Læknablaðið - 15.06.1984, Side 34
170
LÆKNABLADID
(til 2ja ára). Meðstjórnendur, sbr. áður
sampykkta lagabreytingu: Finnbogi Jakobs-
son, Haukur Pórðarson og Ólafur Z. Ólafsson,
(allir til 1 árs).
Samúel Samúelsson kvaddi sér hljóðs og
bauð til aðalfundar næsta ár á ísafirði f.h.
Læknafélags Vestfjarða.
Önnur mál:
1. Formaður bar fram tillögu stjórnar um kjör
tveggja heiðursfélaga L.Í.:
a) Jón Steffensen, fyrir framlag hans til rann-
sókna á sögu læknisfræðinnar á íslandi, svo
og til endurbyggingar Nesstofu.
b) Þóroddur Jónasson, fyrir margvísleg trún-
aðarstörf fyrir læknasamtökin og fyrir að
hafa ávallt borið merki læknastéttarinnar
hátt. Rakti formaður starfs- og æviferil
beggja. Tillagan var síðan samþykkt sam-
hljóða.
2. Eggert Brekkan bar fram tillögu frá Lækna-
félagi Austurlands. Henni var vísað til stjórnar
par sem hún barst of seint til að hljóta
formlega afgreiðslu. Tillagan var svohljóð-
andi:
Aðalfundur Læknafélags íslands 1983 skor-
ar á stjórn félagsins að taka upp viðræður við
vinnuveitendur um sérstakar líf- og slysatrygg-
ingar lækna á ferðum í starfi. Tryggingar
pessar skuli gilda fyrir vitjanir, sjúkraflutninga
og þátttöku í björgunaraðgerðum.
3. Grímur Sæmundsen kvaðst undrandi á hve
lágan sess kjaramál lækna hefðu skipað á
fundinum. Taldi hann gæta vaxandi tilhneig-
ingar meðal lækna til að vinna kauplaust og
beindi þeim tilmælum til stjórnar L.Í., að hún
væri vel vakandi í kjaramálum.
4. Finnbogi Jakobsson vakti máls á lélegum
aðbúnaði fyrir afleysingalækna í mörgum hér-
uðum landsins. Kristján Baldvinsson taldi rétt,
að L.í. hugaði að staðli fyrir að búnað afleys-
ara.
5. Sigurbjörn Sveinsson gerði athugasemd við
málflutning Björns önundarsonar fyrr um
morguninn, taldi hann dylgja um vinnubröð
lækna og skoraði á hann að finna orðum
sínum stað.
Að lokum steig Þorvaldur Veigar í pontu.
Hann þakkaði auðsýnt traust, samstarfsmönn-
um í stjórn L.Í. góð störf, sömuleiðis stjórn
L.R. svo og starfsliði skrifstofunnar. f>á þakk-
aði hann Læknafélagi Vestfjarða gott boð,
fundarmönnum öllum góð störf og sleit síðan
fundi kl. 13.00.