Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.08.1980, Síða 16

Læknablaðið - 15.08.1980, Síða 16
178 LÆKNABLADIÐ kynntir málavextir og þeir beðnir að leggja fram rök sín og málsgögn. Meginregla er, að aðilar fái aðeins tvisvar að gera grein fyrir máli sínu. Þó má gera par undantekning- ar, ef ný viðhorf koma fram í síðari umferð og gera frekari málflutning æskilegan og eðlilegan að mati dómsins. 2. Aðilum er skylt að gefa dómi sem fyllstar upplýsingar, munnlega eða skriflega eftir ósk dómsins. Sé aðili forfallaður, má hann láta annan lækni mæta fyrir sig. Ennfremur má aðili mæta með lögfræðing sér til aðstoðar, sé hann kvaddur fyrir dóminn. Hann má og leggja fram skriftega vitnis- burði eða yfirlýsingar priðja aðila. 3. Dómurinn getur sjálfur aflað sér upplýsinga og leitað peirra hjá sérfróðum mönnum eða öðrum utan dómsins. Málsaðilum skulu kynntar slíkar upplýsingar, áður en úrskurð- ur er kveðinn upp. Allir félagsmenn Lækna- félags íslands eru skyldir að gefa dómnum pær upplýsingar, sem hann óskar eftir. 4. Allar ákvarðanir dómsins, bæði í sambandi við málflutning og úrskurð, byggja á meiri- hluta atkvæða. Sé um ágreining að ræða, á minnihluti rétt á, að ágreinings sé getið í gerðabók (sjá síðar) með stuttri rökfærslu. 5. Þegar dómurinn telur mál nægilega upplýst, skal pað tekið til úrskurðar. 6. Gerðardómurinn heldur gerðarbók. Þar skal getið um forsendur máls og niðurstöðu pá, sem Gerðardómurinn komst að. Skrá skal: a) Hvenær málið barst Gerðardómi. b) Hve oft aðilar hafa sett fram rök sín og hvernig. c) Hvort leitað hefur verið til sérfróðra manna eða annarra utan dómsins, og hafi svo verið, til hverra var leitað, á hvaða stigi málsins og af hvaða tilefni. d) Hve marga fundi Gerðardómur hefur haldið um málið og hvenær. e) Hvort aðiiar hafa verið kallaðir fyrir dóminn eða fengið að mæta fyrir honum og hvenær. f) Stutt ágrip af staðreyndum málsins. Séu aðilar ósammála um pær, skal skýrt frá sjónarmiðum beggja og tekið fram, hvað dómurinn aðhyllist sem forsendur úrskurðar, p.e. hva'ð hann telur sannað í málinu. g) Mat pessara staðreynda í Ijósi Codex Ethicus. Úrskurð Gerðardóms. h) Hvort dómendur eru allir sammála eða ekki. Sé um sératkvæði að ræða, skal gera forsendum peirra og úrskurði jafn góð skil og úrskurði meirihlutans. 7. Standi enginn meirihluti að dómi, skal sá dómur gilda, sem flestir aðhyllast. (Hér getur aðeins verið um að ræða ákvörðun refsingar, ef L.í. er aðili máls.) 8. Gerðarbók dómsins er eign Læknafélags íslands. 9. Formaður Gerðardóms sér um, að stjórn Læknafélags íslands sé tilkynnt um gerðir dómsins, forsendur hans og niðurstöður, innan fjögurra vikna frá pví, að úrskurður var kveðinn upp eða máli vísað frá dómi. Um málsmeðferð hlítir Gerðardómur að öðru leyti peim réttarfarsreglum, sem tíðkast hér á landi á hverjum tíma, svo fremi málsaðilar hafi ekki komið sér saman um annað. Gerðardómur skal dæma í hverju máli, sem hann fær til meðferðar, svo fljótt sem verða má og eigi síðar en innan misseris, frá pví að málsaðilar kusu dómara, nema aðilar hafi komið sér saman um lengri frest. Stjórn Læknafélags fslands skal sjá um, að ekki líði nema mest 6 vikur, frá pví að málsskot berst henni og par til pað hefur verið tilkynnt málsaðilum og peir beðnir að kjósa menn í dóminn. Þeir skulu síðan kjósa menn til og tilkynna formanni dómsins um pá innan 6 vikna. Skal pví mest líða 9 mánuðir, frá pví að málsskot berst stjórn Læknafélags íslands og par til Gerðardómur kveður upp úrskurð sinn. Gerðardómur kveður aðeins á um sekt eða sakleysi, en siðanefnd L.í. ákveður refsingu eða viðurlög í samræmi við ákvæði 20. gr. laga Læknafélags íslands. Sú undatekning er pó, að par sem L.Í., stjórn eða nefndir pess eru aðili máls, skal Gerðardómur ákveða refsingu. Stjórn Læknafélags íslands skal sjá um, að dómur sé birtur aðilum innan fjögurra vikna, frá pví að refsing var ákveðin. Forsendur og dómsorð skal birta í Læknablaðinu, ef Gerðar- dómur ákveður svo.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.