Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.2007, Blaðsíða 20
Menning
þriðjudagur 27. mars 200720 Menning DV
Gjafir Dana
Anna Þorbjörg Þorgríms-
dóttir sagnfræðingur verður
með leiðsögn um grunnsýn-
ingu Þjóðminjasafns Íslands
í hádeginu í dag. Að þessu
sinni verður gengið milli gripa
sem Danir færðu Íslendingum
í tilefni þúsund ára afmælis
Alþingis árið 1930. Margvís-
legar ástæður voru fyrir því að
íslensku gripirnir höfðu lent á
safninu í Kaupmannahöfn og
gripirnir eru að sama skapi fjöl-
breyttir. Flestir voru þeir fluttir
til Danmerkur á fyrri hluta
nítjándu aldar þegar safnið í
Kaupmannahöfn var safn alls
konungsríkisins.
Alþjóðaleiklistardagurinn er í dag. Af því tilefni
stendur Leiklistarsamband Íslands fyrir málþingi í
Leikhúskjallaranum í kvöld kl. 19. Þar flytja framsögu þau
Richard Gough, Elena Krüskemper, Katrín Hall og Ingvar
E. Sigurðsson. Yfirskrift þingsins er „innrás/útrás.“
Með í gríninu á eigin forsendum
Lifandi
bókasafn
Jafnréttisnefnd Stúdenta-
ráðs heldur „Lifandi bóka-
safnskvöld,“ í kvöld kl.20 í
Stúdentakjallaranum. Lifandi
bókasafn starfar nákvæmlega
eins og venjulegt bókasafn -
lesendur koma og fá „lán-
aða,“ bók í takmarkaðan tíma.
Munurinn er hinsvegar sá að
bækurnar í Lifandi bókasafni
eru fólk sem á persónuleg sam-
skipti við lesendur sína. Þær
eru jafnframt fulltrúar hópa
sem oft mæta fordómum og
eru fórnarlömb misréttis og
félagslegrar útilokunar. Í Lif-
andi bókasafni geta bækurnar
ekki aðeins talað, heldur einnig
svarað spurningum lesandans
og þar að auki jafnvel spurt
spurninga og fræðst sjálfar.
Dauðasyndin
óhóf
Þriðji fyrirlesturinn um
dauðasyndirnar sjö í fyrirlestra-
röð Borgarbókasafns Reykjavík-
ur verður fluttur miðvikudag-
inn 28. mars kl. 17:15. Þá mun
Sigurður Ólafsson, heimspeki-
kennari, fjalla um óhóf. Fyrir-
lestraröðin er fengin að láni frá
Akureyri en þar stóð Amtsbóka-
safnið að henni ásamt fleirum.
Fyrirlesarar koma úr ýmsum
áttum og lítur hver viðfangsefn-
ið sínum augum. Dagskráin fer
fram í aðalsafni Borgarbóka-
safns í Tryggvagötu 15 og er öll-
um opin.
Leiklistarþing
Gyða Margrét Pétursdóttir flytur fyrirlestur á Kynjadögum.
„Þetta verður rosalega fyndinn
fyrirlestur,“ segir Gyða Margrét Pét-
ursdóttir um fyrirlestur sinn „List og
húmor sem vopn í kvennapólitískri
baráttu,“ en hann er á dagskrá Kynja-
daga Listaháskóla Íslands. Gyða vill
þó ekki meina að um uppistand sé að
ræða.
„Ég
ætla
að nota áramótaskaupið frá 1984,
sem kallað hefur verið kvennaskaup-
ið og leggja út frá því,“ segir Gyða en
hún hefur notast við kvennaskaup-
ið í kennslu í félagsfræði og kynja-
fræðum. „Ég ætla að segja frá þeim
áhrifum sem þetta skaup hafði á
mig sjálfa og hvernig ég nota það í
dag í kennslu.“ Hún segir að í skaup-
inu birtist feminiskar áherslur. „Það
birtast þarna ákveðnar áherslur
feminismans, sérstaklega þá ann-
arrar bylgju feminismans, hvað
varðar reynslu kvenna og reynslu-
heim þeirra eins og t.d. Kvennalist-
inn talaði mikið um á sínum tíma.“
Í kvennaskaupinu er leiklistin notuð
til að miðla kvennapólitískum húm-
or, Gyða veltir því upp hvort mæla
megi félagsleg völd með því, hvort
viðkomandi hópur sé þátttakandi í
gríninu - á eigin forsendum. „Þá er
ekki verið að gera grín „að“ konum,
eins og oft er gert á niðrandi hátt,
heldur er grínið á þeirra eigin for-
sendum,“ segir hún. Sem hliðstæð-
ur bendir Gyða á nýlegar auglýs-
ingar hóps ungra öryrkja og síðasta
áramótaskaup þegar gert var grín að
sjónvarpsmanni að taka viðtal við
konu í hjólastól. „Þar var alls ekki
verið að gera grín að konunni í hjóla-
stólnum - heldur sjónvarpsmannin-
um,“ segir hún. Gyða segir það mik-
ið lykilatriði að vera „með í gríninu
á eigin forsendum,“ „þá er maður
virkilega orðinn með í samfélaginu,
þannig að það má segja að það sé
einskonar mælikvarði“, segir Gyða.
Kynjafræði
Gyða Margrét
Hefur notað „kvennaskaupið“ í
kennslu í félagsfræði og kynjafræðum
Það er boðið upp á fjölbreytta
dagskrá á Kynjadögum Listahá-
skóla Íslands, sem hefjast í dag.
Þar á meðal eru ýmsir fyrirlestrar
og uppákomur tengdar jafnrétti og
kynferði. Kynjadagar eru nú haldn-
ir þriðja sinni en fyrir þeim stend-
ur jafnréttisráð Listaháskólans.
„Þetta er hluti af starfi ráðsins, sem
segja má að ljúki með Kynjadögum
á vorin,“ segir Hafdís Harðardóttir,
deildarfulltrúi hönnunar og arki-
tektúrdeildar LHÍ sem jafnframt á
sæti í jafnréttisráði. Hún segir hlut-
verk ráðsins vera að tryggja jafn-
rétti á öllum sviðum innan skólans.
„Það þarf til dæmis að fylgjast með
inntökuferlinu, bæði hvað varðar
kynjahlutfall í þeim nefndum sem
taka inn nemendur og líka hvað
varðar þá nemendur sem tekn-
ir eru inn. Við fylgjumst líka með
kynjahlutföllum starfsmanna og
kennara og gerum kannanir á við-
horfum nemenda,“ segir Hafdís, en
ráðið starfar samkvæmt jafnfrétt-
isáætlun skólans og í því sitja full-
trúar skrifstofu skólans, kennara og
nemenda.
Skemmtileg dagskrá
Dagskrá Kynjadaga er að sögn
Hafdísar hvorki bundin við fem-
inisma né jafnrétti, þó yfirskrift-
in Kynjadagar gæti bent til þess.
„Kynjafræði eru reyndar höfð að
leiðarljósi í dagskránni,“ segir
Hafdís. „Til dæmis flytur mjög
þekktur fyrirlesari, Lloyd Whites-
ell, fyrirlestur um samkynhneigð
tónskáld. Svo flytur Þóra Þóris-
dóttir, myndlistarmaður, fyrirlestur
um keramiklistamanninn Greyson
Perry, sem oft kemur fram í kven-
mannsklæðum við opnanir á sýn-
ingum sínum og vekur jafnan at-
hygli og Gyða Margrét Pétursdóttir
flytur mjög spennandi fyrirlestur
um húmor og kvennapólitík,“ seg-
ir hún. En nemendur við Listahá-
skóla Íslands láta ekki sitt eftir liggja
á Kynjadögum því þá verða einn-
ig flutt verk sem unnin hafa ver-
ið á námskeiðinu „Fræði og fram-
kvæmd“ og dagskránni líkur svo á
föstudaginn með fyrirlestrum nem-
enda á námskeiðinu „Ímyndir, aug-
lýsingar og markaður.“
Annasamir dagar
Síðastliðinn föstudag rann út
frestur til að sækja um inngöngu í
Listaháskóla Íslands næsta haust
og Hafdís hefur því í nógu að snú-
ast um þessar mundir. „Það er stór
dagur hjá okkur í dag, við erum rétt
að byrja að vinna úr fleiri hundruð
umsóknum sem bárust núna fyr-
ir helgi. Það getur verið flókið, því
í sumar deildir sækja um inngöngu
kannski hundrað umsækjendur, en
aðeins 10 til 12 komast inn,“ segir
Hafdís.
Samkynhneigð tónskáld og
keramiklistamaður í dragi
Nemendur Listaháskóla Íslands
Taka virkan þátt í dagskrá Kynjadaga.
Hafdís Harðardóttir Á sæti í jafnréttisráði
LHÍ, sem stendur fyrir Kynjadögum.
Listaháskóli Íslands við Skipholt
þar hefst dagskrá Kynjadaga í dag.
KynjadagarKynjadagar LHÍ hefjast í dag og standa fram á föstu-
dag. Með þeim má segja að starfi jafnréttisráðs skólans ljúki
þennan veturinn, en á dagskrá er fjöldi fyrirlestra og viðburða.