Kópavogur - 24.05.2013, Page 9
924. maí 2013
Hvað veistu um bæinn þinn?
Hafa skal það sem sannara reynist
Í siðasta tölublaði KÓPAVOGS fjallaði gátan um skólamál og var spurningin á þessa leið: „Fyrsti
grunnskólinn í Kópavogi tók til starfa
12. janúar 1949. Í upphafi var hann
í daglegu tali kallaður “Svarti skóli”
vegna þess að hann var klæddur með
tjörupappa að utan. Hvað heitir (eða
hét) þessi skóli réttu nafni? Svarið
sem gefið var, var Kópavogsskóli við
Digranesveg.
Þórður Guðmundsson formaður
Sögufélags Kópavogs hafði samband
við ritstjórn blaðsins og benti góð-
fúslega á að þarna gætti ákveðins
misskilnings sem ritsjóra er bæði ljúft
og skylt að leiðrétta. Eftir afar fróð-
legt og skemmtilegt samtal við Þórð
fór hann yfir þróunina í grunnskóla-
málum Kópavogs frá því fyrsti skólinn
tók til starfa sem þjónaði þessu svæði.
„Misskilngurinn í upphafi spurn-
ingarinnar síðast er í meginatriðum
sá að „Svarti skóli“ og Kópavogs-
skóli við Digranesveg voru ekki sami
skólinn, þó skólahald hafi vissulega
verið á sínum tíma í „Svarta skóla“ sem
svo var nefndur“ segir Þórður. Hann
bendir á að „Svarti skóli“ hafi verið
starfræktur þegar Kópavogur var hluti
af Seltjarnarneshreppi. Eftir kosn-
ingarnar 1946 náðu Kópavogsbúar
meirihluta í hreppstjórn Seltjarnarnes-
hrepps sem þeim á Seltjarnarnesi þótti
ekki gott. Það var því að þeirra ósk sem
þeir fóru fram á að Kópavogur myndi
kljúfa sig frá Seltjarnarneshreppi og
stofna Kópavogshrepp. Það var síðan
gert 1948.
En varðandi skólamálin segir
Þórður að skólastarf hafi hafist á
Kópasvogssvæðinu í „Svarta skóla“.
„Þetta var þannig að formlegt
skólahald í Kópavogi hófst 1945
undir merkjum Mýrarhúsaskóla á
Seltjarnarnesi eða sem eins konar
útibú frá þeim skóla enda Kópavogur
þá hluti af Seltjarnarneshreppi. Fyrst
var skólinn til húsa á Hlíðarvegi 9 sem
seinna var Hlíðarvegur 11. Þessi skóli
gekk undir nafninu „Svarti skóli“ því
húsið var klætt svörtum tjörupappa
eins og fram hefur komið. Skólinn
starfaði þarna skólaárið 1945 – 1946
en flutti þá í skólahúsnæði á Digra-
nesvegi 2 og var þar skólaárið 1946 –
1947. Það var svo um haustið 1947 að
skólinn flutti í nýbyggt verksmiðjuhús
niður við Marbakka, þar sem Málning
h/f var seinna til húsa“ segir Þórður
og bendir á að þar hafi hann verið
alveg fram til þess að nýr og glæsi-
legur skóli var tekinn í notkun í janúar
1949. „Kópavogur verður sjálfstæður
hreppur, Kópavogshreppur, árið 1948
og var grunnskólinn því við Marbakka
við stofnun hreppsins. En eins og fyrr
segir fluttist hann í ársbyrjun 1949 frá
Marbakka í nýtt og glæsilegt skólahús
við Digranesveg. Nefndist skólinn
fyrst Barnaskóli Kópavogs, síðar
Barna og -unglingaskóli Kópavogs, því
næst Kópavogsskólinn og að endingu
Kópvogsskóli eins og hann heitir enn
í dag“ sagði Þórður að lokum í sam-
talið við blaðið. Ritstjórn KÓPAVOGS
þakkar Þórðir sérstaklega fyrir þennan
fróðleik sem sýnir að sagan er ekki
alltaf einföld. Að mörgu þarf að hugsa.
Auglýsingasíminn er 578 1190
Netfang: auglysingar@fotspor.is
fotspor.is
Mótorhjólamessan í Digraneskirkju annan í hvítasunnu:
Yfirfull kirkja og
nær allir til altaris
-Sr. Gunnar Sigurjónsson sóknarprestur segir messuna hafa fest sig í sessi
Ég er afskaplega sáttur og ánægður með hvernig til tókst og andinn í kirkjunni var af-
slappaður og einlægur“ segir sr.
Gunnar sem jafnframt er mikill mótor-
hjólamaður. Hann hefur staðið fyrir
þessum messum með góðra manna
aðstoð í sjö ár og aðsóknin að þessum
messum hefur verið langt yfir það sem
kirkjan tekur í sæti sem er um 320
manns. „Það voru nú ríflega 350 manns
í messunni og ég held ég megi segja að
nær allir hafi gengið til altaris“ segir
Gunnar. Hann segir margar ástæður
vera fyrir því hversu vinsælar þessar
messur eru. „Ég get nefnt sem dæmi að
einn sem kom til altarisgöngu og sagði
við mig: Get ég aðeins fengið brauðið
– ég á í baráttu! Ég sagði að sjálfsögðu
og bauð honum blessun að auki og þá
var eins og áhyggjur úr andliti hans
vikju fyrir þakklætissvip“ segir Gunnar.
Hann segist ávallt verða að taka fram
við upphaf messu að þessi guðþjónusta
verði ekki með hefðbundnu sniði og
þeir sem séu að leita að slíkri messu
séu ekki á réttum stað þá stundina. „Ég
tel bara rétt og eðlilegt að geta þessa
við upphaf messunnar svo fólk viti að
hverju það gengur til að forðast allan
misskilning“ segir Gunnar.
Hann nefnir til viðbótar að á
þessum degi, degi mótorhjólames-
sunnar, selji Grillhúsið hamborgara
sem þeir kalla „kraftaklerk“ og allur
ágóði af sölu borgarans rennur til
endurhæfingar Grensásdeildar.
Ennfremur eru seldar vöfflur að
messu lokinni og ágóðinn af þeirri
sölu rennur til Hjálparstarfs kirkj-
unnar en að þessu sinni voru það
mótorhjólamenn úr Hafnarfirði sem
sáu um baksturinn. „Hér koma þvi
saman mótorhjólamenn saman hver
á sínum forsendum og láta gott af sér
leiða“ sagði sr. Gunnar Sigurjónsson
ánægður og stoltur hvernig til tókst.
Sr. Gunnar Sigurjónsson í fullum vélhjólaskrúða við messu. Engin hempa í
þetta sinn. Mynd: Þórður Ingi Þeir voru glæsilegir mótorfákarnir við Digraneskirkju á mánudaginn. Mynd: Þórður Ingi
Þórður St. Guðmundsson form. Sögu-
félags Kópavogs.
Kópavogsskóli í dag. Mynd: Kópavogsskóli