Dagblaðið Vísir - DV - 08.03.2007, Síða 32
Sprengihætta myndaðist á
Suðurlandsvegi þegar tengivagn
flutningabíls valt rétt fyrir ofan
Lögbergsbrekku um fjögurleyt-
ið í nótt. Ökumaður flutningabíls
slapp án meiðsla en tengivagn
bílsins lokaði veginum að mestu
og tókst ekki að fjarlægja hann fyrr
en um stundarfjórðungi í klukkan
átta í morgun. Þá hafði vegurinn
verið nær lokaður en reynt var að
hleypa bílum framhjá eftir því sem
færi gafst.
Sprengihætta myndaðist þeg-
ar gas tók að leka úr gastönkum
sem bíllinn flutti. Þegar bíllinn
fór á hliðina opnaðist fyrir tank-
ana og þó þeir væru næstum tóm-
ir lak nokkurt gas út. Lögregla
og slökkvilið höfðu því nokkurn
viðbúnað vegna hættunnar sem
myndaðist.
„Það er alltaf nokkur sprengi-
hætta þegar gas lekur út en það er
búið að koma fyrir það með því að
skrúfa fyrir gasið,“ sagði Sigurður
Guðmundsson, aðstoðarvarðstjóri
hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæð-
isins, á áttunda tímanum í morg-
un. Slökkviliðsmenn voru þó enn
á vettvangi og stóðu öryggisvakt ef
þeirra gerðist aftur þörf. Svo reynd-
ist þó ekki. Bílveltan hafði talsverð
áhrif á umferð um Suðurlandsveg-
inn í nótt og í morgun. Lögreglu-
menn stefndu að því að fjarlægja
bílinn áður en fólk færi að keyra til
vinnu í morgunsárið en það tókst
ekki. Reynt var að hleypa bílum
framhjá tengivagninum og kom-
ust vegfarendur því leiðar sinn-
ar þó eitthvað tefðust þeir vegna
óhappsins.
Fljúgandi hálka var á Suður-
landsveginum rétt fyrir ofan Lög-
bergsbrekku þar sem tengivagninn
valt. Talið er að orsök óhappsins
megi rekja til þess. brynjolfur@dv.is
fimmtudagur 8. mars 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910
Fréttaskot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónir fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur.
Að auki eru greiddar 10.000 fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaðarins.
Laugavegur 53b • 101 Reykjavík • 5 11 3350 • www.hereford.is
HerefordBorðapantanir í síma 511 3350
2 fyri
r 1 á
drykk
jum
hússi
ns 17
-19
Íslenska nautakjötið
klikkar ekki.
Notum eingöngu sérvalið
íslenskt nautakjöt á
Hereford steikhúsi
Sjötugur steluþjófur!
Þessi gamalmenni...
„Það er ekki enn ákveðið hvort Aron
Pálmi mun bera vitni,“ segir Einar S.
Einarsson, sem er forsvarsmaður RJF-
hópsins sem berst fyrir að fá Aron
Pálma Ágústsson heim úr fangelsi í
Texas en upp hefur komið hneyksli
sem skekur unglingafangelsi í Texas.
Samkvæmt fréttum ytra er talið að um
tæplega sjö þúsund unglingar, sem
hafa verið í unglingafangelsum í Tex-
as, hafi þurft að þola ofbeldi og nauð-
ganir. Þar á meðal er Aron Pálmi en
samkvæmt Einari hefur Aron orðið
fyrir kynferðisofbeldi í þeim fangels-
um sem hann hefur dvalið í.
„Það er hugsanlegt að yfirvöld láti
það bitna harkalega á honum ef hann
ber vitni,“ segir Einar og er þá að tala
um að þau svipti hann skilorði sem
hann mun vera á næstu fjögur árin.
Aron Pálmi þarf að lúta fjörutíu afar
ströngum reglum á meðan hann sit-
ur dóminn af sér. Að sögn Einars er
mögulegt, að ef yfirvöld fari í saumana
á þeim, þá geti komið í ljós að hann hafi
ekki uppfyllt eitthvert þeirra. Ástæðan
er ekki sú að hann sé að brjóta af sér
heldur sú, að það er nær ómögulegt
að standa við þær allar svo ekkert beri
út af. Verði hann uppvís að broti þýðir
það að hann fari í fangelsi ásamt full-
orðnum næstu fjögur árin. Það mun
vera martröð að sögn Einars.
Stutt er eftir af vistun Arons Pálma
en ef allt gengur eftir þá verður hann
kominn hingað til lands í ágúst. Þannig
að það er ljóst að mikið er í húfi.
„Ég hef hvatt hann til þess að bera
vitni,“ segir Einar en hann líkir málinu
við bandarískt Breiðuvíkurmál. Það
versta sé þó að ofbeldið viðgangist
enn þann dag í dag.
Hann segir Aron Pálma búinn að
standa sig ótrúlega vel og það sé hel-
víti á hann lagt.
„Þetta er hluti af hans hetjulegu
baráttu og þeim mun meiri sem mót-
byrinn verður, þeim mun hetjulegri
verður baráttan,“ segir Einar, sem er
í stöðugu sambandi við Aron úti í
Bandaríkjunum. Hann hvetur íslensk
stjórnvöld til þess að senda erindreka
út til hans til þess að gæta hagsmuna
hans. Mikið sé í húfi og mikilvægt að
hans verði gætt vel í þessu vandasama
máli sem ætlar að skekja Bandaríkin
öll.
BreiðuvíkurSkandall
Skekur Bandaríkin
aron Pálmi Ágústsson þarf hugsanlega að bera vitni vegna fangelsishneykslis:
Suðurlandsvegur lokaðist síðla nætur þegar tengivagn valt:
Sprengihætta á Suðurlandsvegi
dæmdur fyrir
hraðakstur
Maður var dæmdur fyrir að aka of
hratt tvisvar sinnum. Í annað skiptið
ók hann á 121 kílómetra hraða og hitt
skiptið á 114 kílómetar hraða. Maður-
inn vildi meina að radar sem lögregl-
an notast við að mæla hraða bíla væri
ekki að mæla hraða hans rétt.
Hann fullyrti að mælirinn sinn
hafði ekki sýnt meira en nítíu kíló-
metra hraða á klukkustund. Aftur á
móti treysti Héraðsdómur Suðurlands
betur á mæla lögreglunnar heldur
en framburð hans og dæmdi hann
til þess að greiða 30 þúsund krónur í
ríkiskassann. Auk þess er hann sviptur
ökuréttindum í þrjá mánuði.
Stal lax og
karamellum
Maður var dæmdur í fjögurra
mánaða fangelsi fyrir að stela lax
og karamellum auk þess að vera
með fíkniefni á sér, aka undir
áhrifum lyfja og fjölda annarra
brota. Maðurinn braust inn í JL-
húsið í maí á síðasta ári en það
mál var tekið saman við lyfjaakst-
urinn og fíkniefnabrotin, þar að
auki sprautaði maðurinn sig með
lyfinu Mogadon sem er rítalín-
tengt. Hann hefur margoft komist
í kast við lögregluna og því var
hann dæmdur til fjögurra mán-
aða fangelsisvistar af Hérðaðs-
dómi Reykjavíkur.
aron Pálmi Ágústsson Á góðri stundu með fjölskyldu og vinum en hann mun
hugsanlega bera vitni vegna kynferðisofbeldis sem skekur bandarísk unglingafangelsi.
eyjamenn hafna
auðlindaákvæði
„Þetta óneitanlega vekur manni
ugg,“ segir Elliði Vignisson, bæjar-
stjóri Vestmannaeyja, um umræð-
una um að auðlindir sjávar verði
skilgreindar í stjórnarskrá sem sam-
eign þjóðarinnar. Bæjarstjórn Vest-
mannaeyja hefur lýst andstöðu sinni
við slíka stjórnarskrárbreytingu og
telur það geta grafið undan sjávar-
útveginum, meginstoð atvinnulífs í
Vestmannaeyjum.
„Þetta væri ógn við Eyjar og aðra
þá sem lifa af auðlindinni,“ segir
Elliði. „Hér í Vestmannaeyjum tóku
útgerðarmenn okkar strax þátt í þró-
uninni og tóku sér forystuhlutverk í
henni,“ segir hann og vísar til kvóta-
kaupa Eyjamanna.
Fleiri hermenn
sendir til íraks
Rúmlega tvö þúsund bandarísk-
ir herlögreglumenn verða sendir
til Íraks til að reyna að auka öryggi
í höfuðborginni. Þeir bætast við þá
24 þúsund hermenn sem George W.
Bush Bandaríkjaforseti hafði þeg-
ar samþykkt að senda til Írak til að
fjölga í bandaríska herliðinu þar.
Robert Gates varnarmálaráð-
herra tilkynnti um nýjustu fjölgun-
ina þegar hann svaraði spurningum
bandarískra öldungadeildarmanna í
nótt að íslenskum tíma. Þetta sagðist
hann gera að beiðni David Petraeus
hershöfðingja, yfirmanns Banda-
ríkjahers í Írak. Sjötugur staðinn
að hnupli
Sjötugur maður var staðinn að
hnupli í matvöruverslun. Ekki er
vitað hvort lágur ellilífeyrir hafi
knúið hann til þessa. Annars voru
allnokkrir þjófar á kreiki á höfuð-
borgarsvæðinu á þriðjudaginn.
Tölvuskjá var stolið úr húsi í Hafnar-
firði og sams konar hlutur hvarf úr
grunnskóla í sama bæjarfélagi. Kerra
var tekin frá bensínstöð í Grafar-
vogi, dekkjum var stolið úr geymslu í
austurborginni og í miðborginni var
brotist inn í bíl og úr honum teknar
tvær ferðatöskur. Málin eru í rann-
sókn hjá lögreglunni.
DV1304080307
Á vettvangi í morgun Lögregla, slökkvilið og
menn á krönum unnu við að reisa tengivagninn og
tryggja öryggi þar sem tengivagninn valt.
valur grettisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is