Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2007, Blaðsíða 12
þriðjudagur 27. mars 200712 Fréttir DV
Birgitte Mohnhaupt sem eitt sinn
var sögð hættulegasta kona Þýska-
lands var látinn laus úr fangelsi á
sunnudag, tveimur dögum fyrr en
reiknað hafði verið með. Var það
gert til að komast hjá ágangi fjöl-
miðla sem ólmir vildu ná myndum
af hinni fimmtíu og sjö ára gömlu
konu. Hún var flutt á leynilegan stað
þar sem vinir hennar sóttu hana að
sögn yfirmanns fangelsisins. Sam-
kvæmt fréttum fjölmiðla á hún íbúð
og hefur verin boðin vinna hjá fjöl-
skylduvini. Hins vegar liggur ekki
ljóst fyrir hvort hún muni breyta
nafni sínu í kjölfarið. Mohnhaupt
hefur aldrei iðrast gerða sinna sem
hingað til hefur verið talin forsenda
reynslulausnar í Þýskalandi. Ætt-
ingjar fórnarlamba hryðjuverkanna
sem Rauða herdeildin bar ábyrgð á
hafa mótmælt reynslulausn henn-
ar frá því að tilkynnt var um hana í
síðasta mánuði. Það hafa einstaka
stjórnmálamenn einnig gert og sagt
hana brjóta gegn þýskri réttlætis-
kennd.
Blóðug barátta
Árið 1977 tók Birgitte Mohn-
haupt við stjórnartaumunum í
skæruliðasamtökunum. Hún hafði
þá nýlokið fjögurra ára afplán-
un í fangelsi eftir að hafa verið
handtekin ásamt þáverandi leið-
togum samtakanna, þeim Andr-
eas Baader og Ulrikke Meinhoff.
Undir forrystu hennar hófst blóð-
ug barátta fyrir því að fá leiðtoga
samtakanna lausa úr fangelsum.
Undir handleiðslu palenstínskra
hryðjuverkahópa stóðu þau fyr-
ir hrinu hryðjuverka. Rændu þau
og drápu meðal annars þáverandi
formann þýskra atvinnurekenda
og einn dómara. Árið eftir hand-
sömuðu júgóslavnesk stjórnvöld
Mohnhaupt og fjölda annarra fé-
laga í Baader-Meinhof. Þjóðverj-
ar vildu hins vegar ekki skipta á
þeim og átta Króötum sem sátu í
þýsku fangelsi á þeim tíma. Sendu
Júgóslavar þau því til ótilgreinds
arabalands þaðan sem þau héldu
baráttu sinni áfram næstu fjögur
árin.
Mótmæltu kapítalisma
Hugmyndin að baki Rauðu her-
deildinni var að berjast gegn áhrif-
um Bandaríkjamanna og efnis-
hyggju í Vestur-Þýskalandi undir
lok sjöunda áratugarins. Stuðn-
ingur við samtökin meðal Þjóð-
verja voru töluverður í upphafi en
eftir því sem aðgerðir þeirra urðu
ofbeldisfyllri dalaði hann. Morð,
mannrán og bankarán voru hluti
af þeim aðferðum sem þau not-
uðu til að vekja athygli á málstað
sínum. Voru forsvarsmenn sam-
takanna meðal annars handteknir
fyrir sprengingar í tveimur versl-
unarhúsum í Frankfurt. Samtök-
in höfðu einnig andúð á Víetnam-
stríðinu og studdu Palenstínumenn
í baráttu sinni. Leiðtogar þeirra
hlutu þjálfun í hryðjuverkabúðum
í Jórdaníu í upphafi áttunda ára-
Fyrrum leiðtoga þýsku hryðjuverkasamtakanna Rauða herdeildin veitt reynslulausn og ættingj-
ar fórnarlamba samstakanna eru ósáttir. Birgitte Mohnhaupt var sleppt tveimur sólarhringum
fyrr en talið var til að hlífa henni við kastljósi fjölmiðla.
„HÆTTULEGASTA
KONA ÞÝSKALANDS“
FRJÁLS FERÐA SINNA
Undir handleiðslu
palenstínskra hryðju-
verkahópa stóðu þau
fyrir hrinu hryðju-
verka. Rændu þau og
drápu meðal annars
þáverandi formann
þýskra atvinnurek-
enda og einn dómara.
Lýst eftir liðsmönnum
Baader Meinhof þýskur
lögreglumaður við plakat
með myndum af félögum
hryðjuverkasamtakanna.