir munu þó vera þeirrar skoðunar, að slímmyndunin
stafi af bólgu (catarrh.) i slimhúöinni. C. mucomembr. álíta þeir, að sé
ekki annað en exacerbation á chr. sjúkd., enda finnist slímiö í hægðun-
um, oftast einnig á rnilli kastanna, bólgueinkennin sjáist auk þess oft
berlega i proctosigmoidoscopi (oedem., roði, erosiones) og einkenni chr.
bólgu post mortem (pigmentation, stase, folliculær smásár o. s. frv.) —
En hvað veldur þá bólgunni?