Læknablaðið - 01.05.1930, Blaðsíða 6
LÆKNABLAÐIÐ
52
En þó vantar eitt, og það er aS læknar alment læri einhverja vitund
um fysiskar lækningar, svo aö þeir viti hvenær (sjá siSar) þær geta a'ð
gagni komið; því að reynslan er sú, að sjúklingarnir eru alt of sjaldan
sendir á sérstofnanir, fyrr en svo seint, aö restitutio ad integrum er
ómöguleg.
Mikið mun mega kenna þvi um, að á öllum tímum hafa ólæknisfróðir
menn „svindlað“ feikilega með fysiskar lækningar, og allur þorri lækna
þvi fyrirlitið og barist á móti þeim.
En jafnframt er þörf á að hreinsa til í greiningar-ruslakistunni.
Þegar þjóðasamtökin gegn gigtiimi voru hafin, reyndist samvinna
ómöguleg, vegna þess að ákveðna flokkun vantaði; sömu heitin voru not-
uð til að tákna sitt hjá hverri þjóð, og olli það þvi misskilningi. Til að
bæta úr þessu var skipuð nefnd hæfra manna í Þýskalandi, og komu þeir
sér saman um flokkun, sem í höfuðatriðum er eins og sú, sem hér fer á
eftir; en létu þess jafnframt getið, að þetta væri til bráðabirgða, með því
að enn er svo margt óvíst og ónægilega rannsakað viðvíkjandi gigtinni.
Eiginlegt gigt (rheumatismus) greinist i:
Uppruni: (Ætiologia)
disposition, smit.
Uppruni: óþekt smit
disposition, endocrin
truflun (4)
A. Gigt í mjúkum hlutum líkamans, þ. e. vöðv-
um, sinum, sinaslíðrum, fascium, slimpokum
• og taugum.
B. Liðagigt, cg er þar greint \ milli:
1. Polyaflhritis rheumatica acuta eða subacuta
(febris rheumatica).*)
2. Polyarthritis rheumatica chronica secund-
aria. Þ. e. eftirstöðvar eða framhald af
febris rheumatica.
3. Polyarthritis rheumatica chronica primaria.
(Án undanfarandi íelvr. rheumatica).
4. Polyarthritis endocrina (klimakterica).
5. Spondylarthitis anchylopoetica (Bech-
terew).
Sjúkdómar, sem oftast teljast til gigtar, en samkvamit uppruna sínum
ekki eiga þar heima:
C. Mono-, oligo- eða polyarthroitis deformans. (inclusive Heberdens-
hnútar) og spondylitis deformans.
D. Arthritis urica.
Við aðgreiningu verður að taka tillit til:
E. Liðsjúkdóma af þektu smiti, svo sem: Gonorrhoe, lues, berkla, sepsis,
lungnalvólgu, influenzu og skarlatssótt.
Ennfremur:
F. Liðasjúkdóma við tabes dorsalis, syringomyeli, hæmophilia, hydrops
articulorum intermittens og arthroitis við ostitis deformans (Paget).
(Oitis er látið tákna liðsjúkdóma án smits).
Sennilega mætti telja peliosis rheumatica með polvarthr. acuta.