Kópavogur - 12.04.2013, Síða 9

Kópavogur - 12.04.2013, Síða 9
912. apríl 2013 Willum Þór Þórsson skrifar: Óréttlætið felst í að heimilin sitji ein og óstudd uppi með afleiðingar hrunsins Heimilin eru grundvallarein-ing hagkerfisins, undirstaða þess og drifkraftur. Þung skuldastaða og erfið greiðslubyrði lána samhliða skattahækkunum, auknum opinberum álögum og hækkandi verð- lagi hafa skert ráðstöfunatekjur heimila enda liggur sú staðreynd fyrir að um það bil helmingur heimila á Íslandi á erfitt með að ná endum saman. Stjórn- málaumræðan hverfist því æ meir um þessa erfiðu stöðu heimilanna. Við í Framsóknarflokknum höfum talað skýrt og afgerandi um það hvað við viljum gera og sett það í forgang að leysa þennan vanda. Forgangsmálin eru skuldaleiðrétting, afnám verð- tryggingar og efling atvinnlífs. Við höfum sagt að ekkert réttlæti það að heimilin sitji ein og óstudd uppi með þessar afleiðingar efnahagshruns- ins og því þarf að leiðrétta stökkbreytt húsnæðislán. Ekki er lengur deilt um að svigrúm er til staðar í formi afskrifta eða skattlagningar á eignir erlendra kröfuhafa bankanna. Þetta svigrúm viljum við nýta til handa heimilunum. Við viljum afnema verðtryggingu á neytendalánum og tryggja lántak- endum um leið möguleika á að breyta yfir í óverðtryggð lán. Þar verður að útfæra nýtt húsnæðislánakerfi þar sem kostnaður er viðráðanlegur og þekktur og áhættunni jafnað á milli lántaka og lánveitanda. Hagkerfið er hringrás verðmæta- sköpunar, hringrás framleiðslu og pen- inga. Fyrirtækin eru hin grunnefna- hagseiningin, stoð atvinnulífsins. Því viljum við Framsóknarmenn efla at- vinnulifið og gera það með einföldun regluverks og lækkun skatta og auka þannig framleiðni og hvata til nýsköp- unar og mannaráðninga. Þannig eykst ráðstöfunargeta heimil- anna og fjárfestingargeta fyrirtækjanna. Þannig virkar efnahagshringrásin sem forsenda vaxtar og velferðar. Þannig virkar Framsókn fyrir heim- ilin og atvinnulífið. Willum Þór Þórsson, fjölskyldufaðir og hagfræðingur skipar 2. sætið á lista Framsóknar- flokksins í suðvesturkjördæmi. -Hvernig er bæjarbragurinn að mati bæjarstjórans? „Það kom mér mjög á óvart, þegar ég flutti hingað frá Reykjavík, hve ég upp- lifði sterkan bæjarbrag, ef svo má að orði komast. Kópavogsbúar eru mjög meðvitaðir um bæinn sinn og gera miklar kröfur til þeirra sem stjórna honum. Ég hafði ímyndað mér að það skipti ekki öllu máli hvort maður byggi í Kópavogi eða Reykjavík en því er allt öðruvísi farið. Þessi sterka upplifun varð til þess, meira en kannski nokkuð annað, að ég ákvað að skella mér í bæj- arpólitíkina.“ -Hvernig er hinn dæmigerði Kópa- vogsbúi í huga bæjarstjórans? „Hinn dæmigerði Kópavogsbúi lítur ekki yfir lækinn heldur lítur sér nær því hann veit að Kópavogur hefur upp á allt að bjóða. Hinn dæmigerði Kópa- vogsbúi tekur virkan þátt í félags- og íþróttalífi bæjarins, sækir sundlaugar og söfn, og kaupir sínar vörur og þjón- ustu innan bæjarmarkanna. Hinn dæmigerði Kópavogsbúi lætur sig bæinn miklu varða og hefur sterkar skoðanir á því hvernig best sé að haga málum.“ -Kópavogur hýsir margar verslanir, er rétt að kalla hann verslunarbæ? „Já, það er augljóst. Hér er til dæmis stærsta verslunarmiðstöð landsins, Smáralind, en við erum einnig með öfl- uga verslunarkjarna, svo sem á Smára- torgi, í Lindum og í Breiddinni þar sem Byko hefur m.a. verið í áratugi.“ -Hvernig er fjárhagsstaðan? „Fjárhagsstaða Kópavogs er í raun mjög sterk þrátt fyrir áföllin sem dundu yfir á haustmánuðum 2008. Í kjölfarið urðu til dæmis mikil lóðaskil sem þýddi að peningar streymdu úr bæjar- sjóði. Að undanförnu hefur hins vegar orðið mikill viðsnúningur og lóðir hafa gengið mjög hratt út. Skuldahlutfallið, þ.e.a.s. skuldir á móti tekjum, hefur líka verið að batna hratt og stefnum við að því að ná því niður fyrir 150% innan fárra ára. Aðalatriðið er að reksturinn er sterkur, rekstrarafgangur fyrir fjár- magnsliði og lífeyrisskuldbindingar, hefur verið góður og veltufé frá rekstri er orðið hátt í þrír milljarðar króna. Þetta sýnir sterkan tekjugrunn enda er eftirsóknarvert að búa í Kópavogi.“ -Kemur sameining við önnur sveitar- félög til greina að þínu mati? „Ég held að slíkar viðræður séu alls ekki tímabærar vegna þess að sveitarfélögin eru enn að jafna sig eftir bankahrunið. Þar fyrir utan eru ýmsar rannsóknir sem sýna fram á að heppileg stærð á sveitarfélögum geti verið á bilinu þrjátíu til fimmtíu þús- und íbúar. Því getur með öðrum orðum fylgt mikill kostnaður að hafa sveitar- félag of stórt; stjórnsýslan verður þá flóknari og dreifðari, auk þess sem ná- lægð bæjarbúa við stjórnkerfið verður ekki eins mikil. Ég er ekki viss um að það sé það sem bæjarbúar vilja. Maður getur líka spurt sig af hverju við ættum að vera breyta því sem vel gengur. -Hver er framtíðarsýnin? „Ef rétt er haldið á spilunum sé ég fyrir mér að Kópavogur verði í náinni framtíð draumasveitarfélagið; fjárhags- lega sterkt sveitarfélag með lága skatta og fyrsta flokks þjónustu.“ -HÞ Hraustir krakkar í Lindaskóla Um fjárhagsstöðu bæjarsjóðs: „Skuldahlutfallið, þ.e.a.s. skuldir á móti tekjum, hefur líka verið að batna hratt og stefnum við að því að ná því niður fyrir 150% innan fárra ára...“ Allir reikningar frá Kópavogsbæ nú aðgengilegir í íbúagáttinni Allir reikningar Kópavogsbæjar svo sem vegna leikskólagjalda, fasteignagjalda og annarra gjalda birtast nú í íbúagáttinni sem nálgast má á vef Kópavogsbæjar, www. kopavogur.is. Þar með er ekki talin þörf á því lengur að birta reikninga bæj- arins í heimabanka viðkomandi aðila. Kópavogsbúar eru hvattir til að skrá sig í íbúagáttina en þar geta þeir séð reikninga og yfirlit yfir samskipti sín við bæinn. Tilgangur íbúagáttarinnar er að veita Kópavogsbúum betri rafræna þjónustu. Í gáttinni er til dæmis hægt að sækja um margvíslega þjónustu, senda formleg erindi til bæjaryfirvalda, skoða reikn- inga og yfirlit og fylgjast með framgangi sinna mála hjá bænum. Íbúagáttin var tekin í notkun fyrir rúmu ári og sífellt fleiri bæjarbúar nýta sér hana. Efst til hægri á vef bæjarins er hægt að komast inn í gáttina og skrá sig. Lendi einhver í vandræðum er hægt að hafa samband við þjónustuver bæjarins í síma: 570 1500 eða með því að senda tölvupóst á kopavogur@kopavogur.is lið lindaskóla í Skólahreysti tryggði sér sæti í úrslitakeppninni sem fram fer í laugardalshöllinni þann 2. maí. Þessir duglegu krakkar eru:Valdimar Friðrik Jónatansson, Einar Karelsson, Valdís Björk Guðmundsdóttir, Ingibjörg petrea Ágústsdóttir, Inga aðalheiður pétursdóttir og Hrannar Jónsson Willum Þór Þórsson. Ólympíumeistara og Kópavogsbúa, Jóni Margeiri Sverrissyni, fagnað við heimkomu að loknum Ólympíuleikunum 2012.

x

Kópavogur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kópavogur
https://timarit.is/publication/987

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.