Læknablaðið - 15.06.1984, Side 4
156
1984;70:156-9 LÆKNABLADID
Guðmundur Björnsson, Guðmundur Viggósson, Jón Grétar Ingvason
Gláka á íslandi 2. grein:
SAMANBURÐUR Á ALGENGIGLÁKU
Á ÍSLANDIOG í GRANNLÖNDUM
INNGANGUR
í þessari grein er borið saman algengi hægfara
gláku hér á landi og í nágrannlöndum. Hafa
ber í huga að mismunandi rannsóknarað-
ferðum er beitt og einnig að skilmerki grein-
ingar eru nokkuð á reiki eins og vænta má
vegna eðlis sjúkdómsins en m.a. er erfitt að
greina hann með vissu á byrjunarstigum. Prátt
fyrir þessa annmarka gefa algengiskannanir
með mismunandi aðferðum ýmsar mikilvægar
upplýsingar um faraldsfræði hægfara gláku.
A. Samanburður á algengi hægfara gláku
samkvæmt hefðbundinni skilgreiningu
Framingham-augnkönnunin er aðalheimild um
algengi blinduvaldandi sjúkdóma í Bandaríkj-
unum þ.á. m. hægfara gláku (1,2). Könnunin fór
fram á tímabilinu 1973-1975. Rannsakaðir
voru 2477 einstaklingar á aldrinum 52-85 ára.
Heildaralgengi hægfara gláku í þessum um-
rædda aldursflokki var 33 af þúsundi (karl 41,
konur 27). Algengið eykst með aldri (p< 0.01)
úr 14 af þús. 52-64 ára í 52 af þúsundi 65-74 ára
og 72 af þúsundi í 75-85 ára aldursflokknum.
A 1. mynd er borið saman algengi hægfara
gláku í aldursflokkum hér á landi og í um-
ræddri bandarískri könnun. Algengið er svip-
að í báðum yngri aldurshópunum, en heldur
meira í elsta aldursflokknum hér á landi. í
greinargerð með Framinghamkönnuninni seg-
ir að tiltölulega fæstir hafi verið skoðaðir í
elsta aldursflokknum og fáir þeirra, sem vist-
aðir voru á dvalarheimili aldraðra. Telja höf-
undar að það hafi haft áhrif á algengistöluna
þar eð augnsjúkdómar séu tíðari hjá fólki,
sem vistað er á elliheimilum, enda er það »líf-
eðlisfræðilega« eldra en jafnaldrar þess utan
dvalarheimila (1).
Á 2. mynd er borið saman algengi gláku
meðal karla og kvenna í sömu könnunum.
Frá augndeild St. Jósefsspítala, Landakoti. Barst ritstjórn
15/02/1984. Samþykkt til birtingar 13/04/1984 og sent í
prentsmiðju.
Sjúkdómurinn er algengari hjá körlum í öllum
aldursflokkum og er munurinn marktækur í
báðum könnunum (p < 0.05).
Glákukönnun í Gautaborg. Árið 1976 fór fram
könnun á sjúklingum með hægfara gláku
52-64 65-74 75-84 Age groups
---Iceland -----Framingham
Fig. 1. Prevalence of open-angle glaucoma in Ice-
land in 1982 and in Framingham, USA 1973-75, both
sexes. Rates per 1000 population.
CTQ 0Q OQ
I—52-64—| |---65-74—| |---75-84—|
QMales ^Females
Fig. 2. Prevalence of open-angle galucoma in Iceland
in 1982 and in Framingham, USA 1973-75 by age and
sex. Rates per 1000 population.