Læknablaðið - 01.09.1938, Síða 18
So
LÆ K N A B LAÐ I Ð
ingsmál kæmi fram á milli aðal-
funda, sem tæki til geröardóms
codex ethicus, þá væri hann ekki
nothæfur og þyrfti því aö breyta
honum til bráöabirgöa, þar til
nefndin, sem kosin var meðal ann-
ars til þess að endurskoöa hann,
hefði lokið störfum sinum. Því
vildi hann bera fram eftirfarandi
bráðabirgöabreytingartillögu frá
laganefndinni (Magnús Pétursson,
Valtýr Albertsson, Óskar Einars-
son) :
„Fyrstu 6 málsgreinir io. grein-
ar orðist þannig: Ágreiningur
lækna, eða stéttamál milli lækna
eða læknafélaga, sem eigi verður
jafnaður á annan hátt. skal skjóta
til gerðardóms.
í gerðardómi sitja 5 menn. Einn
kýs læknadeild Háskólans og er
hann formaður dómsins. En 2 kýs
Læknafélag fslands, og skal ann-
ar þeirra vera héraðslæknir. Þá
kýs málspartur einn lækni i dóm-
inn og skal hann vera i Læknafé-
lagi íslands. Varamenn skulu
kosnir jafnmargir af sömu aðilj-
um. Þeir taka sæti í dómnum, ef
dómara er rutt eöa hann forfall-
aður. Allar kærur og erindi til
gerðardómsins sendist formanni.
Fari annarhvor málspartur fram
á það, hefir hann rétt til að rj'ðja
einum hinna föstu dómenda úr
dómnum. Tekur þá sá varamaður
sæti í hans stað. er dómurinn
kveður til þess. Nú er formanni
rutt og velur dómurinn sér þá for-
mann“.
Sigurður Sigurðsson benti á
það. að ef deila kæmi upp milli
L. í. og einhvers annars læknafé-
lags, þá kærni L. í. til með að
ráða 3 mönnum í dómnum.
'JBreytingartillögurnar voru sam-
þyktar með öllum greiddum at-
kvæðum.
Þá var kosið í gerðardóm, co-
dex ethicus, til eins árs. Þessir
voru kosnir:
Matthías Einarsson og Árni
Árnason. Til vara: Bjarni Snæ-
björnsson og Þórður Edilonsson.
9. mál.
Næsti fundarstaður: Stjórninni
falið að ákveða fundarstað fyrir
næsta aðalfund.
10. mál.
Samþykt að hafa árgjaldið sama
og verið hefir undanfarin ár.
11. mál.
Formaður fór fram á leyfi fund-
arins að gefa skuldugum félags-
mönnum eftir skuldir þeirra við
félagið. Sanrþykt i einu hljóði.
12. mál.
Maggi J. Magnús. — Erindi:
..Holdsveikraspítalinn 40 ára“. Er-
indið, sem var mjög fróðlegt, var
þakkað með lófataki.
Var þá dagskrá lokið, en fund-
arstjóri tók til máls og ávarpaði
fundarmenn nokkrum orðum,
þakkaði góða fundarsókn, einkum
lýsti hann ánægju yfir þeim fjölda
utanbæjarlækna. sem sótt hefðu
fundinn.
Að svo mæltu sleit hann fundi
kl. 23,30.
Þórður Edilonsson
(Sign.)
Karl Sig. Jónasson
(Sign.)
Þetta ágrip er sarnið af fund-
arriturunum, þeim læknunum Páli
Sigurðssyni og Karli S. jónassyni.
Félagsprentsmiðjan h.f.