Selfoss - 24.01.2013, Qupperneq 4

Selfoss - 24.01.2013, Qupperneq 4
4 24. janúar 2013 Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri: Þorlákur Helgi Helgason, netfang: torlakur@fotspor.is Myndir: ÞHH og ýmsir aðrir. Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 9.500 eintök. dreifing: Íslandspóstur Fríblaðinu er dreiFt í 9.500 eintökum á öll heimili á suðurlandi. SELFOSS 2. TBL. 2. ÁRGANGUR 2013 Selfoss inn á hvert heimili! www.selfossblad.is www.hafnar f jordurblad. is  www.reykjavik blad. is www.akureyr iv ikublad. is  www.reykjanesblad. is www.vestur landblad. is Sóknaráætlanir landshluta - Ábyrgð og völd til landshluta Markmiðið með sókn-aráætlanum landshluta er að færa aukin völd og aukna ábyrgð til landshlutanna við forgangsröðun og skiptingu almannafjár til verkefna á sviði byggða- og samfélagsþróunar. Til- gangurinn er að ná fram betri nýt- ingu fjármuna og færa ákvarðana- töku nær heimamönnum sem þekkja best til aðstæðna. Landshlutarnir átta skila allir sóknaráætlunum um miðjan febrúar. Stofnað hefur verið til samráðsvettvangs á hverju svæði þar sem saman koma fulltrúar sveit- arstjórna og hagsmunaaðila, undir forystu stjórnar landshlutasamtaka sveitarfélaga. Þarna er vettvangur til að móta framtíðarsýn og stefnu og forgangsraða markmiðum og verkefnum. Í fyrstu verða verkefni á víðu sviði atvinnumála og nýsköpunar, markaðsmála og mennta- og menn- ingarmála fjármögnuð í gegnum sóknaráætlun. Í kjölfarið er gert ráð fyrir að aðrir þættir byggðamála s.s. velferðarmál og þróun innviða, falli undir sama verklag. Sóknaráætlanir landshluta er sam- eiginlegt þróunarverkefni ráðuneyta og sveitarfélaga og byggir á sam- vinnu. Ráðuneytin skipa öll fulltrúa í hóp sem myndar stýrinet af hálfu Stjórnarráðsins. Samband íslenskra sveitarfélaga á aðild að stýrinetinu. Á milli þess og landshlutasamtaka sveitarfélaga er samskiptaás sem sóknaráætlirnar og samskiptin fylgja. Með þessum hætti er tryggð góð samvinna stjórnsýslustiganna tveggja. Þetta verklag er nýsköp- un í íslenskri stjórnsýslu og vinnur Stjórnarráðið sem ein heild með einn málaflokk, byggðamál. Ný aðferð við skiptingu fjár Í dag renna um 5,7 milljarðar króna milli ríkis og sveitarfélaga samkvæmt 192 samningum. Að mestu er þetta fé í formi styrkja og samninga til einstakra verkefna. Það er skýr vilji stjórnvalda að reyna nýtt verklag til þess að einfalda þessi samskipti og í því skyni hefur ríkisstjórnin samþykkt að setja 400 milljónir króna í sóknaráætlanaver- kefni árið 2013 sem skiptast á milli landshlutanna átta eftir gagnsæjum viðmiðum. Hugmyndin er svo að færa hluta þess fjár sem bundið er samningunum 192 í þennan nýja farveg. Árið 2013 er reynsluár þar sem hverjum landshluta er falið að ákveða, á grundvelli sóknaráætlana, hvernig 400 milljónum króna verður varið. Því er það formið sjálft frekar en fjármagnið sem þarf að standast prófið þetta árið. Fjárupphæðin er þó engu að síður mikilvæg, en með því gefst gott tækifæri til að reyna verklagið. Til lengri tíma litið er markmiðið að fjármunir sem Alþingi ráðstafar af fjárlögum til verkefna í einstökum landshlutum á sviði atvinnumála og byggða- og samfélagsþróunar byggi á svæðisbundnum áherslum og markmiðum sem koma fram í sóknaráætlunum landshlutans. Þá er framtíðarsýnin sú að sóknaráætl- anir verði hafðar til hliðsjónar þegar kemur að stefnumótun og áætlana- gerð ríkisins og hafi gagnvirk áhrif á fjárlagagerð. Ögrandi viðfangsefni Til að ná settu markmiði, að færa aukin völd og aukna ábyrgð til heimamanna í hverjum landshluta, þarf að koma til breytt verklag stefnumótunar og áætlanagerðar, bæði í landshlutunum sjálfum og innan Stjórnarráðsins. Við sjáum nú þegar talsverðan árangur hvað þetta varðar með skipan stýrinets Stjórnarráðsins og samráðsvett- vanga í hverjum landshluta. Við sjáum einnig bætta og markvissari nýtingu fjármuna með aukinni aðkomu og bættu samráði heima- manna. Sóknaráætlanir landshluta fara vel af stað en það er ljóst að verk- efnið er ögrandi bæði fyrir ríki og sveitarfélög og reynir á samvinnu innan landshlutanna og milli þeirra og ríkisins. Það er mín trú að ef vel tekst til með sóknaráætlanir og þetta nýja skipulag hafi verið stigið eitt stærsta skref sem stigið hefur verið í byggðamálum síðustu áratugi. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra Sóknaráætlanir landshluta fara vel af stað en það er ljóst að verkefnið er ögrandi bæði fyrir ríki og sveitarfé- lög og reynir á samvinnu innan landshlutanna og milli þeirra og ríkisins. Það er mín trú að ef vel tekst til með sóknaráætlanir og þetta nýja skipulag hafi verið stigið eitt stærsta skref sem stigið hefur verið í byggða- málum síðustu áratugi.jóhanna Sigurðardóttir Treystum grunninn með öflugri grunnþjónustu Suðurkjördæmi er eitt öflugasta kjördæmi landsins og hefur alla möguleika til að verða enn öflugra. Saman getum við nýtt þau tækifæri sem kjördæmið hefur upp á að bjóða. Við byggjum fram- tíð okkar á traustum grunni með mikið af ónýttum tækifærum. Má þar helst nefna þá fjölgun starfa sem mun fylgja frekari fullvinnslu á sjáv- arafurðum, frekari uppbyggingu í ferðaþjónustunni, uppbyggingu í tenglsum við orkunýtingu og ný- sköpun í landbúnaði. Í þessari uppbyggingu megum við ekki gleyma grunninum að því að þetta gangi upp, sjálfri grunn- þjónustunni. Hana þurfum við að efla um allt kjördæmið. Lögreglan hefur verið fjársvelt og er svo kom- ið fyrir henni nú að hún getur ekki sinnt lögbundnu hlutverki sínu sem erað tryggja öryggi íbú- anna. Heilsugæslan er lömuð vegna manneklu og einkennist af löngum biðlistum. Margir íbúar kjördæm- isins þurfa síðan að fara um langan veg til að sækja heilsugæslu sem kostar bæði tíma og peninga. Þess- ar aðstæður auka svo álagið á þá fáu starfsmenn sem eru eftir og um leið eru laun þeirra skorin við nögl. Þetta hefur þær afleiðingar að verkefnum fjölgar allstaðar í heilbrigðis- og ör- yggiskerfinu. Þjónustuskerðing á sjúkahúsunum fjölgar sjúkraflutn- ingum og einnig verkefnum lög- reglu. Fækkun lögreglumanna leiðir til aukins álag á björgunarsveitirnar. Við getum ekki endalaust nýðst á þreki og fórnfýsi björgunarsveitanna sem nýta sín orlof í sjálfboðavinnu. Undanfarið hefur verkefnum björg- unarsveita verið að fjölga samhliða því að fjármögnun þeirra hefur orðið erfiðari. Hvað gerum við þegar hjúkrunar- fræðingar, læknar, lögreglumenn, sjúkraflutninga- og slökkviliðs- menn, björgunarsveitafólk og fleiri láta undan álaginu? Þetta fólk á líka heimili sem mörg hver eru í fjárhags- vanda og maki jafnvel atvinnulaus. Þetta fólk veit líka vel hversu alvarleg staðan er innan þessara málaflokka og vill því flytja sig um set. Ég hef kynnst þessu af eigin raun sem lögreglumaður í tæp 10 ár, stjórnarmaður í landssambandi lög- reglumanna í fjögur ár og sem verð- andi faðir í tvígang s.l. 3 ár. Það var búið að skerða fæðingaþjónustuna til muna á Heilbrigðisstofnun Suðurnejsa á milli þessarra tveggja fæðinga. Við fundum hvað þessi þjónustuskerðing olli okkur miklu óöryggi og vitum að samgöngur hjá okkur eru mun betri en víðast hvar í kjördæminu. Ég tel að hliðra megi til í embættismannakerfinu þannig að breyta megi forgangsröðuninni. Við þurfum að byrja á að efla grunn- þjónustuna og draga frekar úr vægi minna mikilvægari starfsemi ríkisins. Ég hef mikinn áhuga á að fylgja þessum málum eftir af krafti. Því hef ég ákveðið að bjóða mig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins vegna komandi alþingiskosninga. Sú nánd sem við íbúar Suðurkjördæmis höf- um við grunnatvinnuvegina, 10 ára starfsreynsla sem lögreglumaður og það að vera tveggja barna faðir með verðtryggt íbúðarlán verður mik- ilvægt veganesti í störfum mínum sem þingmaður. Það er einlæg von mín að þið viljið vinna að þessum verkefnum með mér og styðja mig í 4. sæti í prófkjörinu þann 26. janúar næstkomandi. Vilhjálmur Árnason, lögreglumaður www.villiarna.is Verðandi stjörnur uppsveitanna? Sunneva Sól Árnadóttir, Erla Ellertsdóttir, Ninna Ýr Sig-urðardóttir og systkinin Jó- hanna Rut Gunnarsdóttir og Jón Aron Lundberg komust áfram í úrslit í seinni forkeppni Upp- sveitastjörnunnar, hæfileikakeppni Upplits, sem fram fór í Félagsheimil- inu á Flúðum laugardaginn 19. jan- úar. Níu atriði voru skráð til keppni; sjö tónlistaratriði og tvö dansatriði og þóttu allir standa sig með prýði. Mynd: Sigmundur Sigurgeirsson Vilhjálmur Árnason

x

Selfoss

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.