Læknablaðið - 01.07.1930, Page 38
124
LÆKNABLAÐIÐ
ekkert smárœöi, í landi meÖ svo sundurleitu þjóðerni. Telst svo til, að
])jóðernin séu 200 talsins.
Dánartölur voru 27,3%» árin ign—1913, en 22,9%^ árið 1927. Barna-
dauði var 2Óo%e 1911—1913, en 2i7%0 árið 1927. Fólksfjölgun á sama
árabili i6,5%c og 2i,5%0.
Tveir háskólar eru í Leningrad, Moskva og Kasan, með 1500, 3000
og 1500 læknanema. Háskóli er auk þess í borgunum Kiev, Charkow,
Odessa, Saratov, Pervomaisk, Tambow og Erivan, með ca. 1000 stúdenta
á hverjum stað. Alls 13 skólar með um 7000 stúdenta; af þeim eru 18%
konur. Námstíminn er ca. 5 ár.
Skrá um sjúkraliús, lœkna og tannlœkna- í Rússlandi árið 1925:
Ríki. Fjöldi sjúkrahúsa. Tala sjúkrarúma, Læknar. Tannlæknar.
S.S.S.R.................. 4.937 29.275 4.011
R.S.F.R..................... 3728 156.684 19.546 2.493
Ukraine .................... 840 24.408 6.276 840
Hvita Rússland ............. 137 4-054 890 180
Aserbejdjan................... 44 3-397 680 107
Armenía....................... 26 866 210 23
Georgia ..................... 76 3-908 1.168 292
Úsbekiska lýðv............... 73 2.981 505 76
Turkmeniska lýðv......... 13
Skýrslur frá Bússn. Soc. Feder. Sovj. lýðv. (R.S.F.R.) árið 1929, herma,
að sjúkrahúsum, læknum og tannlæknum befir þá stórum fjölgað.
Fláskólakenslan hefir verið aukin mikiö. Við annan læknaskólann i Moskva
eru t. d. 39 prófessorar í ýmsum sérgrcinum. Ríkisstjórnin hefir látið út-
húa söfn og sýningar í borgunum, til þess að kenna ráð og lífshætti til
heilsuverndar. Þar eru og á boðstólum allskonar upplýsingar og ráð gegn
berklaveiki, kvnsjúkdómum og ofdrykkju. í skemtigörðum almennings er
kostur á sólböðum, sundi og öðrum íþróttum. Höf. getur þess, að á heitum
sumardögum í Moskva hafi hann séð börnin unnvörpum á götum úti, að-
eins í sundbuxum. Yfirleitt er gert mikið að því að fá almúgann til að
nota sér sólina. Berklastöðvar eru víöa.
Stóru sjúkrahúsin í Rússlandi eru álíka vel úthúin, sem í öðrum F.vrópu-
löndum, t. d. Metschnikoff-spítalinn í Leningrad, þar sem eru um 2 þús.
sjúkrarúm. Eftirmaður Stcrnbcrgs er próf. Bock, yfirlæknir á berkladeild.
Leist höf. sérlega vel á hann. A skurðdeild próf. Oppcls eru 4 skurð-
stofur; ein þeirra er svört, önnur hvít, þriðja græn og sú fjórða blágrá.
Starfsfólkinu fellur hest að vinna í svörtu skurðstofunni. og eru þar lök
og sloppar líka svartir. Ilver legudagur á þessum spítala kostar 3 rúblur
og 20 kópeka.
„Traumatologiska“ stofnunin er spítali, sem tekur á móti sjúkl. með
kjálkaslys og afskræmandi sjúkd. í andliti. Höf. finst mikið til um próf.
Limberg, sem fæst við allskonar plastiskar skurðlækningar í kjálkum, and-
liti og munnholi (t. d. uranostafyloraphi). Er þessi stofnun tilvalin fvrir
þá, sem gera stomatologi að sérfræðigrein sinni. Þar eru 8 prófessorar og
docentar, og fjöldi undirlækna. Árið 1927 komu þar á 5. hundrað a'Skomu-
læknar og um 1300 stúdentar. Legudagur kostar 6 rúblur, 94 kóp. Fleiri