Læknablaðið - 01.11.1932, Page 46
i88
LÆICNABLAÐIÐ
Umhverfi brunans og brunasvæðið, þar sem húð er heil, er hreinsað
með spiritus. Klipt ofan af blöðrum. Síðan er 5% vatnsuppl. af acid. gallo-
tann. (nýtilbúin!) borin á brunann með mjúkum kamelhárpensli hvað eftir
annað, þangað til hvitt coagulum myndast á fleiðrum og sárum. Sviðinn
hverfur við þetta. Síðan er margföld grisja, vætt í upplausninni, lögð
yfir brunann og bindi yfir hana. Næsta dag eru umb. bleyttar upp með
upplausninni og teknar af. Upplausnin er pensluð á sárið og látin þorna
áður bundið er um. Þriðja daginn er garfarasýru-collodium borið á alt
svæðið.
Aðrir gefa þá forsögn að láta grisjuklútinn, sem vættur var í uppl., liggja
við í 1—2 sólarhringa, hafa síðan sárið bert, vernda það að eins fyrir öll-
um núningi. — (Lancet 8. okt. 1932). G. H.
Marmite við anæmia perniciosa.
Marmite er einskonar matarbætir búinn til úr geri og auðugur af B-vita-
mini. Goodall, enskur læknir, hefir notað Marmite við anæmia perniciosa
og gefist ágætlega. Skamtur: 1 teskeið þrisvar á dag, hrært sundur í vatni
eða smurt á brauð. Eftir að bati er fenginn 1 teskeið tvisvar á dag. — Ein-
falt er þetta og ódýrt ef einhlítt reynist. — (Lancet 8. okt. '32). G. H.
Laparoscopia.
Dr. Kalk (Berlín) hefir fundið upp álitlega aðferð til þess að rannsaka
peritoneum og liffæri í kviðarholi. Ástunga er gerð með vænum troicart,
lofti blásið inn í kviðarholið og síðan fært inn laparoscop, verkfæri svipað
cystoscop. Má furðanlega sjá peritoneum og líffærin. — (J.A.M.A. 24. sept.
1932). G. 'H■
Fr éttir.
Högni Björnsson hefir verið skipaður héraðslæknir í Ögurhéraði frá
1. jan. 1
Ólafur Ólafsson, læknir í Stykkishólmi, er nýfarinn utan. Valtýr Valtýs-
son gegnir héraðinu á meðan.
Sigurður Magnússon, læknir í Ólafsfirði, er nýfarinn utan.
Kandidatastöður eru lausar á Kristnesi og Nýja Kleppi, sbr. auglýsing-
ar hér í blaðinu.
Afgreiðsla Lbl. Af henni lætur nú hr. Þorv. Jónsson, en Rannsókna-
stofa Háskólans annast hana frá áramótum. Þeir, sem eiga ógreitt Lbl.
fyrir síðastl. ár, eru vinsamlega beðnir að senda þangað sem fyrst árs-
gjaldið, 25 krónur.
Innheimtu og afgreiðslu Lbl. annast Rannsóknastofa Háskólans, Rvík.
Félagsprentsmiðjan.