Læknablaðið - 15.06.1984, Blaðsíða 50
178
LÆKNABLADID
Number of
cigarettes
smoked each day
■ : with symptoms Antibody
• : without symptoms t'ter
Fig. Correlation between number of cigarettes
smoked each day and antibody titer in 12 subjects
exposed to humidification system.
reykingavenjur og einkenni hjá viðmiðunar-
hópnum. Fimm einstaklingar í viðmiðunar-
hópnum höfðu titergildi tveir fyrir rakatækja-
antigenum, sem er yfir skekkjumörkunum.
Pegar borin eru saman titergildin í rann-
sóknarhópnum og viðmiðunarhópnum sést, að
hærri gildi eru áberandi fleiri í rannsókn-
arhópnum. Munurinn milli rannsóknarhóps og
viðmiðunarhóps er marktækur á 2 % stigi.
UMRÆÐA
Nokkuð skiptar skoðanir eru um eðli raka-
tækjasóttar. Að flestu leyti eru einkenni hin
sömu og við lungnasótt. Pó eru röntgen-
breytingar á lungum sjaldgæfari við rakatækja-
sótt. Mánudagsveikin er einkenni á bómullar-
sótt (byssinosis) og líkist rakatækjasóttin
henni að pví leyti. Flestir, sem skrifað hafa
um rakatækjasótt, hafa talið hana stafa af týpu
III ofnæmi, en einnig hefur komið fram sú
skoðun að endotoxín frá Gramneikvæðum
sýklum væri orsökin (6).
Fyrri rannsóknir hafa komist að sömu
niðurstöðum og við varðandi neikvætt sam-
band milli reykinga og mótefnamagns í blóði
(1). Rætt er um tvær hugsanlegar skýringar á
pessu. Annars vegar að starfsemi átfruma í
lungnablöðrunum sé veikluð vegna reykinga,
en þær eru nauðsynlegar fyrir eðlilegar ó-
næmissvaranir í lungunum. Hins vegar er bent
á, að reykingamenn safni innönduðum ögnum
á aðra staði í lungun en þeir sem ekki reykja,
en þetta gæti einmitt leitt til annars konar ó-
næmisviðbragða hjá reykingamönnum (1).
Niðurstöður rannsóknarinnar hafa sýnt að
mótefnamyndun er algeng gegn antigenum úr
menguðum rakatækjum. Samband mótefna-
magnsins og einkenna er þó óljóst þar sem
aðeins einn úr rannsóknarhópnum fékk veru-
leg einkenni. Fyllsta ástæða er til þess að
fylgja nákvæmlega leiðbeiningum framleið-
enda rakatækjanna um viðhald og þrif. Lík-
lega þarf að þrífa rakatækin vikulega eða oft-
ar til að fyrirbyggja slím og överuvöxt í
þeim. Ástæða er til að íhuga hvort hættan af
notkun vegur upp á móti nytsemi þeirra. Einnig
þarf að muna, að sama hætta getur stafað
af upphitun húsa með stokkakerfum og af
rakagjöfum.
SUMMARY
A case report is given on 46 year old female with
humidifier fever. She worked in a public office
which was equipped with two humidifiers where
slime was growing in the water. The patient and
several of her asymptomatic co-workers had
strongly positive precipitin tests to extracts of the
slime. There was a negative correlation between
smoking and the precipitin tests.
In a control group of office-workers, who were
intermittently exposed to humidification system,
some subjects had weak positive precipitin tests but
the difference between their antibody levels and
those found for the study group was statistically
significant.
HEIMILDIR
1) Belin L.: Prevalence of symptoms and immunore-
sponse in relation to exposure to infected
humidifiers. Europ. J. Respir. Dis. Suppl. 107,
1980,61, 155-62.
2) Gíslason D.: Atvinnusjúkdómar vegna ofnæmis
og ertings í öndunarfærum. Læknablaðið, 1981;
3: 77-89.
3) H. M. Chief Inspector of Factories. Annual
Report, 1969.
4) Muittari A, Kuusisto P, Sovijarvi A.: An epidemic
of bath water fever — endotoxin alveolitis?
Europ J Respir Dis Suppl 123, 1982, 63, 108-16.
5) Pickering CAC. Humidifier fever. Europ J Respir
Dis Suppl 123, 1982, 63, 104-7.
6) Rylander R, Haglind P, Lundholm M, Mattsby I,
Stenquist K.: Humidifier fever and endotoxin
exposure. Clinical Allergy, 1978; 8: 511-6.
7) Siegel S.: Nonparametric statistics for the beha-
vioral sciences, pp. 116-27. McGraw-Hill Koga-
kusha, Ltd Tokyo 1956.