Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2007, Blaðsíða 32
Sjópottur var tekinn í notkun í
Laugardalslauginni á föstudag, þó
hann sé ekki fullkláraður að utan.
Ásgeir Sigurðsson rekstrarstjóri segir
gestina taka vel í þessa nýjung því
meira að segja fastagestirnir eru farnir
að færa sig um set, en til þess þarf þó
nokkuð.
Potturinn tekur tvö tonn af sjó og
rúmar tíu til tólf manns. Hitastigið
í pottinum er fjörutíu gráður og er
sjórinn tekinn úr borholu í Laug-
arnesinu. Þaðan er vatninu dælt
í gegnum hverfið og ofan í pott-
inn. Á leiðinni fer sjórinn í gegnum
margfalda síun og á því að vera orð-
in tandurhreinn þegar í pottinn er
kominn. „Það er ótrúlega hressandi
að fara í svona sjópott. Svo er þetta
heilsusamlegt og hollt fyrir húðina,“
segir Ásgeir sem sjálfur er búinn að
prufa pottinn. Hann segir húðina
hafa verið mjúka eins og silki á eftir.
Aðspurður hvort saltið sé ekki vont
fyrir hárið segir hann fólk almennt
ekki fara með höfuðið ofan í því
vantið sé brimsalt.
Ásgeir segir útlendingana aðeins
farna að gefa pottinum gaum þó
enn eigi eftir að hlaða vegg við
enda hans þar sem upplýsingar
um pottinn verða bæði á íslensku
og ensku. Hugmyndina af sjópotti
segir hann hafa komið frá ÍTR en
fyrir er sjópottur í heilsulindinni
í World Class sem sambyggð er
sundlaugarbyggingunni.
„Okkar pottur er undir berum
himni sem er mjög heillandi og svo
er mun ódýrara að dýfa sér í hann, “
segir Ásgeir.
Aðsóknin í laugina hefur verið góð
í vetur eins og þann síðasta. Börnum
hefur fjölgað undanfarin ár að sögn
Ásgeirs enda hefur meiri rækt verið
lögð við börnin með leiktækjum og
svo er vatnsrennibrautin sívinsæl.
hrs@dv.is
þriðjudagur 27. mars 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910
Fréttaskot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur.
Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaðarins.
Laugavegur 53b • 101 Reykjavík • 5 11 3350 • www.hereford.is
HerefordBorðapantanir í síma 511 3350
2 fyri
r 1 á
drykk
jum
hússi
ns 17
-19
Íslenska nautakjötið
klikkar ekki.
Notum eingöngu sérvalið
íslenskt nautakjöt á
Hereford steikhúsi
Þarf Framsóknarskáldið ekki
að skella sér í pottinn og
slaka aðeins á...
Hlutfall efnis, unnið af ritstjórnum, í dagblöðum þriðjudag-
inn 13. mars. Dregið hefur verið frá innsett efni, selt efni og
auglýsingar.
Efni blaðanna
d
v v
ið
sk
ip
ta
b
la
ð
ið
m
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
Fr
ét
ta
b
la
ð
ið
80%
72%
66%
38%
misgóðar stækkanir Valgerður Halldórsdóttir, formaður Sólar í Hafnarfirði, gaf Gunnari Svavarssyni, forseta bæjarstjórnar í
Hafnarfirði, bol samtakanna með áletruninni Sumar stækkanir eru betri við sýningu á myndinni An Inconvenient Truth.
bjargað af þaki
Tveimur mönnum var bjarg-
að af þaki Land Rover jeppa
á Gjábakkavegi, skammt frá
Laugavatni í gær. Mennirnir
höfðu ekið Gjábakkaveg áleið-
is upp á Lyngdalsheiði, en þar
hafði krapi safnast í talsvert lón.
Kaldur krapinn náði bílnum upp
á glugga.
Björgunarsveitin Ingunn á
Laugavatni kom mönnunum til
hjálpar. „Þeir misstu bílinn út í
svolitla hvilft sem þarna er,“ segir
Bjarni Daníelsson formaður Ing-
unnar. Hann segir að þungfært
sé á þessum slóðum.
Sjópottur í Laugardalslauginni er sagður góður fyrir húðina:
Sjóðheitur sjópottur í lauginni
Lögreglan hunsaði kæru Hellenar lindu drake, eða Baugalínar, á níunda áratugnum:
„Meðferð á þessari konu var síst betri
en nauðgunin sjálf,“ segir Björn Sig-
urðsson, fyrrverandi lögreglumað-
ur. Hellen Linda Drake, sem skrifaði
um hrikalega lífsreynslu sína sem
Baugalín, leitaði til lögreglunnar á
níunda áratug síðustu aldar og vildi
kæra fósturföður sinn fyrir kynferð-
islega misnotkun. Það var lögreglu-
maðurinn Björn Sigurðsson sem
var á vakt þegar hún ætlaði að kæra
fóstuföður sinn. Hann trúði henni
ekki þá vegna þess að maðurinn
sem misnotaði Baugalín var sjálf-
ur lögreglumaður og starfaði með
Birni.
Í viðtali sem DV tók við Hellen
Lindu í febrúar síðastliðnum lýsir
hún hrikalegu ofbeldi sem
fósturfaðir hennar beitti
hana. Að auki segir hún frá
því eitri sem þögnin stráði
í hjarta sitt. Móðir hennar
hylmdi yfir með manninum.
Sjálf var Hellen Linda
send til Breiðavíkur þeg-
ar hún var unglingur en þar
var hún vistuð á áttunda ára-
tugnum. Það var þó eftir að
ofbeldið viðgekkst á heim-
ilinu og lýsti hún þeim tíma
sem besta tíma æsku sinnar.
Þar fékk hún að vera í friði
frá kynferðisofbeldi fóstur-
föðurs síns.
Kynferðisofbeldið sem hún var
beitt er fyrnt í lagalegum skilningi.
Þess vegna getur hún ekki kært
manninn fyrir það sem hann lagði
á hana.
„Þegar ég áttaði mig á því sem
fullþroska kona hvað hafði komið
fyrir mig og systur mínar og fór að
kanna réttarstöðu okkar uppgötv-
aði ég að málið var dautt og
gerandinn sloppinn vegna
þess að brotið var löngu
fyrnt. Þetta var sárasti part-
ur þess að verða fullorðinn.
Að skoða barnið sem ég einu
sinni var og hvað hefur ver-
ið hræðilega brotið á því. En
eins og það blasir við mér,
minn veruleiki, var ég beitt
kynferðislegu ofbeldi sem
barn en má ekki segja frá því
sem fullorðin kona,“ sagði
Hellen Linda í viðtali við DV
um viðbrögð sín þegar hún
komst að því að hún gæti
ekki kært kvalara sinn fyrir það sem
hann gerði henni.
Það tók hana fleiri ár að vinna
úr sínum sárum en í dag segir hún
eiginmann sinn vera haldreipi sitt í
sínu lífi og lifa þau góðu lífi á Eng-
landi.
valur grettisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
viðtal við Hellen lindu DV tók viðtal
við Baugalín eða Hellen Linda Drake sem
skrifaði sláandi bók um kynferðislega
misnotkun undir dulnefni.
Samningar
langt komnir
Samningaviðræður á milli eig-
enda Wilson Muuga og Umhverfis-
stofnunar eru langt komnar að sögn
Guðmundar Ásgeirssonar, stjórnar-
formanns Nesskipa, og vonast hann
til þess að samningar náist í dag eða
næstu daga.
Skipta á kostnaðnum við að ná
skipinu af strandstað, á milli eigenda
og stjórnvalda, en ekki hefur verið
ákveðið hvernig skipta á kostnaðn-
um. Freistað verður að draga skiptið
af strandstað í maí ef allt gengur eftir
en stefnt er að því að hefja vinnu við
að þétta skipið eftir páska. Göt eru
á skrokki skipsins eftir strandið. Að
því loknu þarf að dæla tvö þúsund
tonnum af sjó úr skipinu. Skipið
strandaði nítjánda desember og hef-
ur því setið fast við Hvalsnes í nærri
eitthundað daga.
LögregLan trúði ekki
FórnarLambi níðingS
Málið til
ríkissaksóknara
Máli hálfþrítugs manns, sem
talinn er hafa brotið kynferð-
islega gegn ungum stúlkum í
Reykjavík, hefur verið vísað til
Ríkissaksóknara en rannsókn
lögreglu er lokið. Ríkissaksóknari
mun meta hvort maðurinn verði
ákærður.
Gæsluvarðhald yfir mannin-
um átti að renna út í gær en var
framlengt fram í maí. Maðurinn
var handtekinn í janúar en hann
er grunaður um að hafa brot-
ið gróflega gegn tveimur fimm
ára stúlkum. Talið er að maður-
inn hafi reynt að tæla sjö aðrar
stúlkur.
Framsókn titrar
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstri-grænna, segir Pétur
Gunnarsson
framsóknar-
mann fara með
skáldskap. Pét-
ur hélt því fram
að Steingrímur
hefði hitt Geir
Haarde á leyni-
fundi til að ræða
ótilgreind mál.
„Þetta er skáld-
skapur og heilaspuni og lýsir frekar
titringi innan Framsóknarflokksins,“
segir Steingrímur og bendir á að
það sé öllu alvarlegra hjá samstarfs-
flokknum að saka Geir um daður við
vinstrimenn.
föstudagur 23. febrúar 200724 Helgarblað DV
Eitraður
þagnarhjúpur
kynfErðisofbEldis
Bókin Launhelgi lyganna kom út
árið 1999 hjá Máli og menningu.
Höfundur bókarinnar kallaði sig
Baugalín og lýsti í henni hrika-
legri lífsreynslu sinni þar sem hún
þurfti að þola ítrekaðar nauðgan-
ir af hálfu stjúpföður síns. Hann
beitti hana hrikalegu ofbeldi sem
varð til þess að hún var send til
hins alræmda uppeldisheimil-
is fyrir vestan, Breiðuvíkur. Bók
Baugalínar var ein fyrsta bók
sinnar tegundar. Þar dró Bauga-
lín hvergi úr en vildi þó ekki koma
fram undir nafni til þess að hlífa
aðstandendum við sögu sinni.
Hún er ekki enn tilbúin að koma
fram undir nafni en segir í viðtali
að hún muni gera það einn dag-
inn.
Þegar Baugalín byrjaði að skrifa
bókina Launhelgi lyganna hélt
hún að enginn fengi að sjá hana
nema dætur hennar. Ástæðan fyr-
ir því að Baugalín ákvað að setja
söguna á blað var sú að dætur
hennar ákváðu að kanna hvernig
á því stæði að hún talaði ekki við
fjölskyldu sína en fengu þau svör
að móðir þeirra væri í raun ástæð-
an.
„Þeim var ekki sagður sann-
leikurinn heldur var þeim sagt að
eitthvað hefði verið að mér sem
enginn skildi. Þau gáfu í skyn að
ég væri vandamál fjölskyldunn-
ar. Því settist ég niður og ákvað
að skrifa dætrum mínum bréf um
sannleikann sem þær áttu að fá ef
ég mundi deyja,“ segir Baugalín
og heldur áfram: „Ég sagði þeim
hvers vegna ég fór í miklum snjó
um vetur gangandi heim til Kristj-
áns Sigurðssonar forstöðumanns
upptökuheimilis ríkisins á Kópa-
vogsbraut 17. Þar bað ég hann
skælandi að lofa mér að vera af því
ég gæti ekki farið heim.
Þegar ég var búin að skrifa 18
blaðsíður var ég enn að skrifa um
upptökuheimilið og rakti mig svo
frá því niður æskuna. Þegar bréf-
ið var orðið 80 blaðsíður vissi ég
að þetta væri ekkert venjulegt
bréf heldur vitnisburður minn
um það ofbeldi sem ég varð fyrir
í æsku. Þegar eldri dóttir las mín
það yfir í fyrsta sinn kom hún til
mín og sagði að þótt hún hefði nú
heyrt eitt og annað hefði henni
aldrei dottið í hug að æskan mín
hefði verið eins og hún var,“ segir
Baugalín um erfiða för sína aftur
til fortíðarinnar sem reyndist þó
um leið mikið hreinsunarferli.
Kvalarinn var lögreglumaður
„Þetta byrjaði allt þegar ég
kom heim úr sveitinni þegar ég
var níu ára gömul,“ segir Bauga-
lín um þessa erfiðu reynslu. Hún
flutti frá afa sínum og ömmu á átt-
unda áratugnum eftir að þau voru
skilin. Þá fór hún til móður sinnar
sem þá var gift lögreglumanni.
„Ég þurfti að sofa á milli
mömmu og fósturpabba míns.
Þá um nóttina vaknaði ég við að
hann tók höndina mína og setti
hana milli fóta sér á meðan ég lá
upp við bakið á mömmu. Ég man
að ég reyndi að anda eins og ég
væri sofandi svo hann vissi ekki
að ég væri vakandi,“ segir Bauga-
lín en ástandið átti eftir að versna
til muna. Fósturfaðirinn fór að
króa hana af þegar þau voru ein
heima. Hann faðmaði hana og
kenndi henni að kyssa með tung-
unni þegar hún var níu ára gömul.
Með árunum varð hann ágengari
og þegar hún var orðin ellefu ára
fékk hún engan frið frá honum.
„Hann var lögreglumaður og
þeir eru með vaktaskipti klukk-
an sex á morgnana. Mamma fór
í vinnu klukkan átta eftir að hún
sendi litlu systur mínar í skólann.
Þá hafði hann morgnana af því ég
var í skólanum eftir hádegi,“ seg-
ir hún en þá þegar hafði lögreglu-
maðurinn gjörsamlega brugðist
trausti barnsins.
Eitruð þögn
Eftir að ofbeldið náði hámarki
fór Baugalín að ganga verulega
illa í skóla. Henni hafði áður
gengið vel en skyndilega var hún
farin að missa alla einbeitingu.
Hún hætti að vilja fara í skólann
því hún upplifði sig eins og hún
væri öðruvísi en hinir krakkarnir.
Hún missti mikið úr námi og sú
reynsla lagðist þungt á hana. Um
tólf ára aldur fór hún grátandi á
upptökuheimilið í Kópavogi. Hún
vildi ekkert meir en að komast í
burtu frá þeim óhugnaði sem ríkti
á heimili hennar.
„Eftir að ég fór á upptökuheim-
ilið var ég partur af hópnum. Ég
þurfti ekki að fara heim aftur þar
sem angist og eitruð þögn réði
ríkjum. Einn daginn voru Hippa-
stelpan og ljóshærði vinurinn
minn send til Breiðuvíkur og þeg-
ar ég forvitnaðist var þar eitt pláss
fyrir stelpu eins og mig. Heppna
ég, var það sem ég hugsaði. Fyrir
mig var það allsherjarlausn á öll-
um mínum vandamálum. Þá loks
væri ég laus við beiskjuna sem
ég fann alltaf fyrir þegar ég hitti
mömmu og sá að hún var ekki
á leiðinni að skilja við manninn
sem misnotaði mig,“ segir Bauga-
lín um tilkomu þess að hún var
send til Breiðuvíkur.
Í skugga Breiðuvíkur
„Þegar ég kom þar var Georg
Heide Gunnarsson forstöðumað-
ur búinn að brjóta niður veggina í
fangaklefanum í kjallaranum sem
Þórhallur hafði notað til að refsa
strákunum sem voru þar nokkr-
um árum áður,“ segir Baugalín um
aðkomuna á heimilið. Hún segist
hafa heyrt af vonda skipstjóran-
um, eins og hún orðar það. Hún
segir að sögur hafi gengið á heim-
ilinu um að piltunum, sem á und-
an henni voru, hefði verið refsað á
alla mögulega vegu. Aftur á móti
var heimilið orðið að skólaheim-
ili þegar hún kom þangað og um-
hverfið allt annað. Georg Gunn-
arsson hafði þá tekið við búinu
og hafði hann aðrar hugmynd-
ir en Þórhallur Hálfdánarson um
uppeldi barna og unglinga. Þór-
hallur hefur verið sakaður um að
beita pilta sem hjá honum dvöldu
miklu harðræði.
„Goggi, eins og við krakkarnir
kölluðum Georg, var mjög svo sér-
stakur maður. Hann sagði ofbeldi
ekki bæta neinn, heldur upp-
byggjandi samtöl, þar sem reynt
var að fá krakkana til að taka smá
ábyrgð á sjálfum sér. Hann lagði
mikla áherslu á það að við fengj-
um sjálfsvirðingu okkar í gegnum
vinnuframlag sem við urðum að
sinna til að halda vasapeningum,“
segir Baugalín sem minnist ver-
unnar á Breiðuvík sem góðs tíma.
Hún þurfti ekki að þola kynferðis-
legt ofbeldi af hálfu stjúpa síns á
meðan - og allt var betra en það í
hennar huga.
Líf eftir kynferðisofbeldi
„Ég var náttúrulega með þykka
skel til að fela raunverulega líð-
an sem ég skildi ekki alltaf sjálf.
Svo hafði ég ekki þroska til að
horfast í augu við veruleikann
eins og hann var í sambandi við
fjölskyldu mína. Einhvern veginn
komst ég í gegnum þetta án þess
að vera með óraunhæfar vonir um
einhverja stórfjölskyldu sem gætu
aldrei orðið að veruleika. Nötur-
legt, en satt,“ segir Baugalín um
þau tilfinningalegu átök sem hún
glímdi við eftir reynslu sína. Hún
upplifði sig eins og hún hefði ver-
ið svikin. Reiðust er hún móður
sinni fyrir að hafa leyft ofbeldinu
að viðgangast.
„Í fjölskyldu minni urðu mik-
il uppgjör þegar ég sagði frá kyn-
ferðislega ofbeldinu sem ég var
beitt - þar sem sumir stóðu með
mér og vildu kæra fósturpabba
minn en mamma þaggaði snögg-
lega niður í þeim í eitt skipti fyrir
öll með því að hóta því að drepa
sig. Hún er einn af mínum hættu-
legustu, þöglu vitorðsmönnum -
og berst gegn þessum sannleika
eins og hún lifandi getur. Þeg-
ar kom í ljós, eftir að ég kom frá
Breiðuvík, að fósturpabbi minn
hafði líka misnotað yngri systur
mínar varð ég mömmu skelfilega
reið fyrir að skilja ekki við ógeðið
og byggja sig upp aftur með okk-
ur systrunum. Það eru núna kom-
in rúm 25 ár af þögn á milli okk-
ar,“ segir Baugalín um þá reiði
sem enn blundar í hjarta hennar.
Að sögn Baugalínar lét fósturfaðir
hennar ekki staðar numið við þær
systur heldur lagðist einnig á syst-
urdóttur hennar. Sú stúlka lét lífið
í bílslysi árið 1999.
Ekki hægt að kæra
„Þegar ég áttaði mig á því sem
fullþroska kona hvað hafði kom-
ið fyrir mig og systur mínar og fór
að kanna réttarstöðu okkar upp-
götvaði ég að málið var dautt og
gerandinn sloppinn vegna þess
að brotið var löngu fyrnt. Þetta
var sárasti partur þess að verða
fullorðinn. Að skoða barnið sem
ég einu sinni var og hvað hefur
verið hræðilega brotið á því. En
eins og það blasir við mér – minn
veruleiki – var ég beitt kynferðis-
legu ofbeldi sem barn en má ekki
segja frá því sem fullorðin kona.
Það er allt fyrnt. Þarna finnst mér
lögin hafa svikið mig áður en ég
vissi rétt minn eða hvernig lögin
hljóða. Samt hélt ég að lög væru
til að koma í veg fyrir að brotið sé
á fólki og það geti leitað réttar síns
– en það var ekki í mínu tilfelli.
Ég var rænd þeim rétti mínum
sem fórnarlamb kynferðisglæps
að geta sagt frá vegna þessara
ósanngjörnu fyrningarlaga en ég
er ekki ein, það er fjöldinn allur
af fólki þarna úti í lífinu í sömu
sporum. Glæpirnir sem framd-
ir voru á þeim eru fyrndir. Því er
ég alltaf að bíða eftir að eitthvað
vaLur grEttisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
„Ég þurfti að sofa á milli mömmu og fóstur-
pabba míns. Þá um nóttina vaknaði ég við að
hann tók hönd mína og setti hana milli fóta
sér á meðan ég lá upp við bakið á mömmu og
reyndi að anda eins og ég væri sofandi svo
hann vissi ekki að ég væri vakandi.“
níðingurinn var lögreglumaður
fósturfaðir baugalínar starfaði sem
lögreglumaður þegar hann misnotaði
hana og systur hennar.
DV Helgarblað föstudagur 23. febrúar 2007 25
Baugalín
it
þagnarhjúpur
ldis
gerist sem gerir það að verkum
að ráðamenn þjóðarinnar breyti
þessum lögum þannig að glæp-
ir gegn börnum fyrnist aldrei,“
segir Baugalín, sem líður eins og
kerfið, íslenskt samfélag og fjöl-
skyldan hafi brugðist henni gróf-
lega. Engin þeirra systra getur sótt
rétt sinn eða komið manninum á
bak við lás og slá vegna þess sem
hann gerði þeim. Hann er enn lif-
andi í dag en starfar ekki lengur
innan lögreglunnar.
„Ég er hamingjusöm í dag“
Að skrifa sannleikann um líf sitt
hefur hjálpað Baugalín gríðarlega
mikið. Hún segist þó eiga mikið
eftir í því að takast á við reynslu
sína. Hún segir frelsistilfinning-
una við það að bókfesta það sem
hún upplifði og varpa skugganum
af sálarlífi sínu undarlega góða.
Hún vann ötult starf innan Stíga-
móta þegar hún var um þrítugt og
segir það hafa hjálpað sér gríðar-
lega mikið.
„Ég hvet bara alla sem eiga
svona reynslu að koma fram með
sögu sína. Það hjálpar bæði þeim
sem eru fórnarlömb ofbeldis og
þeim sem vilja vinna að málefn-
um kynferðislega misnotaðra
barna,“ segir hún. Aðspurð hvern-
ig henni líði í dag segir Baugalín:
„Ég er hamingjusöm í dag,“ og
hún ætlar ekki að láta margra ára
kynferðisofbeldi buga sig.
„Í fjölskyldu minni
urðu mikil uppgjör
þegar ég sagði frá
kynferðislega ofbeld-
inu sem ég var beitt -
þar sem sumir
stóðu með mér og
vildu kæra fóstur-
pabba minn en
mamma þaggaði
snögglega niður í
þeim í eitt skipti fyrir
öll með því að hóta
því að drepa sig.“
Skólaheimilið í Kópavogi baugalín flúði misnotkunina á skólaheimilið í Kópavogi.
Beitt kynferðisofbeldi
rithöfundurinn baugalín þurfti að þola
hrikalegt kynferðisofbeldi í fjölda ára.