Læknablaðið - 01.12.1938, Síða 17
LÆKNABLAÐIÐ
12 7
Sauoárkrókshéraði, veitt lausn
frá embætti frá næstu áramótum.
Helgi Ingvarsson, aÖstoðarlæknir á
VífilsstöÖum, skipaður yfir-
læknir ])ar frá næstu áramótum.
Karl Magnússon, héraðslæknir í
Hólmavíkurhéraði, settur til að
þjóna Reykjarfjarðarhéraði á-
samt sínu héraði frá I. des.
Óskar Einarsson, yfirlæknir við
Reykjahælið, ráðinn aðstoðar-
læknir á Vífilstöðum frá næstu
áramótum.
Úr erlendum læknaritum.
Pruritus ani.
Harry E. Bacon skýrir frá með-
ferð sinni á pruritus ani og hefir
hann notað hana við 133 sjúkliriga.
Meðferðin er fólgin í ]iví, að þri-
destilleruðu vatni er dælt undir húð-
ina á staðnum. Eftir-rannsókn á
sjúklingunum leiddi í ljós, að eft-
ir 2/—3 ár, var enn um greini-
legan liata að ræða hjá 94,3% hinna
sjúku og voru sumir þeirra alger-
lega lausir við einkenni.
Þykir mér rétt að gefa nákvæma
lýsingu á aðferðinni:
Sjúklingurinn er látinn liggja á
vinstri hlið, hálfgert á grúfu. Sá
bletturinn, þar sem kláðinn er mest-
ur eða húðbólga mest, er valinn
fyrst og svæðið hreinsað með alko-
hol, sem strax er þerrað af. Rétt
utan við kláðasvæðið er smáblett-
ur hreinsaður með alkohol og joð-
áburði, sem er ])ó þveginn af aft-
ur með alkohol. Þar er húðin deyfð
með 1% procain-upplausn, og síð-
an er dælt 1 ccm. af i°/c procain-
upplausn undir húðina á kláðasvæð-
inu. Nota skal til þessa granna, ca.
8 cm. langa nál og er hún skilin
eftir in situ. Þegar dofið er orðið,
er 10 ccm. af þrí-destilleruðu vatni
dælt hægt inn undir þann hluta
kláðasvæðísins, er taka skal fyrir
í það sinn.
Eftir 3—4 daga er næsti blettur
tekinn fyrir og þáfinig koll af kolli,
uns umferðin er búin. Venjulega
nægja 8 inndælingar, en halda skal
áfram, ef þörf gerist. Höfundur
notaði 5 ccm. af vatni í stað 10 í
um helming tilfellanna. (General
Therapeutics 1937, ref.: J. Sæm.).