Læknablaðið - 15.06.1984, Side 42
174
LÆKNABLADIÐ
blóðrás. Við slíkar aðstæður er æðaflöturinn,
sem skuggagjafinn fer um, mun stærri, auk
þess sem rennslið um slíkt æðakerfi er mun
hægara og þar af leiðandi verður ertingin á
æðaveggina langvinnari en ella. Þessi áverki á
æðaveggi skapast einnig, pegar skuggaefni með
háan flæðiþrýsting er dælt í stóra bláæða-
stofna, t.a.m. við bláæðarannsóknir á ganglim-
um. Hárri tíðni blóðsegamyndunar í djúpu blá-
æðastofnunum í ganglimunum hefir verið lýst
eftir myndatökur með skuggaefnum (phlebo-
grafiu) (12). Vegna peirrar staðreyndar, að
rennslisverkun skuggagjafa í blóði sýnist í
beinu hlutfalli við flæðiprýsting peirra, hafa
framleiðendur skuggaefna stefnt að pví, að
próa skuggaefni með lágan flæðiprýsting og
með færri aukaverkanir í samanburði við
jónuð sambönd. Meðai peirra skuggagjafa,
sem hafa fundist við þessa leit ber að geta
Hexabrix frá Guerbert (Frakklandi), Iopami-
dol frá Bracco (ítaliu), Amipaque og Omnipa-
que frá Nyegaard (Noregi) (4, 5, 13, 14).
Af öllum peim klínísku rannsóknum á pess-
um efnum, sem gerðar hafa verið til pessa,
virðist ljóst, að Amipaque og Omnipaque
komast næst pví að vera kjörin skuggaefni.
Bæði skuggaefnin sameina mjög lágan flæði-
prýsting og lága tíðni aukaverkana. Áður en
Amipaque náði almennri útbreiðslu hafði ýmis-
legt verið gert til að lina ópægindi pau, sem
æðaskoðunum með nútíma jónuðum skugga-
efnum var samfara. Meðal margra aðferða
virtist notkun lidocaíns, sem deyfingarlyfs í æð
við slíkar skoðanir, árangursríkust og er lýst
lægri tíðni aukaverkana en þegar skuggaefni
hefur verið notað sér (8, 9, 10). Samanburðar-
rannsóknir á ópægindum við útlimaskoðanir
við notkun Amipaque annars og skuggagjafa
með hærri flæðiprýsting (Angiografin), sem
lidocaíni hefur verið blandað í hins vegar, hafa
ekki sýnt marktækan mun á tíðni aukaverkana
(11, 15). Sama er uppi á teningnum pegar
samanburður er gerður á einkennum samfara
innspýtingu iohexol og Angiografin með lido-
caíni, eins og pessi könnun ber með sér.
Lítið er vitað um verkunarmáta lidocaíns, en
talið er að efnið deyfi taugaendana í innan-
pekju æðaveggjanna og hækki par með »sárs-
aukapröskuld« peirra við ertingu skuggagjafa.
Verkunin á sér stað á augabragði. Hins vegar
dregur lidocaín ekki úr blóðrennslisverkun
skuggaefnisins og verndar ekki innanpekju
gegn áhrifum pess. Vegna pessa standast
jónuð sambönd ekki samanburð við ekki-
jónuð skuggaefni á borð við Amipaque og
iohexol, pó að í fyrrnefndu sé blandað deyf-
ingarlyfi. Nýlegar rannsóknir á músum, á
breytingum LD50 eftir inndælingu skuggaefna
(Isopaque, Nyegaard) með og án lidocaíns,
hafa sýnt aukin eituráhrif með lækkun á LD50,
pegar skuggaefni og lidocaín eru gefin saman
(16). Orsakir pessa eru ekki enn kunnar. Þó að
slíkt hafi ekki verið sannprófað á fólki, ber að
hafa pennan áhættupátt í huga. Varðandi
notkun á lidocaíni, ber hér að geta pess, að
deyfandi verkun pess er jafngóð, hvort heldur
pví er sprautað uppleystu í skuggaefninu eða
nokkrum sekúndum á undan pví.
Það er athyglisvert að síðan byrjað var að
blanda lidocaíni í Angiografin við skoðun á
lenda- og útlimaæðum við röntgendeild Land-
spítalans 1978, hefur ekki sést eitt einasta
tilfelli af ofnæmissvörun. Tíðni ofnæmissvara í
formi útbrota, andpyngsla, auk ógleði, vanlíð-
unar og uppkasta við notkun jónaðs skugga-
gjafa við slíkar skoðanir eru á bilinu 0-10%.
Gæti pessi árangur tengst pví, að lidocaín
hefði letjandi áhrif á ofnæmiskerfi líkamans?
Því verðurekkisvarað hér, en væri áhuga-
vert rannsóknarefni útaf fyrir sig.
LOKAORÐ
Klínískar prófanir með ekki-jónuð skuggaefni,
sem ætluð eru til inndælingar í æð, á borð við
Amipaque og iohexol hafa sýnt, svo ekki
verður um villst, yfirburði pessara efnasam-
banda gagnvart jónuðum skuggaefnum, bæði
vegna minni blóðrennslisáhrifa peirra og
vegna pess, hversu ópægindalítil þau hafa
reynst sjúklingum. Amipaque hefur verið not-
að í klínískum prófunum um nokkurra ára
skeið á mörgum stórum röntgendeildum bæði
vestan hafs og austan og hefur löngu sannað
ágæti sitt.
Vegna lægra verðs og meiri hagkvæmni í
notkun mun iohexol án efa leysa Amipaque af
hólmi og ryðja jónuðum skuggaefnum með
hærri flæðiþrýsting alveg úr vegi áður en
langt um líður, par sem því verður við komið.
Iohexol er talsvert dýrara en öll jónuð
skuggaefnasambönd, sem nú eru notuð og
mun pessi verðmunur geta hamlað á moti
almennri notkun pess, sem aðalskuggaefnis
við útlimaskoðanir á stofnunum, þar sem
fjármunir eru af skornum skammti. Með vel-
ferð sjúklinga í huga er samt varla forsvaran-
legt að setja pessari þróun skorður, ef við
ætlum að tryggja sjúklingum pá bestu, áhættu-