Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1980, Síða 14

Læknablaðið - 15.08.1980, Síða 14
176 LÆKNABLADID lækni eða pann, sem hefur stundað hann, annað hvort alls ekki eða pá aðeins eftir óhóflega langan tíma (dæmi: sjúklingur leitar vaktlæknis). Þegar þannig stendur á, gerir læknir aðeins pær ráðstafanir, sem nauðsynlegar eru eins og á stendur, og gerir lækni sjúklingsins sem fyrst grein fyrir peim. c) Sjúklingur óskar eftir að fá tafarlaust að skipta um lækni. d) Læknar eru í samvinnu um sjúklingahóp eða íbúa á vissu landsvæði. 2. Nú skoða fleiri læknar sjúkling saman og svo ber til, að peir eru ekki sammála eða vilja bera saman bækur sínar. Geri peir pað í viðurvist sjúklinga eða aðstandenda, skulu læknarnir haga orðum sínum svo, að peir skapi ekki óvissu eða ótta hjá peim, sem á hlýða. 3. Lækni er skylt að forðast af fremsta megni að hafast nokkuð að, er veikt gæti trúnað- arsamband hans við sjúklinga. Honum er óheimilt að Ijóstra upp einkamálum, sem sjúklingar hafa skýrt honum frá eða hann hefur fengið vitneskju um í starfi sínu, nema með sampykki sjúklingsins, eftir úrskurði eða samkvæmt lagaboði. Einnig ber honum að áminna samstarfs- fólk um að gæta fyllstu pagmælsku um allt, er varðar sjúklinga hans. 4. Lækni ber að halda til haga gögnum, sem skipt geta máli í samskiptum við sjúklinga eða aðra aðila síðar. Um afhendingu slíkra gagna fer eftir reglum greina 1.9 og 11.3 í Codex pessum. 5. Það er meginregla, að læknir skýri sjúk- lingi frá sjúkdómi hans, ástandi og horfum. Að svo miklu leyti, sem pagnarskylda læknis leyfir, má hann gefa aðstandendum sjúklings pær upplýsingar um sjúkdóm hans og batahorfur, sem læknir telur nauðsynleg- ar eða pjóni einhverjum jákvæðum tilgangi fyrir sjúklinginn. Læknir skal, eftir pví sem tök eru á, útskýra fyrir sjúklingi eðli og tilgang rannsókna og aðgerða, sem hann gerir eða ráðleggur sjúklingnum. Þess skal ávallt gætt og ef með parf, skal sjúklingi gert pað Ijóst, að læknir ráðleggur, en skipar ekki. III. Ákvæði um samskipti lækna 1. Lækni er skylt að auðsýna stéttarbróður drengskap og háttvísi jafnt í viðtali sem umtali, ráðum sem gerðum. Honum ber að forðast að kasta rýrð á pekkingu eða störf stéttarbróður. Lækni er ósæmandi að vera í vitorði um, eiga pátt í eða stuðla að ráðstöfunum, sem leitt geta til skerðingar á atvinnuöryggi annars læknis, nema slíkar ráðstafanir séu að hans dómi nauðsynlegar vegna hags- muna eða öryggis sjúklinga eða almenn- ings. Telji hann, að svo sé, og pá fyrst og fremst, að ástæða sé til íhlutunar vegna misferlis eða vanhæfni stéttarbróður i starfi, skal hann snúa sér til landlæknis og siðanefndar Læknafélags íslands. 2. Sérmenntaður læknir skal að lokinni rann- sókn eða meðferð láta heimilislækni og tilvísandi lækni í té skýrslu um rannsóknir sínar og/eða meðferð. Nú álítur hann, að sjúklingurinn parfnist athugunar eða með- ferðar annars sérmenntaðs læknis, og skal hann pá skýra lækni sjúklingsins frá pví. Sérmenntuðum lækni, sem stundar aðsend- an sjúkling á sjúkrahúsi, ber að sjá svo um, að heimilislækni séu sendar skýrslur um rannsókn sjúklingsins, sjúkdómsgreiningu og meðferð. Einnig leiðbeiningar/tillögur um framhaldsmeðferð, ef hennar er pörf. Skýrslur pær, sem um getur í 1. og 2. málsgrein hér að ofan, skulu sendar heimilis- lækni og tilvísandi lækni eins fljótt og unnt er, eftir að rannsókn og meðferð hjá sér- fræðingi lauk eða sjúklingur fór af sjúkra- húsi. Gildir pað jafnt, pó að sjúklingur sé í framhaldsmeðferð eða eftirliti á göngudeild sjúkrahússins. Tilkynna skal heimilislækni eða öðrum viðkomandi lækni, pegar sjúk- lingur er vistaður á sjúkrahúsi eða annarri heilbrigðisstofnun. Læknir, sem sinnt hefur sjúklingum annars læknis vegna forfalla eða fjarvista, skal aftur vísa peim til síns læknis að staðgöngu- tíma liðnum. 3. Allir læknar, makar peirra, ekkjur, ekklar og ófullveðja börn eiga rétt á ókeypis læknishjálp af hendi pess læknis, sem hinn sjúki kýs sér. 4. Lækni er ósæmandi samvinna um læknis- verk nema við lækna og aðra pá, sem hafa

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.