Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2007, Qupperneq 22

Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2007, Qupperneq 22
„Ég elska íslenska sumarið,“ segir Sheba Wanjiku, framkvæmdastjóri Segafreda við Lækjartorg. Sheba, sem er fædd og uppalin í Kenía, seg- ir loftslagið þar og hér á landi eiga það sameiginlegt að vera laust við raka sem geri kulda og myrkur erf- iðari en ella. „En auðvitað verður aldrei eins heitt hér og í Kenía,“ seg- ir hún hlæjandi. „Annars var var þessi fallegi dag- ur aðeins forsmekkurinn að því sem koma skal. Á sumrin myndast oft röð af fólki sem býður eftir því að fá að setjast út í sólina með kaffibollann. Stundum er röðin svo löng að hún hlykkjast um allt torgið. Sólin gerir það að verkum að það er meira að gera hérna á kaffihúsinu og Íslend- ingar brosa breiðar þegar þeir loks- ins gefa sér tíma til þess að setjast niður í rólegheitum úti í sólinni.“ Sheba viðurkennir að íslenska sumarbirtan rugli hana svolítið í ríminu. „Á sumrin finnst mér ég þurfa að fást við eitthvað langt fram eftir nóttu þótt ég hafi ekki hugmynd um hvað það ætti að vera. Ég fer seint að sofa og vakna snemma og það er eitthvað eirðarleysi í mér. Birtan hefur ekki áhrif á dóttur mína en ég finn mikið fyrir henni. Ég bý í íbúð sem er á efstu hæð og birtan sem berst inn er mjög sterk og krefjandi. Þegar veturinn tekur völdin bæti ég mér svefnleysið upp með því að sofa upp í tólf tíma á dag.“ Sheba segist ekki hlakka jafn- mikið til sumarsins nú og oft áður, því undanfarið hafi sumrin ekki ver- ið mjög góð. „En ég er svo heppin að geta ráðið því sjálf hvort ég tek mér frí frá vinnu á veturna eða sumrin og því þarf ég ekki að treysta á íslenskt sumarveður.“ thorunn@dv.is fimmtudagur 8. mars 200722 Lífsstíll DV LífsstíLL Njótum lífsiNs Notaðu hverja stund sem þú hefur aflögu til að njóta birtunnar og sólarinnar. farðu snemma á fætur og njóttu morgunsólarinnar. Á morgnana stafar húðinni minnst hætta af útfjólubláum geislum. Komdu þér upp vissum venjum, til dæmis íhugun eða hreyfingu utandyra í að minnsta kosti 20 mínútur á hverjum morgni. snúðu andlitinu að sólu og ímyndaðu þér að þú andir að þér sólarljósinu í hvert sinn sem þú dregur að þér andann og hvernig líkaminn dragi til sín ljósið. Sheba frá Kenía hefur búið á Íslandi í fimm ár: sumarbirtaN sterk og krefjaNdi Sheba er fædd og uppalin í Kenía „Íslendingar brosa breiðar í sólinni.“ „Við breytumst í félagsverur um leið og sólin fer að skína. Við gerum meira af því að hitta fólk og það hefur mikil bætandi áhrif á sálarlífið,“ segir Guð- rún Árnadóttir sálfræðingur. „Um leið og birtir úti birtir í sálinni. Ef veðrið er vont er okkur eðlislægt að leita í skjól. Skammdegisþunglyndi eykst eftir því sem norðar dregur en samt sýna íslenskar rannsóknir að það er ekki eins algengt hér og í öðrum löndum á sömu breiddargráðu. Kannski er ein skýringin sú að við höfum góðan aðgang að rafmagnsljósinu og þurf- um ekki að spara eins mikið við okkur og margar aðrar þjóðir. Annars bend- ir margt til þess að þetta sé arfgengur sjúkdómur og sennilegt að boðefn- ið serótín eigi hlut að máli. Auðvitað þurfum við á meira sólarljósi að halda og það kemur í ljós að ljósameðferð er virk og ber árangur ef hún er stunduð reglulega í dimmasta skammdeginu.“ Guðrún útskýrir að það sé ótal margt sem geti haft áhrif á sálarlíf okkar, sumar sem vetur. „Við skríðum inn í híðið okkar í myrkrinu og við það bætist að það er oft kalt úti. Það er ljóst að dagsljósið hefur áhrif á líðanina og það styrkir bæði líkamlegt og andlegt kerfi líkam- ans. Annars er mjög misjafnt hversu mikil áhrif myrkur og skammdegi hafa á okkur. Ef við erum undir miklu álagi eða göngum í gegnum erfiða tíma þá verða áhrifin meiri en ef við erum að sinna skemmtilegum verk- efnum um miðjan vetur.“ Guðrún segir að hægt sé að grípa til ýmissa ráða til þess að létta lundina yfir veturinn. „Ef við upplifum skammdegið sem ógn þá er það ógn. En okkur þarf ekki að líða illa. Sumir bregða á það ráð að nota lampa sem líkir eftir dagsljósi, byrja gjarnan daginn á því að setjast við þannig lampa við morgunverðar- borðið til þess að fá birtu í sálina. Það er líka mikilvægt að reyna að gæta þess að láta ekki myrkur og kulda ráða ferðinni og koma í veg fyrir hreyfingu. Þegar við hreyfum okkur endurnýjast frumur í ákveðnum hluta heilans sem auka vellíðan. Þannig er lífið, keðju- verkun sem við stjórnum ekki að fullu leyti sjálf.“ thorunn@dv.is Dagsljósið hefur jákvæð áhrif Guðrún Árnadóttir sálfræðingur „auðvitað þurfum við á meira sólarljósi að halda.“ Í þungum þönkum Hugsanirnar verða léttari þegar sólin skín. allra meiNa bót margir sem hreyfa sig að staðaldri mega einhverra hluta vegna ekki hlaupa eða nenna því hreinlega ekki. sund er því tilvalin íþrótt, bæði til þess að koma sér í form og ekki síður skemmtileg tómstundaiðja. sundið er að mörgu leyti ákjósanlegri þjálfun- araðferð en hlaup. Vatnið gerir mann léttari og álag á liði og vöðva verður því minna en á þurru landi. sund er til- valin þjálfurnaðferð. Það styrkir hjarta og æðakerfi, lungun og vöðvakerfi líkamans. Íþrótta og tómstundaráð reykjavík- ur rekur sjö almenningssundlaugar í reykjavík. Þær eru sundhöllin, grafar- vogslaug, Klébergslaug, Vesturbæjar- laug, Breiðholtslaug, Laugardalslaug og Árbæjarlaug. Yfir vetrartímann eru laugarnar opnar virka daga frá klukkan 6:30 til 22:30 og um helgar frá klukkan 8:00 til 20:30. grunnþjónusta lauganna er sundlaug sem hentar jafnt almenn- ingi til líkamsræktar, leikja og slökunar og til kennslu. Heitir pottar, eimbað og/eða gufubað er við allar laugarnar. Einnig eru sérstök leiksvæði fyrir börn í sumum lauganna með rennibraut- um og vaðlaugum. Þá eru ákjósanleg hlaupasvæði fyrir þá sem það kjósa, í nágrenni flestra lauganna. kraftgaNga Kraftganga er mjög árangursrík að- ferð til þess að komast í form. Þessi þjálfunaraðferð býður upp á mikla fitubrennslu og hentar því sérstaklega vel þeim sem hafa það að markmiði að létta sig. Kraftganga er þjálfunarform sem allir geta stundað. ganga bætir þol, styrkir vöðva, brennir fitu og eykur orku, auk þess sem æfingaðstaða utan- dyra kostar ekki neitt. skór skipta miklu máli til að draga úr álagi á liði. tónlist er gott hjálpartæki og öll tónlist virkar. reglubundin hreyfing er fjárfesting til heilsu. sýnt hefur verið fram á að það er aldrei of seint að byrja að hreyfa sig. stuttur þráður skammdegið fer misvel í okkur. margir kunna vel við sig í rökkrinu, kveikja á kertaljósum og hafa það notalegt, meðan aðrir sakna birtunna og eiga erfitt með að aðlagast lækkandi sól. Öll finnum við fyrir breytingum á andlegri líðan af einum eða öðrum toga eftir árstíðum. Þær geta verið kraftleysi, mislyndi, svefntruflanir, aukin matar- lyst og minnkuð löngun til samskipta við annað fólk. svo langt gengur hjá sumum að þeir hafa allt á hornum sér, geðillskan hefst um leið og augun eru opnuð og það hefur áhrif á líðanina það sem eftir lifir dags. Árstíðabundnar sveiflur sem þessar ættu senn að fara að dvína þar sem daginn lengir ört. dagsbirtu nýtur í tæpar ellefu klukku- stundir í dag. sólarupprás var klukkan 8:12 í reykjavík í morgun og sólsetur er klukkan 19:06. að viku liðinni hafa bæst við 45 mínútur og enn aðrar fjörutíu og fimm mínútur 22. mars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.