Læknablaðið - 01.07.1930, Side 37
LÆKNABLAÐIÐ
123
Úr útlendum læknaritum.
Dr. Sven Thuréus, Stockholm: Resa i Finland, Ryssland, Polen
och Tyskland. Social-Medicinsk Tidsskrift h. 5—6, 1930.
Höf. er stomato-odontolog, og hefir gengist mjög fyrir því aÖ spítala-
sjúklingar á NorÖurlöndum fengju fullkomna tannlæknishjálp; jafnframt
aÖ læknastúdentum verði veitt ýtarleg fræÖsla í þessari grein læknisfræð-
innar. Prót'. Alexander Lhnbcrg, kennari í stomato-odontologi við Háskól-
ann i Leningrad, bauð höf. að koma til Rússlands. Til þess þurfti sérstakt
leyfi frá sendisveitinni rússnesku í Stokkhólmi. og frá yfirvöldunum i
Moskva. Höf. var skráður af lögreglunni, þegar eftir komu sína til Lenin-
grad. og síðar á hverjum stað, ])ar sem hann hafði viðdvöl. Ennfremur
þarf leyfi til að fara aítur úr landi, og er ]>ctta sama umstangið, sem kunn-
ugt er i öðrum Evrópulöndum, ófriðarárin.
Höf . ráðleggur þeim, sem til Rússlands ferðast, að byrgja sig með ame-
ríska dollara. Gistihús eru fremur dýr. Víðast hvar má gcra sig skiljan-
legan með þýsku.
Borgarlífinu i Leningrad svipar nú mjög til ])ess, sem á sér stað í öðr-
um stórborgum í Evrópu. Strætisþrifnaður er í góðu lagi, og er hverjum
liúseiganda skylt að sópa fyrir sínum eigin dyrum og skola gangstéttir
2svar á dag, að sumrinu til. Höf. tekur sérstaklega fram, að eigi sjáist
slík hundasaurindi á götunum i Lcningrad, sem í Stokkhólmi.
í öllum rússnesku Sovjet-lýðveldunum (S.S.S.R.) eru 146,304 milj. íbú-
ar, og skiftist það þannig:
Ib. í niillj. Höfuðborg. Ib. í millj.
100,593 Moskva 2,018
28,887 Charkow 0,410
4,924 Minsk 0,124
5,810 Tiflis 0,283
( 2,302 )Baku 0,447
(0,870) Erivan 0,062
(2.Ó38)Tiflis 0,283
5,058 Samarkand 0,101
1,030 Aschchabad 0.047
1. Rússn. Soc. Fed. Sovj.-lýðv. (R.S.F.S.R.)
II. Ukraine Soc.-lýðveldi ..................
III. Hvít-rússneska Soc. Sov.-lýðveldi ......
IV. Transkaukasiska Soc. Fed. Sov.-lýðv.....
a) Aserbejdjan..........................
b) Armenía...............................
c) Georgia...............................
V. Úsbekiska Soc. Sov.-lýðv.................
VI. Turkmeniska Soc. Sov.-lýðv...............
Heilbrigðisstjórn i R.S.F.S.R. skipar 10 mann heilbrigðisráð. Forseti
þess er nú N. A. Semashko, próf. í Social-hygiejne við háskólann í Moskva.
Heilhrigðisráðið skiftist í ýmsar greinar, er hver hefir sitt starfssvið. Sér-
stök áhersla er lögð á profylaxis i margskonar greinum. Sérstakir embættis-
menn (læknar?) stjórna heilbrigðisvörnum í hverju héraöi (áður nefnt
„guvernement"), og eru þeir kosnir með almennum kosningum. í l)org-
um er unnið móti margskonar atvinnusjúkdómum, en í sveitum móti land-
lægum sóttum, — einkum syfilis, trachoma og kláða. Að aukinni þekking
i heilbrigðismálum og þrifnaði er unnið með fyrirlestrum, kvikmyndum,
útvarpi, sýningum og hjálparstöðvum. Unnið er að þvi að samræma starf-
ið í öllum landshlutum. Markmiðið er hvorki meira né minna en að ná á
spjaldskrá heilsulýsing allra íjölskyldna í rússneska ríkinu. Verk þetta er