Læknablaðið - 01.03.1936, Page 7
LÆKNABLABIÐ
GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR
RITSTJÓRN: HELGÍ TÓMASSON, IIALLDÓR HANSEN, SIG. SIGURÐSSON
22. árg. Reykjavík 1936. i thl
■SphiinQÍH. nutfya..- ofy
sIc&l^u^úMuVlSóJl.
Eftir ólaf Lárusson,
héraöslækni í Vestmannaeyjum.
Um leiÖ og sárin springa, skell-
ur slíkt fárviðri á sjúklingana í
meginþorra allra tilfella, að ])eir
kastast niöur í kvalafullu neyöar-
ástandi og geta enga björg sér
veitt; ske'Öur þetta jafna'ðarlegast í
einu kasti. Jafnvel þó að sjúkling-
urinn geti verið uppi hangandi stutta
stund, eins og skrifstofumaðurinn,
sem datt eins og hann væri skot-
inn niður á skrifstofugólfið, en
staulaðist svo heim allur í keng, með
þvi að halda fast um bringspalir,
eða sjómaðurinn, sem kom til mín
gangandi heim neðan frá sjó, en
allur í keng eftir n tima frá því
að sárið sprakk, má þó þegar sjá
á þessum sjúklingum, að þeir eru
mjög alvarlega veikir, þó slotað geti
ögn skömmu eftir mestu kviðuna,
sem engum má þó villa sýn á yfir-
vofandi lífshættu og áframhaldandi
neyð, enda ber dauðann tíðast að
eftir 2—3 daga, ef ekkert er að gert
til þess að bjarga sjúkl. úr hættunni.
Því miður munu læknar sjaldnast,
sist með löngum fyrirvara, geta
spáð því, hvenær slíks er að vænta
á sjúkl., sem haldnir eru af þess-
um sárum, þó grunur geti stund-
um leikið á, að slíkt sé i aðsigi
(état de perforation menacante). Á
hinn bóginn geta þeir, ef þeir vita
hvað um er að ræða, séð endann í
upphafi; þeir vita fyrir víst bráð-
an bana sjúklinganna í 95 tilfellum
af hverjum 100, ef ekki er viðstöðu-
laust hafist handa. Lífsbjörg sjúk-
lingsins er fólgin i handlæknisað-
gerð, en hana má telja því öruggari
og vissari, sem hægt er að koma
henni fyr við, eftir að sárin eru
sprungin; 8—9 af hverjum 10 sjúk-
lingum, eða jafnvel öllum, má
bjarga innan 6 klst., en siðar fer
þeim hröðum fetum fækkandi, og
eftir 12 klst. eru batahorfur 1:5, og
minka svo á næstunni, að vart er
um bata að ræða eftir fullan sólar-
hring. Svæfing á slíkurn sjúkl. er
þeim og lækninum þegar dýrmæt,
til þess að losa þá við sárar kval-
ir. Til allrar blessunar er jafnaðar-
lega auðvelt að greina þennan kval-
arfulla sjúkdóm og að fá vitneskju
um, hvers eðlis hann sé.
Tíðleiki og orsakir.
Er það títt, að maga- og skeifu-
garnarsár springi? Best mun vera