Kópavogur - 12.04.2013, Page 6
6 12. apríl 2013
Lýður Árnason,
Lýðræðisvaktinni
Já, við teljum það óumflúið. Lýð-ræðisvaktin vill rétta hlut heimil-
anna með því að færa niður höfuðstól
almennt á verðtryggðum og gengis-
tryggðum húsnæðislánum. Ennfremur
tryggja að skipan húsnæðislána taki
mið af ríkjandi reglum um neytenda-
vernd sem Ísland hefur lögleitt gegnum
EES.
Allra fyrst vill Lýðræðisvaktin þó
kortleggja raunverulega stöðu þjóðar-
búsins og fá til þess óháða erlendra sér-
fræðinga. Inni í því er staða bankanna,
ríkissjóðs, sveitarfélaga, heimila og fyr-
irtækja. Þegar sú úttekt liggur fyrir
er betra að sjá hvernig framhaldinu
skal háttað.
Fréttaskot Áskrift
Er nokkuðsvona heimahjá þér...
Bara fagmennska!
Láttu Ráðtak ástandsskoða
íbúðina, fyrirtækið, sumar
bústaðinn, farartækið, skipið,
húsbílinn áður en þú kaupir,
leigir eða selur.
Árni Páll Árnason, Samfylkingunni
Já, bætt staða heimilanna og lífskjör verður áfram forgangsverkefni.
Markvissar aðgerðir á borð við 110%
leiðina og endurútreikning erlendra
lána, hafa lækkað skuldir heimilanna
um rúmlega 200 milljarða og sem hlut-
fall af landsframleiðslu eru þær í sömu
stöðu og 2006. En rannsóknir sýna að
ákveðnir hópar eru enn í erfiðri stöðu
og þeirra þörfum þarf að mæta. Þetta
eru þeir sem keyptu á versta tíma fyrir
hrun og þau heimili sem þurftu lánsveð
til íbúðarkaupa. Auk þess hafa þeir
sem eru með lán hjá Íbúðarlánasjóði
ekki fengið jafn miklar niðurfærslur og
aðrir, þar þarf að tryggja sambærilegar
úrbætur.
Til að mæta greiðsluvanda heimil-
anna hafa að auki 100 milljarðar runnið
til fjölskyldna í barna- og vaxtabætur á
kjörtímabilinu. Þar viljum við enn bæta
í. Til framtíðar er besta umhverfið fólgið
í stöðugu gengi og vörn gegn verðbólgu,
kjararýrnun og eignaupptöku. Því
boðum við ábyrga hagstjórn sem miðar
að stöðugleika og möguleika á inngöngu
í myntsamstarf ESB. Í Evrópu býr fólk
við mun lægri vexti og verðbólgu og
það væri ábyrgðarleysi að loka dyrunum
að slíkum kjörum fyrir íslensk heimili.
Vésteinn Valgarðsson, Alþýðufylkingunni:
Það er brýnt að leiðrétta forsendu-brestinn og stökkbreytinguna sem
varð á flestöllum húsnæðislánum þegar
kreppan skall á og eiginlega galið að
það hafi ekki verið gert fyrir löngu. Sér-
tækar lausnir hafa hvergi nærri reynst
nógu vel og drjúgur hluti heimilanna
í landinu rambar á barmi gjaldþrots.
Stökkbreyttar skuldir annarra, sem geta
þó staðið í skilum, eru jafnranglátar og
því jafnrétt að skera þær niður.
Við mundum því beita okkur fyrir
almennum aðgerðum sem mundu
gagnast svo að segja öllum lánþegum,
til dæmis að setja afturvirkt þak á verð-
trygginguna og láta bankana borga
leiðréttinguna. Brýnast af öllu er þó
að félagsvæða fjármálakerfið allt, að
fjármálaþjónusta í landinu verði félags-
lega rekin, opinber þjónusta og fólk geti
fengið þá fjármálaþjónustu sem það
þarf án þess að borga af því okurvexti.
Það er okkar höfuðmál: að félagslega
reknu fjármálakerfi verði komið á
laggirnar svo fólk geti t.d. komið sér
upp hóflegu heimili á því sem næst
kostnaðarverði, hvort heldur það er
til eignar eða leigu.
Eygló Harðardóttir,
Framsóknarflokki:
Já, Framsóknarmenn hafa lagt til almenna skuldaleiðréttingu á höf-
uðstól verðtryggðra húsnæðislána.
Fyrstu tillögur okkar um almenna
skuldaleiðréttingu komu fram árið
2009, þar sem við vildum að afsláttur-
inn á lánasöfnum bankanna yrði látinn
ganga áfram til þeirra sem skulduðu.
Það tækifæri var ekki nýtt. Síðan þá
hafa bankarnir bókfært hagnað sem
nemur samanlagt hátt á þriðja hundrað
milljörðum frá hruni, fyrst og fremst
vegna uppfærslu á lánasöfnum.
Allar götur síðan höfum við leitað
leiða til að koma til móts við skuldsett
heimili. Sú leið sem okkur hugnast
best til þess er að samhliða uppgjöri
föllnu bankanna og afnámi gjaldeyris-
haftanna verði svigrúmi sem þá skapast
nýtt til handa heimilunum.
Alþingiskosningar 2013
Bæjarblaðið Kópavogur sendi nokkar spurningar til allra
þeirra 14 framboða sem tilkynnt hafa um framboð til Alþingis
27. apríl næstkomandi. Svör bárust frá öllum flokkum nema
Sjálfstæðisflokknum, Flokki heimilanna, Hægri grænum,
Húmanistum og Regnboganum.
X2013
Fyrsta spurningin til flokkanna er:
Er það forgangsmál í þínum flokki að taka á skulda-
vanda heimilanna? Ef svo er, hvaða leið ætlið þið að
fara að því marki og hverjir eiga að njóta aðgerðanna?
Garðar H. Guðjónsson skrifar:
Fleiri valkosti á húsnæðismarkaði
Við Vinstri græn teljum að endur-skoða þurfi húsnæðiskerfið með
það fyrir augum að auka fjölbreytni
og bjóða upp á fleiri raunhæfa bú-
setukosti. Við tökum þannig undir
með til að mynda Alþýðusambandinu
sem hefur lagt fram athyglisverðar
hugmyndir um aukna fjölbreytni á
húsnæðismarkaði og að byggja hér
að nýju upp félagslegt húsnæðiskerfi.
Kannski getum við lært af frændum
vorum á Norðurlöndum í þessu sam-
bandi.
Þetta þýðir alls ekki að okkur
sé uppsigað við að fólk eignist sitt
eigið húsnæði. Þvert á móti, við
viljum einmitt leita raunhæfra leiða
til að gera fólkinu í landinu kleift að
eignast þak yfir höfuðið og búa þar
síðan við öryggi og stöðugleika. En
séreignarstefnan hentar ekki öllum.
Valkostirnir þurfa því að vera fleiri,
meðal annars til þess að ungt fólk og
barnafjölskyldur geti með sæmilega
góðu móti fengið þak yfir höfuðið.
Ríkisstjórn Vinstri grænna og Sam-
fylkingarinnar hefur gripið til fjöl-
margra ráðstafana til að koma fólki í
skuldavanda til hjálpar. Komið var á
fót embætti umboðsmanns skuldara,
þak var sett á dráttarvexti og síðast
en ekki síst hafa vaxtabætur verið
hækkaðar stórlega. Það hefur lækkað
vaxtakostnað heimilanna um 10-45
prósent, mest hjá þeim sem lægstar
hafa tekjurnar. Þannig hefur skattkerf-
inu verið beitt með réttlátum hætti til
að jafna lífskjör.
Betur má þó ef duga skal í mörgum
tilvikum og við verðum að halda
áfram að leita lausna á vanda þeirra
sem eru í mesta greiðsluvandanum,
jafnt þeirra sem eiga og þeirra sem
leigja. Það er ekki endilega töfralausn
að afnema verðtryggingu en hún
stenst ekki í óbreyttri mynd. Henni
verður að setja skorður til að verja
fólk fyrir áföllum og kollsteypum. Að
sama skapi gengur ekki að fólk leggi
í fjárhagslegar óvissuferðir til áratuga
þótt lánin séu óverðtryggð. Öryggi
og stöðugleiki eru lykilorðin í þessu
sambandi.
Húsnæðismál og endurskoðun
húsnæðislána verða eitt mikilvægasta
verkefni stjórnvalda á næstu árum. Þar
horfum við í VG til framtíðar um leið
og við leitum raunhæfra lausna á þeim
fortíðarvanda sem blasir við okkur.
Höfundur skipar 5. sæti á lista
Vinstri- grænna í Suðvesturkjördæmi
Sjá fleiri svör á blaðsíðu 10
Garðar H. Guðjónsson.