Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.1944, Síða 7

Læknablaðið - 01.12.1944, Síða 7
LÆKNAB LAÐIÐ GEFIÐ ÚT AF LÆKNAFÉLAGI REYKJAVÍKUR Aðalritstjóri: ÓLAFUR GEIRSSON. Meðritstjórar: BJÖRN SIGURÐSSON frá Veðramóti og JÓHANNES BJÖRNSSON. 29. árg. Reykjavik 1944. 10. tbl. Athuganir á inflúenzufaraldri í nóv.—des. 1943. Eftir Ólaf Bjarnason AriÖ 1933 tilkynntu ])eir Smith, Andrewes og Laidlaw (1) að ])eir hefðu fundið vírus í hálsskolvatni frá inflúenztisjúklingum og að allar líkur lientu til. að vírus þetta væri orsök faraldurs af inflúenzu, sem gekk i Englandi það ár. Næstu árin á eftir lék enn vafi á því, hvort sérstaklega kynni að hafa staðið á um þenna faraldur, eða hvort fund- ist hefði hin almenna orsök influ- enzunnar. 1 hvérjunt faraidri, sem síðan hefir komið upp, hefir þess vegna verið reynt að ganga úr skugga um hvort orsökin væri santskonar eða svipað vírus því, sem Smith. And- rewes og Laidlaw lýstu 1933. Aðferðirnar til að' finna hvort faraldur orsakast af ])ekktu vírus eru tvennskonar. Annarsvegar að taka hálsskolvatn úr grunuðtim sjúklingi og gera tilraun til að sýkja með þvi móttækileg dýr. Voru fyrst notaðir merðir en á síðústu árum einnig hænsnafóstur, en þau eru ntjög móttækileg fyrir int'lú- enzuvírus. Sjúkdómur sá, sem inflú- enzuvírus orsakar í dýrununt er vel þekktur og ntá til frekara öryggis prófa hvort sýkingarmáttur vírus- og Björn Sigurðsson. ins hverfur sé það blandað serum, sem kunnugt er um að inniheldur mótefni gegn inflúenzu. Þesskonar einangrun á vírus er æði fyrirhafn- arsöm og tímafrek, en segja má að hún gefi beinasta sönnun fyrir ])vi hvaða vírus er á ferðinni. Hin aðalaðferðin til að finna hvort inflúenzuvírus orsakar far- aldur er að l)era santan vírus-mót- efnainnihald i blóði sjúklinganna, ]>egar ])eir veikjast, og aftur nokkr- unt vikum eftir að þeir eru orðnir frískir. Hafi inflúenzuvírus verið á ferðinni vaxa mótefnin í blóðinu en ])au má mæla með því að blanda seruminu og ])ekktum vírusstofni i tilteknum þynningum og athuga hve mikið serurn þarf til að eyða virusverkuninni. Fyrst framan af var þetta gert á þann hátt, að sarnan við vírus- hlöndur af jöfnum tilteknum styrk- leika. var liætt hækkandi þynningum af seruminu, sem prófa átti. Hverri blöndu var síðan dælt i nef nokk- urra tilraunadýra. Minnsta magn af serunt, sem dugði til að hjarga lífi tilraunadýranna (oftast ntúsa) var ])á kallað ,,titer“ serumsins.' Ef titerinn var a. m. k. fjórurn

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.