Læknablaðið - 01.01.1930, Page 14
8
LÆKNABLAÐIÐ
um friði hvað sem í skærist, hinn að segja hlutaðeigendum frá ]>essu og
firra sjálfan sig allri ábyrg'fi.
Flestir hefðu tekið fyrri kostinn. Dr. Helgi tók hinn síðari, þótt honutn
væri strax ljóst, að með þessu mátti hann búast við ofsókn og embættis-
missi, að hann tefldi allri framtíð sinni í tvísýnu.
Það réði úrslitunum, að hann talcli það skyldu sína að gera aðvart, og
vildi ekki hvika frá henni hversu sem alt réðist.
Eg efast um að margir menn hér á landi hefðu leikið þetta eftir, þó að
þeir hefðu haft fulla sannfæringu um að þeir hefðu á réttu máli að standa.
Það kemur engum á óvart, þótt sumir segi að dr. ÞI. T. hafi hér rekið
erindi andstæðinga ráðherrans, að alt þetta sé sprottið af flokkaofstækinu.
Það má jafnvel virða ókunnugum til vorkunnar, þó að þeir haldi þetta, því
að víða gerir flokkaspillingin vart við sig. Hinsvegar mun flestum, og lik-
lega ölluin læknum fara svo, að þeir gcta alls ckki hitgsað sér slíkt, hvað þá
trúað því, svo ólíkt er það öllum hugsunarhætti lækna, enda ekki vitanlegt
um nokkra átyllu til að halda slíkt. Þvert á móti hafði dr. H. T. hér öllu
að tapa, en óhugsanlegt aö hann gæti nokkuð unnið, annað en það að fylgja
sannfæringu sinni. Það hljóta allir að virða og telja beinlínis drcngskap.
Engar blaðalygar geta haggað neinu í þessu máli.
Ýmislegt smávegis hefir stjórnin í pokahorni sínu handa læknum um þess-
ar mundir. Um sakamálsrannsóknina sem hafin var út af embættanefnd-
inni þarf ekki að fjölyrða, því að ekki er mér kunnugt um að hún hafi
neitt ólöglegt aðhafst. Liti nú dómararnir á annan veg á það mál, er sjálf-
sagt að svara til sakar. •—• Þá hefir stjórnin frumvarp á prjónunum, senr
ætlast er til að komi samtökum lækna fyrir kattarnef í þetta sinn. Kjarni
þess er að skylda unga læknakandidata til þess að starfa eitt ár í héruðum
ef heilbrigöisstjórnin óskar þess. Vitaskuld er frv. óþarft með þeirri lækna-
fjölgun sem nú er og stefna þess röng: kúgun í stað frjálsra athafna. Og
hún hlýtur að eins að koma niður á nokkrum kandidötum. því að ekki mun
stjórnin geta notað þá alla. Stúdentar og yngstu karididatarnir hafa, sem
vonlegt er, sent þinginu mótmæli gegn þessurn ólögum, sem tefja þá frá
framhaldsnámi og geta jafnvel valdið þeim fjárhagslegu tjóni.
Læknastúdentar og yngstu kandidatar hafa sent þinginu tilmæli um, að
samþykkja ekki frv. þetta, hvern árangur sem það ber. Alveg var gengið
fram hjá landlækni við samningu frumvarpsins.
Þá hefir þingið á prjónunum allmikið frumvarp um bókhald. Er lækn-
um o. fl. gert þar að skyldu. að hafa tvöfalt liókhald: frumbækur, sjóöbók,
viðskiftamannahók og 6 yfirlitsreikninga eöa sjóðdaghók. Fæstir læknar
munu kunna slikt bókhald, og hvernig þeir eiga að leysa það af hendi, svo
vel fari, er mér óljóst, t. d. á löngum ferðalögum. Bókhald lækna í öllum
löndum mun allmikið frábrugðið þvi sem kaupmenn nota, og hefir það
myndast við langa reynslu. Eru lítil líkindi til að þessu verði hreytt til batn-
aðar, en vildu menn gera tilraun til einhverra breytinga, þá hefði ekki veitt
af því að landlæknir eða nefnd lækna hefði gert tillögur um málið, og