Selfoss - 24.01.2013, Síða 12
12 24. janúar 2013
Kjördæmisráð Samfylkingar-innar í Suðurkjördæmi samþykkti framboðslista
flokksins í komandi alþingiskosn-
ingum á kjördæmisþingi í Tryggva-
skála í Árborg sl. laugardag. Oddný
Harðardóttir leiðir listann en hún
sækist eftir að verða varaformaður
Samfylkingarinnar. 8 efstu sætin eru
skipuð þessum:
1. Oddný G. Harðardóttir, alþingis-
maður, Garði
2. Björgvin G. Sigurðsson, alþingis-
maður, Árborg
3. Arna Ír Gunnarsdóttir, félagsráð-
gjafi og bæjarfulltrúi, Árborg
4. Árni Rúnar Þorvaldsson, kennari
og bæjarfulltrúi, Höfn
5. Ólafur Þór Ólafsson, forstöðu-
maður og bæjarfulltrúi, Sand-
gerði
6. Bryndís Sigurðarsóttir, fram-
kvæmdastjóri, Hveragerði
7. Bergvin Oddsson, nemi, Vest-
mannaeyjum
8. Borghildur Kristinsdóttir, bóndi,
Rangárþingi ytra
Á þessum tíma árs eru margir uppteknir af hollum mat og hreyfingu. Dagblöðin
eru með á hverri síðu myndir af
ofurhraustu fólki á besta aldri sem
lifir í hinu fullkomna jafnvægi milli
hreyfingar og matar að viðbættum
orkudrykkjum og orkupillum. Mað-
ur verður ógnarsmár í þessum holl-
ustuhamförum sem erfitt er að fóta
sig og ákveða hvað er best.
Þá finnst mér gott að hugsa til
Stjána bláa sem var vinsæl teikni-
myndapersóna þegar ég var ung.
Ég man ekki í hvaða blaði hann var
– kannski í Tímanum. Þegar hann
þurfti mikla orku, skellti hann bara í
sig spínati og vann öll slagsmál.
Spínat er frábært grænmeti sem
bæði má borða ferskt og einnig soðið
eða steikt.
Á morgnana bý ég til orkudrykk
þar sem spínat og sítróna er grunnur-
inn.
Í morgun sett ég í blandarann
lúku (handfylli) af spínati (þveg-
ið vel í köldu vatni), safa úr einni
sítrónu, hálft mangó – líka gott að
hafa epli, slurk af trönuberjasafa og
köldu vatni. Alveg frábært á undan
hafragrautnum.
Síðdegis fór ég í fiskbúðina og fékk
nýjan þorsk. Ég kaupi alltaf þorskflak
með roði því að bragðið liggur í roð-
inu. Núna eru þeir svo flottir í fisk-
búðinni að þeir beinhreinsa líka flök
með roði.
Ég skar flakið í stykki (munið að
hreinsa roðið vel)og setti í poka með
smá raspi og sítrónupipar og hristi
saman. Steikti síðan á pönnu í smá
repjuolíu. Síðan setti ég á pönnuna
með fiskinum tvær lúkur (handfylli)
af fersku spínati, pressaði hvítlauk
yfir og aðeins salt. Aðalmálið er að
elda fiskinn ekki of lengi. Ég fer ekki
frá eldavélinni á meðan – þetta er
spurning um mínútur. Það er ágætt
að stinga pinna eða hnífsblaði í fisk-
inn og ef hann rennur í gegn er hann
tilbúinn og þá að taka hann strax af
hitanum.
Setti svo spínatið yfir fiskinn áður
en hann var borinn fram með góðu
salati eftir smekk. Einnig má hafa
kartöflur, hrísgrjón eða það sem hver
velur sér.
Hollt og gott. Verði ykkur að góðu.Lítur vel út,
hér er á ferðinni einhver besta
varmadæla sem komið hefur fyrir
stærra húsnæði og sundlaugar.
Getur notað vatn, sjó, jörð og loft
til orkuöunar. NIBE F1345 eyðir
litlu og sparar mikið.
Stærðir frá 24 til 540kW
NIBE frá Svíþjóð
Stærstir í Evrópu
í 60 ár
W
NIBE™ F1345 | Jarðvarmadæla
Ný kynslóð af varmadælum.
Nýtt
Er rafmagns reikningurinn á ári
1, 2, 5, 10, 20 milljónir eða meira?
Er þá ekki kominn tími til að við
tölum saman?
FFriorka www.friorka.is 571 4774
Að hætti hússins
GOTT ER AÐ BORÐA SPÍNATIÐ
Kristjana Sigmundsdóttir
kristjanasig@simnet.is
STRÍÐLUR
Listi Framsóknar í heilu lagi.
Listi Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi fyrir al-þingiskosningarnar í vor var
valinn á fjölmennu kjördæmisþingi
12. janúar á Selfossi. 8 efstu sætin
verða skipuð þessum:
1. Sigurður Ingi Jóhannsson,
Hrunamannahreppi
2. Silja Dögg Gunnarsdóttir,
Reykjanesbæ
3. Páll Jóhann Pálsson, Grindavík
4. Haraldur Einarsson, Flóahreppi
5. Fjóla Hrund Björnsdóttir, Rang-
árv.sýsla
6. Sandra Rán Ásgrímsdóttir, A-
Skaft.
7. Sigrún Gísladóttir, Hveragerði
8. Jónatan Guðni Jónsson, Vest-
mannaeyjar
Ljósmyndir og ljóð í Gjánni
- Halla Ósk
Heiðmarsdótt-
ir er áhugaljós-
myndari frá Sel-
fossi sem hefur
opnað sýningu
í Listagjánni í
bókasafninu á
Selfossi. Hver
mynd styðst við vísu. Sýningin er
sölusýning og stendur til febrúar-
loka.
„Lærdómsríkt að hitta
sveitarstjórnarmenn á
heimavelli þeirra“
- Ríkisstjórnarfundur verður haldinn
á Selfossi á morgun, föstudag 25.
Janúar. Rædd verða hefðbundin
málefni en auk þess verkefni sem
sérstaklega tengjast Suðurlandi. „Sú
nýbreytni að halda ríkisstjórnarfundi
utan Reykjavíkur hefur verið lær-
dómsrík og dýrmæt. Það hefur verið
ánægjulegt að hitta sveitarstjórnar-
menn og aðra sem vinna að hag
landshlutanna á heimavelli þeirra,“
segir Jóhanna Sigurðardóttir, for-
sætisráðherra.
- Þá verður fundað með sveitar-
stjórnarfólki á Suðurlandi og blaða-
mannafundur í kjölfarið. Ráðherrar
munu síðan heimsækja vinnustaði
og stofnanir.
Smáfréttir