Kópavogur - 24.05.2013, Side 8
8 24. maí 2013
Karl Ágúst Úlfsson lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands 1981 og lék í mörg ár á sviði, í sjónvarpi
og í kvikmyndum. Á síðari árum hefur
hann einkum starfað í leikhúsi og við
sjónvarp sem höfundur, leikstjóri og
þýðandi. Karl Ágúst lauk MFA-gráðu
í leikritun, handritagerð og leikstjórn
við Ohio University árið 1994. Fjögur
verka hans hafa verið sett á svið í
Bandaríkjunum, og meðal leikverka
Karls Ágústs sem sýnd hafa verið á
Íslandi eru Í hvítu myrkri í Þjóðleik-
húsinu, söngleikirnir Fagra veröld í
Borgarleikhúsinu og Ó, þessi þjóð í
Kaffileikhúsinu svo fátt eitt sé nefnt.
Auk þessa hefur hann þýtt yfir þrjátíu
leikverk fyrir útvarp og leiksvið, þar á
meðal Jesus Christ Superstar sem sett
var upp í Borgarleikhúsinu árið 2007.
Karl Ágúst er sá sem er yfirheyrður að
þessu sinni.
Fullt nafn?
Karl Ágúst Úlfsson
Fæðingardagur og ár?
4. nóvember 1957
Stjörnumerki?
Sporðdreki
Starf?
Leiklistamaður. Ég er farinn að nota
það starfsheiti í seinni tíð í stað þessa
að kalla mig ýmist leikara, leikstjóra,
rithöfund, þýðanda eða hvað það nú er
sem ég er að fást við þá stundina. Allt
sem ég starfa tengist hins vegar leiklist,
svo leiklistamaður er ágætis orð.
Foreldrar?
Unnur Karlsdóttir og Úlfur Þór
Ragnarsson
Hvert liggja ættir þínar
(móðurleggur / föðurleggur)?
Pabbi er ættaður úr Austur-Húnavatns-
sýslu og úr Dölunum, en mamma ofan
af Skaga og úr Reykjavík.
Hvert sækirðu gríngenin?
Í allar áttir. Það eru margir spaugfuglar
í báðum ættum. Pabbi og mamma eru
bæði miklir húmoristar og í rauninni
miklu fyndnari en ég og móðuramma
mín var með skemmtilegri mann-
eskjum sem ég hef kynnst.
Skólaganga?
Ég hóf mína skólagöngu í Vogaskóla,
flutti svo í Laugalækjarskóla og þá í
Varmárskóla í Mosó. Svo var það Brú-
arlandsskóli, sem seinna varð Gagn-
fræðaskóli Mosfellssveitar og eftir
það M.H., þá Leiklistarskóli Íslands
og loks Ohio University, en þaðan
lauk ég meistaragráðu í leikritun og
handritagerð.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú
yrðir stór?
Áður en ég ákvað að verða auðnuleys-
ingi man ég ekki eftir nema einu starfs-
heiti sem ég sóttist eftir, en það var
dýralæknir, sem er mjög merkilegt þar
sem ég var hræddur við flest dýr. Svo
datt mér í hug að verða myndhöggv-
ari og eftir það hefur þetta allt legið
niður á við.
Maki?
Tveggja manna maki, en einhleypur
að öðru leyti.
Börn/barnabörn?
Fimm börn og fjögur barnabörn. Og
kvarta ekki.
Hverjir eru helstu kostirnir við að
búa í Kópavogi?
Ætli aðal kosturinn sé ekki hvað Kópa-
vogur hefur komið mér skemmtilega á
óvart. Ég vissi lítið hvað ég var að fara
út í þegar ég flutti hingað en áttaði mig
á því strax á fyrstu vikunni hvað þetta
hentaði mér vel. Ég segi bara eins og
Kennedy:
Ich bin ein Kopavogier.
Í hvað hverfi býrðu?
Í Kjarrhólmanum, alveg neðst í Foss-
vogsdalnum. Þar iðar allt af útivist og
íþróttum, já og grænmetisrækt, svo ég
er í góðum málum.
Ef þú byggir ekki í Kópavogi, hvar þá?
Ég veit það ekki. Annað hvort í New
York eða einhvers staðar uppi í sveit
með hænur og hross sem ég væri sjálf-
sagt skíthræddur við.
Hefurðu búið erlendis?
Já, ég bjó í tvö ár í Athens, Ohio, en
það er í Bandaríkjunum. Óhemjulega
krúttlegur lítill háskólabær með alvöru
meginlandsloftslagi, þar sem maður
getur bæði dáið úr hita og kulda eftir
árstíðum.
Stærsti sigurinn?
Þeir eru bara svo margir. (Guð, og ég
sem ætlaði að vera svo hógvær í þessu
viðtali!) Einn er að horfa á börnin mín
fæðast án þess að þurfa áfallahjálp á
eftir. Annað er að hafa skrifað og leikið
í hátt í 500 Spaugstofuþáttum og hafa
ennþá gaman af því.
Mesta axarskaftið?
Að byrja að reykja tuttugu og þriggja
ára gamall. Á þeim aldri hefur maður
ekki lengur þá afsökun að maður sé
bara krakkabjáni. Síðan losnaði ég ekki
við tóbaksfíknina fyrr en átján árum
seinna.
Vandræðalegasta augnablikið?
Þau eru bara svo mörg. (Ég er að reyna
að bæta fyrir svarið við spurningunni
um sigrana.) Kannski þegar ég fékk svo
frábæra hugmynd að leikriti að ég sat í
tvo daga og skrifaði nákvæma lýsingu
á söguþræðinum, persónum og eins-
tökum atriðum. Þegar ég settist síðan
niður með þáverandi Þjóðleikhússtjóra
til að kynna hugmyndina fyrir honum
benti hann mér á að þetta leikrit hefði
verið skrifað áður. Ég var sem sagt bú-
inn að stela verki annars manns án þess
að hafa hugmynd um það. Nei, eflaust á
ég miklu vandræðalegri augnablik sem
ég er búinn að þurrka út úr minninu.
Helstu áhugamál?
Útivist, fjallgöngur, kajakróður, lík-
amsrækt, hjólreiðar, tennis, uppeldi,
trommuleikur og andleg málefni af
margvíslegum toga.
Ertu tilfinninganæmur?
Alveg skelfilega. Sumar ljóðlínur get ég
ekki farið með án þess að mér vökni
um augun og stundum þarf ég ekki
annað en að fá góðan mat til að tilf-
inningarnar beri mig ofurliði.
Ertu rómantískur?
Alveg þokkalega, held ég. Ég lendi
stundum í því að segja eða gera eitthvað
sem verður til þess að konur segja "ó,
en rómantískt", og þá kem ég kannski
af fjöllum. Hafði ekki hugmynd um
að umrædd orð eða athöfn flokkaðist
undir annað en hversdagsleg samskipti.
Þannig að, jú, trúlega er ég miklu róm-
antískari en ég held.
Áttu góða uppskrift að rómantísku
kvöldi?
Í fúlustu alvöru, þá held ég að svoleiðis
uppskrift hlyti alltaf að vera svolítið
tilgerðarleg. Er það ekki?
Erum við þá ekki farin að tala um ein-
hver leiktjöld, búninga og handrit?
Eina uppskriftin að rómantík sem ég
kann er einlægni og hún á við bæði
kvölds og morgna.
Hvað gerir konur aðlaðandi?
Húmor, jákvætt hugarfar og hlýja. Og
svo smá húmor í viðbót.
Hver er þinn helsti kostur?
Þeir eru bara svo margir — uu, nei, ég
er víst að ofnota þetta svar. Ég er farinn
að þekkja takmarkanir mínar og taka
mark á þeim. Ég er hættur að taka að
mér hluti sem ég ræð ekki við.
En galli?
Hvað það er fátt sem ég ræð við.
Kanntu á saumavél?
Uuu, nei. Þarna sérðu. Stór galli.
Kanntu að bakka bíl með kerru
aftaní?
Já já, það kann ég. Eins og margir af
minni kynslóð var ég farinn að keyra
dráttarvél ólöglega í kringum ferm-
ingu. Þá lærði ég að bakka með allar
stræðir af kerrum aftaní. Svo kann
ég líka að bakka saumavél.
Hvernig slakarðu best á?
Ég íhuga, það er góð slökun. Annars
held ég að ég slaki best á lengst uppi
á fjöllum, langt frá tölvudóti og GSM
símum.
Ertu flughræddur?
Nei.
Ertu með bíladellu og hvernig bíl
áttu?
Nei, ég er ekki með bíladellu, eða var
það að minnsta kosti ekki fyrr en ég
eignaðist núverandi bíl, sem er Land
Rover Defender. Þá fyrst kynntist ég
alvöru karakter af bílakyni og við
urðum strax perluvinir.
Ferðastu mikið (innanlands og/eða
utan)?
Ég reyni að ferðast innanlands eins og
ég get, helst með börnunum mínum.
Við erum útilegufólk öll með tölu.
En ég reyni líka að komast burt af
skerinu af og til, ýmist til að vinna,
heimsækja góða vini eða stunda
menningarlíf.
Fallegasti staðurinn á Íslandi?
Suð-Vesturland séð ofan af Botns-
súlum.
Fallegasti staðurinn í útlöndum?
Blái hellirinn á Capri.
Eftirminnilegur staður?
Colorado Monument
Ertu hjátrúarfullur?
Já, alveg sæmilega.
Trúir þú á framhaldslíf?
Já.
Hefurðu farið til spámiðils og/eða
trúir þú á slíkt?
Nei, það hef ég aldrei gert og hef afar
takmarkaða trú á þeim.
Ertu góður að elda og hver er þinn
uppáhalds matur?
Ég er enginn snillingur í eldhúsinu, en
ef ég gef mér góðan tíma get ég alveg
sett saman ætan mat. Ég er óskaplega
veikur fyrir austrænni matargerð, ind-
verskri, tælenskri og víetnamskri og
reyni stundum að apa eftir einhverju
slíku.
Ferðu oft út að borða?
Já já.
Besti/eftirminnilegasti veitingastað-
urinn (innanlands eða utan)?
Hráfæðisveitingahús á Manhattan sem
heitir Pure Food and Wine. Þar varð ég
fyrir matarreynslu sem ekkert hefur
toppað fyrr eða síðar.
Uppáhalds tónlistarmaður eða tón-
list?
Ætli ég verði ekki að nefna Megas. Ég er
búinn að hlusta á hann síðan í menntó
og hef ekki ennþá fengið nóg. Svo er
Dylan ekki sá alversti.
Athyglisverð bók?
When the Drummers Were Women
eftir Layne Redmond. Stórmerkileg
söguleg úttekt á gamla mæðraveldinu
og frumkvöðlahlutverki kvenna í
menningu, listum og trúarathöfnum.
Hvert eftirtalinna er skemmtilegast:
Að leika á sviði, kvikmyndum eða
sjónvarpi?
Ég hef svo lítið leikið á sviði seinni árin
að líklega er það tilbreytingin sem gerir
það að verkum hvað mér þykir það of-
boðslega skemmtilegt í þessi fáu skipti.
Hins vegar hef ég stundum orðið leiður
á að leika það sama kvöld eftir kvöld
og þess vegna hefur sjónvarps- og kvik-
myndaleikur hentað mér ágætlega. Ég
get eiginlega ekki svarað þessu svo að
vit sé í.
Eru Íslendingar almennt með léttan
og góðan húmor?
Ekkert endilega. Íslendingar eru mjög
mismunandi eins og aðrar þjóðir.
Hvað gerir þú þegar þú ert argur eða
ekki í góðu skapi?
Ég reyni að horfa á eða lesa eitthvað
upplífgandi, eða tala við skemmtilegt
fólk, til dæmis börnin mín. Ef það
dugar ekki fer ég bara að sofa.
Hvaða stjórnmálamann er skemmti-
legast að leika?
Það væri ósanngjarnt að nefna ekki Jó-
hönnu Sigurðar, því hana hef ég leikið
lengst og mest, en ég hafði alltaf gaman
af að bregða mér í Björn Bjarnason á
meðan hann var í sviðsljósinu.
Hefur einhver, sem þú hefur leikið
eftir, orðið reiður eða fúll?
Já. En mér finnst ekki sanngjarnt að
ég nefni hann, því hann kaus að bera
harm sinn í hljóði.
Hvað er framundan?
Þessa dagana erum við Siggi Sigurjóns
og Örn Árna á fullu að gera klárt fyrir
tökur á bíómynd um einkaspæjarana
Harrý og Heimi. Þetta er verkefni sem
búið er að vera í pípunum í nokkur
ár. Já, og hefur reyndar verið draumur
okkar í næstum því 25 ár, svo það eru
mikil átök framundan, blóð, sviti og tár
og vonandi líka fullt af hlátri.
Áttu handa okkur uppbyggilega/
skondna sögu?
Já, en þær eru bara svo margar......
Karl Ágúst Úlfsson:
„Ætlaði að verða dýralæknir....þó ég hafi verið hræddur við flest dýr....“
Stórfjölskylda Karls Ágústs saman komin á góðri stundu.
„Þegar ég eignaðist Land Rover Defender þá kynntist ég alvöru karakter af
bílakyni.“ segir Karl Ágúst.