Læknablaðið - 15.08.1980, Page 25
LÆKNABLAÐID
185
6. gr.
Reikningar sjóðsins, endurskoðun og afgreiðsla
Reikningsár sjóðsins er almanaksárið.
Reikningar sjóðsins skulu endurskoðaðir af löggiltum endurskoðanda, svo og af félagslegum
endurskoðendum Læknafélags íslands.
Stjórn sjóðsins er heimilt að semja við Læknafélag íslands eða aðra aðila um, að þeir annist
afgreiðslu fyrir sjóðinn.
7. gr.
Tryggingafræðileg athugun
Fimmta hvert ár skal stjórn sjóðsins fá tryggingafræðing til að reikna út fjárhag sjóðsins. Hann
skal semja skýrslu um athugun sína og gera upp efnahagsreikning á grundvelli útreikninganna.
Telji tryggingafræðingurinn, með hliðsjón af kaupgjaldspróun og öðrum atriðum, sem máli
skipta, rannsókn sína leiða í Ijós, að fjárhagur sjóðsins sé ótryggur, skal hann gera tillögur til
sjóðsstjórnar um hlutfallslega lækkun lífeyrisréttinda. Er stjórninni skylt að fara eftir peim
tillögum nema tryggingafræðingurinn telji aðrar ráðstafanir hennar fullnægjandi. Telji hann hins
vegar aukningu lífeyrisréttinda á rökum reista, skal hann gera tillögur un hlutfallslega hækkun
þeirra. Sjóðsstjórn má aldrei auka réttindi meira en tryggingafræðingur hefur gert tillögur um.
8. gr.
Avöxtun á fé sjóðsins
Stjórn sjóðsins sér um ávöxtun á fé hans, og skal pað gert á eftirfarandi hátt:
1. í ríkisskuldabréfum.
2. í skuldabréfum, sem tryggð eru með ábyrgð ríkissjóðs.
3. í bönkum og sparisjóðum, sem fullnægja ákvæðum laga nr. 69/1941, svo og í innlánsdeildum
skv. lögum um samvinnufélög.
4. f skuldabréfum tryggðum með veði í húseignum allt að 50 % af brunabótamatsverði eða, sé
brunabótamat ekki fyrir hendi, pá af matsverði, sem ákveðið er af tveimur mönnum, sem
fjármálaráðherra tilnefnir, og allt að 75 % af fasteignamatsverði lóða í kaupstöðum og
kauptúnum.
9. gr.
Iðgjöld og aðrar greiðslur til sjóðsins
Sjóðurinn tekur við iðgjöldum, sem greidd eru vegna sjóðfélaga samkvæmt kjarasamningum
Læknafélags íslands eða svæðafélaga lækna.
Heimilt er stjórn sjóðsins að taka við iðgjöldum, er einstakir sjóðfélagar skuldbinda sig til að
greiða sjálfir, að svo miklu leyti sem aðrar árlegar iðgjaldagreiðslur peirra veita ekki >/3, 2/3 eða
heilt stig, sbr. 10 gr. Óski sjóðfélagi að taka upp eða hækka slíkar eigin greiðslur, gilda ákvæði 4.
málsgreinar 3. greinar, nema sjóðsstjórn telji breytinguna eðlilega afleiðingu pess, að
sjóðfélaginn skiptir um starf.
Iðgjöldum frá vinnuveitendum skal skilað til sjóðsins eigi síðar en tveimur vikum eftir að pau
féllu í gjalddaga. Stjórn sjóðsins setur reglur um greiðslur, sem sjóðfélagar sjálfir inna af
hön,dum og að jafnaði skulu eiga sér stað mánaðarlega.
Sjóðurinn veitir ekki viðtöku iðgjöldum, sem greidd eru vegna sjóðfélaga, eftir að hann hefur
hafið töku ellilífeyris úr sjóðnum.
Heimilt er stjórn sjóðsins að veita viðtöku fé, sem sjóðfélagi óskar að yfirfæra úr öðrum
lífeyrissjóði, sem stofnaður er með lögum eða nýtur viðurkenningar fjármálaráðuneytisins.
Sjóðfélagar bera eigi ábyrgð á skuldbindingum sjóðsins nema með iðgjöldum sínum.
Stjórninni er heimilt að fella niður iðgjaldagreiðslur í mest 2 ár, þegar ungir sjóðfélagar eiga
í hlut og lenda í greiðsluvandræðum vegna framhaldsnáms erlendis eða af öðrum ástæðum, sem
stjórnin metur gildar. Iðgjaldagreiðsla fyrir og eftir slíkt tímabil telst samfelld, sbr. 12.-14. gr.