Læknablaðið - 15.08.1980, Qupperneq 28
188
LÆKNABLADID
16. gr.
Flutningur í aðra sjóði
Hætti sjóðfélagi iðgjaldagreiðslu til sjóðsins og gerist jafnframt sjóðfélagi í öðrum lífeyrissjóði,
sem stofnaður er með lögum eða nýtur viðurkenningar fjármálaráðuneytisins, er stjórn sjóðsins
heimilt að endurgreiða með vöxtum öll iðgjöld, sem greidd hafa verið hans vegna. Sama gildir,
ef sjóðfélaginn kaupir sér lífeyri hjá tryggingafélagi eða stofnun, sem starfar eftir reglum, er
fjármálaráðuneytið sampykkir. Pað er skilyrði fyrir endurgreiðslunni, að hún gangi til kaupa á
lífeyrisréttindum fyrir viðkomandi mann í peim sjóði, er hann flyzt til, eða hjá tryggingafélagi
eða stofnun, svo sem að framan greinir.
Aldrei má endurgreiða hærri fjárhæð en parf til pess að kaupa réttindi í sjóði, sem flutzt er
til, er svari til iðgjaldagreiðslutíma í Lífeyrissjóði lækna.
Það skal ennfremur sett sem skilyrði fyrir endurgreiðslu skv. pessari grein, að tilsvarandi
takmarkanir gildi um endurgreiðslu eða endurkaup, par sem réttindi eru leyfð, eins og eftir
pessari reglugerð.
Fé, sem yfirfært kann að verða úr öðrum lífeyrissjóði, veitir ekki frekari endurgreiðslurétt en
gildir í sjóðnum, sem pað er yfirfært úr.
17. gr.
Greiðslur lífeyris
Lífeyrir greiðist mánaðarlega eftir á, í fyrsta sinn fyrir næsta mánuð eftir að lífeyrisréttur
stofnast, og í síðasta sinn fyrir pann mánuð, er réttur til lífeyris fellur úr gildi.
Sé lífeyris ekki vitjað í 5 ár, getur stjórn sjóðsins úrskurðað, að rétturinn til greiðslu falli
niður, og rennur pá fjárhæðin til sjóðsins.
18. gr.
Bann við framsali og veðsetningu
Óheimilt er að framselja eða veðsetja lífeyriskröfur skv. reglugerð pessari.
19. gr.
Gerðardómur
Rísi ágreiningur út af reglugerð pessari milli sjóðstjórnar annars vegar og sjóðfélaga, eftirlifandi
maka hans eða fjárhaldsmanns ólögráða barns, kjörbarns eða fósturbarns hans hins vegar, getur
hinn síðarnefndi lagt málið fyrir gerðardóm. Skal hvor aðili skipa einn gerðardómsmann af sinni
hálfu, en síðan koma gerðardómsmenn pessir sér saman um oddamann. Verði ekki samkomulag
um oddamann, skal hann tilnefndur af yfirborgardómaranum í Reykjavík.
Úrskurður gerðardóms er bindandi fyrir báða aðila og verður ekki lagður fyrir dómstóla.
Kostnaður við gerðardóminn skiptist milli aðila eftir mati dómsins.
20. gr.
Breytingar á reglugerðinni
Breytingar á reglugerð pessari eru pví aðeins gildar, að pær hafi verið sampykktar á aðalfundum
sjóðsins tvö ár í röð.
Bráðabirgðaákvæði
Heimild pá, sem stjórn sjóðsins hefur skv. 5. málsgr. 9. gr. til að taka við fé, sem óskað er eftir
flutningi á ur öðrum sjóðum lækna, skal hún nota á pann veg, að ekki valdi pessum sjóðum
óeðlilegum erfiðleikum, og skylt er stjórninni að hafa í pessu efni samráð við stjórnir
hlutaðeigandi sjóða.