Selfoss - 18.10.2012, Side 10

Selfoss - 18.10.2012, Side 10
10 18. október 2012 Skilaboð Mér finnst þetta einhverjar mikilvægustu kosningar sem haldnar hafa verið á lýðveldistím- anum. Nú gefst okkur tækifæri til að gefa skýr skilaboð um á hvaða grunnstoðum við viljum byggja sam- félag okkar. Þótt atkvæðagreiðslan sé ráðgefandi er Alþingi ekki stætt á öðru en að virða niðurstöðuna og framfylgja vilja þjóðarinnar eins og það hefur gert í öðrum ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslum sem haldn- ar hafa verið. www.selfossblad.is www.hafnar f jordurblad. is  www.reykjavik blad. is www.akureyr iv ikublad. is  www.reykjanesblad. is www.vestur landblad. is Kjörfundur í Hveragerðisbæ Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðagreiðslu laugardaginn 20. október 2012 hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00 þann dag. Kjörfundurinn verður í Grunnskólanum í Hveragerði, gengið er inn um aðalinngang við íþróttahúsið. Sérstök athygli er vakin á eftirfarandi: Kjósandi skal hafa persónuskilríki meðferðis og allur áróður á og við kjörstað er óheimill. Hveragerði 15. október 2012 Kjörstjórnin í Hveragerðisbæ. Tækifæri Já, svo sannarlega ætla ég að taka þátt. Það er einstakt tækifæri sem ekki gefst öllum kynslóðum að taka beinan og milliliðalausan þátt í því að móta grunnlög samfélagsins. Sjálfa stjórnarskrána. Ferlið allt byggir á þátttöku al- mennings í því. Nú fáum við að segja hvort við t.d. viljum að auðlindir landsins verði í þjóðareign. Þetta er afar mikilvæg spurning sem snert- ir alla nýtingu auðlinda um langa framtíð. Annað sem snýr að lýðræðinu skiptir líka miklu máli. Til að mynda held ég að aukið persónukjör yrði til bóta og kæmi í stað prófkjöra og uppstillinga. Eykur beint lýðræði í landinu til muna. Mestu skiptir að taka þátt. Láta ekki aðra kjósa fyrir sig með því að sitja heima. Góð þátttaka er mikil- vægt bakland breytinga á stjórnar- skránni. Því er ástæða til að hvetja til þátttöku í þessari einstæðu at- kvæðagreiðslu. Ekki grunnur Ég ætla að mæta og segja nei við því að tillögur stjórnlagaráðs verði notaðar sem grunnur að nýrri stjórnarskrá. Ég tel mjög mikilvægt að kjós- endur taki þátt í þessari kosningu, eins og öllum öðrum og nýti sinn dýrmæta lýðræðislega rétt. Ég verð vör við mikið áhugaleysi almennings varðandi þessa kosningu og vil því nota þetta tækifæri til þess að hvetja fólk til þess að kynna sér málið og taka þátt. Engin rök Að sjálfsögðu ætla ég að kjósa. Stjórnarskráin skiptir mig miklu máli. Ég tel engin rök standa til þess að umbylta þeirri stjórnarskrá sem við eigum. Auðvitað eru nokkur atriði í henni sem þarft er að taka til endurskoðunar en ekkert kallar á það að henni verði umbylt með þeim hætti sem tillögur stjórnlaga- ráðs fela í sér. Óljóst er hvað spurningarnar á atkvæðaseðlunum þýða. Ef kjós- andinn svarar fyrstu spurningunni, grundvallarspurningunni, játandi verður þá litið svo á að kjósandinn sé þar með að leggja það til að hinar 115 tillögur stjórnlagaráðs verði ný stjórnarskrá? Ljóst er af umræðunni að nokkrir aðilar sem sátu í stjórn- lagaráði líta svo á. Óljósara er með skoðun stjórnarþingmanna á þessu álitaefni. Þó ýmislegt áhugavert sé að finna í tillögum stjórnlagaráðs er ég ekki sammála þeim öllum. Þess vegna mun ég segja nei við þessari spurningu. Það skiptir máli að þátttaka í þjóðaratkvæðagreiðslunni verði góð. Við sem búum á landsbyggð- inni hljótum t.d. að hafa skoðun á þeirri tillögu stjórnlagaráðs að at- kvæðavægi verði jafnað með þeim augljósu afleiðingum að þingmönn- um af landsbyggðinni mun fækka. Ekki ákveðið Ég hef ekki ákveðið mig. Marg-víslegar ástæður liggja að baki. Hvers vegna að kjósa 20. október? Þessir þingmenn Suðurkjördæmis svöruðu kalli blaðsins um að svara þeirri spurningu. Atli Gíslason. björgvin G. Sigurðsson Unnur brá konráðsdóttir Margrét tryggvadóttir ragnheiður elín Árnadóttir Afdrifarík Þjóðaratkvæðagreiðslan hefur mikið vægi og verður afdrifarík því farið verður eftir niðurstöðum hennar við vinnslu frumvarpsins um nýja stjórnarskrá. Ef niður- staðan verður sú að leggja tillögur stjórnlagaráðs til grundvallar þá liggja efnisatriði nýrrar stjórnar- skrár fyrir. Hinar spurningarnar fjórar eru einnig allar mikilvægar. Þær varða stóra hagsmuni þjóðar- innar um eignarhald á auðlind- um, hvort ákvæði eigi að vera um þjóðkirkju, persónukjör og jafnt vægi atkvæða. Allt málefni sem nauðsynlegt er að fólkið í landinu skeri úr um. Ég hvet því alla til að fara á kjörstað og taka þátt í þessari mikilvægu og á margan hátt merkilegu tímamóta þjóðar- atkvæðagreiðslu. oddný Harðardóttir

x

Selfoss

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.