Læknablaðið - 15.06.1984, Page 30
168
LÆKNABLADID
4. & 10. Tillögurnar voru sameinaðar þannig í
starfshópi:
Aðalfundur L.Í., haldinn í Reykjavík 19.-20.
sept. 1983, skorar á heilbrigðismálaráð-
herra að láta gera áætlun um læknapörf á
íslandi til aldamóta. í henni komi fram
heildarfjöldi læknislærðra, fjöldi starfandi
lækna á landinu og skipting peirra eftir
sérgreinum.
Ennfremur skorar fundurinn á stjórn L.í.
að ljúka við pá könnun um atvinnuhorfur
íslenskra lækna, sem pegar er í gangi á
vegum L.Í. og beita sér fyrir ráðstefnu um
pau mál.
Var tillagan sampykkt með 25 sam-
hljóða atkvæðum.
11. Þessi tillaga kom lítillega breytt frá starfs-
hópi og hlaut enn smávægilega umsmíði
og orðalagsbreytingar. Lúðvík Ólafsson
bar fram tillögu um, að læknadeild H.í.
yrði sleppt úr. Sú tillaga var felld með 12
atkvæðum gegn 5. Endanlega smíðin var
loks sampykkt með 20 samhljóða at-
kvæðum; svohljóðandi:
Aðalfundur L.Í., haldinn í Reykjavík 19,-
20. sept. 1983, felur stjórn L.í. að beita sér
fyrir ráðstefnu um skipulag og samræm-
ingu sérfræðináms íslenzkra lækna heima
og erlendis með pátttöku læknadeildar
Háskóla íslands, menntamálaráðuneytis,
heilbrigðisráðuneytis, sjúkrahúsa og ann-
arra heilbrigðisstofnana.
12. Breytingartillaga starfshóps var sampykkt
með 20 samhljóða atkvæðum; svohljóð-
andi:
Aðalfundur L.Í., haldinn í Reykjavík 19.-
20. sept. 1983, felur stjórn L.í. að beita sér
fyrir stofnun starfshóps til undirbúnings
samræmingar á sérfræðinámi íslenzkra
lækna með tilliti til sameiginlegs vinnu-
markaðar á Norðurlöndum og fyrirhug-
aðra breytinga á reglugerð um sérfræði-
leyfi.
5. Breytingartillaga starfshóps var sampykkt
með 17 samhljóða atkvæðum; svohljóð-
andi:
Aðalfundur L.Í., haldinn í Reykjavík 19.-
20. sept. 1983, vill enn vekja athygli á, að
ekki er til miðbókasafn í læknisfræði í
landinu. Beinir fundurinn pví til stjórnar
L.Í., að hún hlutist til um, að slíkt bókasafn
fái aðstöðu í Þjóðarbókhlöðunni, sem nú
er í byggingu. Hafi hún um pað samráð við
pá aðila, sem nú pegar veita pjónustu á
pessu sviði.
6. Þessi tillaga er að uppruna til frá Læknafé-
lagi Vesturlands, en starfshópur bætti í
hana atriðum úr svipaðri tillögu Atla
Árnasonar og Katrínar Davíðsdóttur.
Urðu nokkrar umræður og komu fram
tillögur um ýmsar orðalagsbreytingar, sem
allar voru sampykktar. í sinni endanlegu
gerð var tillagan sampykkt með 21 sam-
hljóða atkvæði, og fylgir hún pannig hér:
Aðalfundur L.Í., haldinn í Reykjavík 19-
20. sept. 1983, lýsir pví yfir, að hinn stöðugi
kjarnorkuvopnavígbúnaður pjóða heims
sé ógn við mannkynið og auki hættuna á
gjöreyðingu nútíma menningar og mann-
legs lífs.
Læknum er skylt að vinna gegn sífelldri
hættu á notkun kjarnorkuvopna, par sem
kjarnorkuhernaður stríðir gegn öllum
peim viðhorfum, er marka starf peirra.
Læknafélag íslands telur rétt að auka
fræðslu heilbrigðisstétta og almennings
um læknisfræðilegar afleiðingar kjarn-
orkustríðs, enda getur heilbrigðispjónust-
an alls ekki veitt pá hjálp, sem að gagni
kæmi í kjarnorkustríði.
Læknastéttin bendir á, að eina raunhæfa
leiðin til árangursríkra almannavarna á
pessu sviði er að vinna að stöðvun kjarn-
orkuvígbúnaðar og síðan að eyðileggingu
allra kjarnorkuvopna.
Skorar Læknafélag íslands á íslenzka
ríkið að vinna eftir pessari meginreglu á
alpjóðavettvangi.
Jafnframt fagnar fundurinn stofnun
Samtaka íslenzkra lækna gegn kjarnorku-
vá.
17. Starfshópur lagði til að tillögu pessari yrði
vísað til stjórnar L.Í. og var pað sampykkt
samhljóða. Tillagan var svohljóðandi:
Aðalfundur L.Í., haldinn í Reykjavík 19.-
20. sept. 1983, felur stjórn L.Í. að stuðla að
fjölgun menntaðra hjúkrunarfræðinga og
vinna gegn pví, að Hjúkrunarskóli íslands
verði lagður niður, meðan svo mikill skort-
ur er á hjúkrunarfræðingum til starfa, sem
raun ber vitni.
Fundurinn ályktar einnig, að L.Í. beri að
veita samtökum hjúkrunarfræðinga fullan
stuðning í launabaráttu peirra.