Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2007, Síða 25
Leita að
nýjum meðlim
Raunveruleikasjónvarpsþáttur
um leit stúlknasveitarinnar The
Pussycat Dolls fór í loftið
vestanhafs í vikunni. Þátturinn
ber heitið Pussycat Dolls Present:
The Search for The Next Doll og
fjallar um níu ungar konur sem
berjast innbyrðis um að verða
sjöundi meðlimur sveitarinnar.
Keppendurnir eru ekki bara
söngvarar heldur einnig færir
dansarar eða hafa yfir öðrum
frambærilegum hæfileikum að
ráða.
DV Sviðsljós fimmtudagur 8. mars 2007 25
Karlafar
á ashlee simpson
Sienna Miller búin
að fá sig fullsadda
Sienna Miller fær nóg í viðtali við Breska blaðið The Guardian
og mætir í partý í frekar sérstöku dressi.
Factory Girl stjarnan hún Sienna
Miller kom mörgum á óvart þegar
hún varð frekar opinská í viðtali við
breska Guardian á dögunum. Það
var slegið á létta strengi og allt gekk
vel þar til umræðurnar fóru að snú-
ast um ástarmál leikkonunar. Eins og
flestir vita hafa ástarmál leikkonunn-
ar verið frekar skrautleg en Sienna
Miller fékk alveg nóg í þessu viðtali.
Sienna sagði: „Það er víst þannig að
ég er búin að vera með hálfri Holly-
wood en það er bara ekki satt.“ Þetta
ár er ár druslunnar svo spread´em!
Þetta verður mitt móttó fyrir árið
2007.“ Eins og má sjá er leikkonan
alveg búin að fá nóg og segir að það
sé ótrúlegt hvað fólk nennir að tala
um og fylgjast með einkalífi hennar.
Sienna Miller vakti ekki bara athygli
fyrir þessi ummæli í breska blaðinu
The Guardian heldur líka fyrir það
hvernig hún mætti í partý nú á dög-
unum. En hún sagði í gríni að hún
hafi verið að reyna að koma á smá
tískubylgju en það hafi kannski ekki
alveg gengið eins vel og hún hafði
vonað.
Sienna Miller
á Bafta
Sienna Miller Vildi reyna að innleiða
þennan klæðnað. Veit ekki alveg
hvernig það mun fara?
Von á barni
Noel Gallagher og kærastan
hans Sara McDonald eiga von á
barni. Sara er komin þrjá mán-
uði á leið en gleðitíðindin voru
kunngjörð fyrr í vikunni. Barn-
ið verður það fyrsta sem Sara
eignast en Noel á fyrir sjö ára
dótturina Anais með fyrrver-
andi eiginkonu sinni. Noel og
Sara hafa tekið það bæði fram
að gifting sé ekki á döfinni þrátt
fyrir þungunina. Þau séu bæði
mjög hamingjusöm með stöðu
mála.
Hættur í
meðferð
Breska poppstjarnan Robbie
Williams hefur skráð sig út af
meðferðarheimilinu sem hann
dvaldi á í Bandaríkjunum. Þar
hefur popparinn verið síðasta
mánuðinn að berjast við fíkni-
efnavanda sinn. Talsmaður
stjörnunnar segir hann hafa lokið
meðferð sinni og að nú taki við
eftirmeðferð. Söngvarinn, sem
hefur selt yfir 65 milljónir platna,
skráði sig í meðferðina á 33 ára
afmælisdegi sínum, þann 12.
febrúar.
Allir eiga sitt
uppáhald
Það þekkja flestir það að eiga
eitthvað eitt sem er uppá-
halds, skórnir sem þú elskar
og ert alltaf í, buxurnar eða
jafnvel jakkinn. Hér má sjá
að sjörnurnar eru eins og við
þrátt fyrir rýmri efnahag.
Kate MoSS
Er þekkt fyrir að vera veik fyrir
hlébarðamunstrinu og hér má sjá
hana í hlébarðajakkanum sem
hún elskar.
Natalie PortMaN
getur ekki verið án ponsjóarinnar
sinnar. Hún veit hvað hún syngur
enda ponsjur algjör skyldueign.
KirSteN DuNSt
dunst sem er að slá sér upp með
Jake gyllenhaal er sæt í uppá-
haldsjakkanum sínum. Chad Hugo Og góðvinur
hans, Pharrell Williams.
hin tuttugu og tveggja ára gamla söngkona, Ashlee Simpson er að jafna sig eftir sam-bandsslit hennar og Pete Wentz. En hún er ekkert að liggja heima og vola, heldur eyðir hún öllum sínum frítíma í að leita að hin-
um eina sanna. Um síðustu helgi hvarf hún af Los
Angeles klúbbnum Les Deux í faðmi föngulegs pilt.
Pilturinn er Chad Hugo, NERD vinur og Neptunes
stjarna. Vitni á staðnum sögðu Ashlee Simpson hafa
verið slefandi yfir Ryan Phillippe en hann hafi ekki
viljað neitt með hana hafa og þar með endaði hún
með Chad. Ashlee Simpson neitar þessu öllu og
segir að þau séu vinnufélagar og ekkert annað.
ashlee Simpson segist vera heitust fyrir tónlistar�
mönnum og þá sérstaklega gaurum sem spila á gítar.
Hún segir að það sé líka mikilvægt að þeir séu fyndn�
ir og þeir mega ekki taka sig of alvarlega. Þeir sem
falla undir þetta ættu að fjárfesta í miða til Los �nge�
les og freista gæfunnar. Hver veit nema �shlee �imp�
son verður næsta tengdadóttir Íslands?