Læknablaðið - 01.11.1932, Side 20
LÆKNABLAÐIÐ
162
tæki eru heppilegust? Hve lengi skal geisla sjúklingana? HvaÖa þýðing hefir
pigment-myndunin ? Ber að forðast mikla pigment-myndun eða sækjast eftir
henni? Hver er sú biologiska skýring á því, að ljósið læknar ýrnsa sjúk-
dóma? Alt eru þetta mikilvæg atriði, sem bíða frekari vísindalegra rann-
sókna og skýringa.
Reynslan sýnist verða sú, að ámóta árangur fáist af sólskinslœkningum
(heliotherapie) á láglendi, sem á fjöllum uppi. Við fljótlega heimsókn á sól-
skinsspítalanum í Alton á Suður-Englandi, hjá Sir Hcnry Gauvain, virðist
ekki siður bati af sólböðum við kirurgiskri berklaveiki, heldur en hjá Rollicr
í Leysin í Alpafjöllunum, sem er í álíka hæð og þúfurnar á Snæfellsjökli.
Sir Hcnry, sem jafnframt Sir Leonard Hill er áhugasamasti sólskinslæknir
á Englandi, er nú að bæta allstórri býgging við spítala sinn. — Fyrir þá sent
áhuga hafa á byggingamálum má geta þess, að gluggar eru allir úr járni, en
hurðir úr tvöföldu stáli, jafnt útidyr, sent hurðir innanhúss. Veggir á göng-
um og sjúkrastofum eru lagðir gleruðunt hellum.
Frá Frankfurt arn Main er stutt að fara til Hanau, til þess að skoða verk-
smiðjuna hjá Quartslampengescllschaft, sem margir læknar munu kannast
við. Frá þessum stað eru kvartslampar notaðir víðsvegar um heim. Ber þar
margt fyrir augu, en einna furðulegast er að sjá hvernig kvartsbrennararnir
eru blásnir út úr bergkristalli. I tilefni af starfsafmæli verksmiðjunnar hef-
ir verið boðin á markaðinn ný gerð af kvartslampa, sem hefir hlotið nafnið
„Jubilaums-modeir, og sýnist sérlega hentugur til staðgeislana. Kvikasilfur
er mjög lítið í brennaranum, og brothætta því hverfandi, við flutning. Kveik-
ingin er líka hentug; brennaranum ekki hallað, en kveikt sem við venjuleg
rafmagnsljós.
Sem nýjung má líka nefna kvartslampa til geislunar á berklaveiki i barka-
kýli — „Kchlkopf-Quarslampe nach Dr. Cemach, Wien“. Lampinn er lag-
aður sem boginn fingur, og færður niður í larynx. Er trúlegt að mikill feng-
ur sé að þessu áhaldi fyrir laryngologa og heilsuhælislækna, til directe geisl-
unar á aftari larynxvegg, reg. arytaenoidea og raddböndum.
Loks hefir „Quartslampengesellschaft'* komið fram nteð nýjan, lítinn
Sollux-lampa — „Sollux-Klcinstrahler“, sent er ætlaður til geislunar á hlust-
inni, við otitis media. Ennfremur er mælt með þessum lampa til staðgeisl-
unar við furunculosis o. fl.
Siemens-verksmiðjan hefir á boðstólum Kadmium-\ampa, en ekki hefir
hann rutt sér rnjög til rúms.
Diatlicrmi var áður mest notuð við gigt og skylda sjúkdóma, en á síðari
árurn hafa skurðlæknar og húðsjúkdómalæknar mjög tekið að nota elektro-
coagulation með diathermi. Illkynjuð mein eru numin burtu með þessum
áhöldum, og er eg ekki í vafa um, að kirurgisk diathermi verði tekin upp
hér, meira en orðið er. Með þessu móti er aðgerðin blóðlaus, því electro-
coagulationin sér um það; en jafnframt eru talin meiri skilyrði til radikal
aðgerðar á meinunum.
A húðsjúkdóma-deildum — a. m. k. i Þýskalandi — er diathermi talsvert
notuð við exstirpation á vörtum, húðfibromum, lupushnútum og tattóvering-
um; við aðgerð á hypertrichosis o. f 1., og vona eg, að á næstunni verði hægt
að taka upp þessar aðgerðir á Landspítalanum.